Mér finnst það galið nice. Samt ekki.
Eins og miðaldra kvenmanni sæmir er þankagangurinn búinn að breytast. Það sem ég hugsaði mest um fyrir ári og tveimur og þremur er ekki það sama og ég hugsa um núna.
Nei, það sem ég hugsa um þegar ég vakna á nóttunni núna (stundum vekja þessar hugsanir mig) er bara svona endalaust; hvernig á ég að gera þetta og hitt. Á morgun er ég til dæmis að fara mála í aðstöðunni aftur, aðallega af því að ég gerði það ekki rétt síðast. Núna rekast á hugsanir um hvernig ég ætla að gera þetta betur, hvað ég þarf o.s.frv. Þarf t.d. klárlega svona kúst til að setja rúlluna á til að þetta verði jafnara og bla bla bla.. Ætli það sé ekki best að setja bara plast á gólfið þar sem ég er að vinna eða ... blablabla.
Það sem heldur fyrir mér vöku núna og það sem ég vaknaði við í morgun er fyrsta helgin í maí. Hvernig og af hverju sagði ég bara já, að þessi helgi hentaði fínt fyrir húsmæðraorlof fyrir nokkrum vikum síðan og af hverju fattaði ég ekki að barnabarnið á auðvitað sitt fyrsta afmæli þá?
Hitti vinkonu mína sem ég er að fara með þetta orlof í í gærkvöldi og hún sagði ferlega slök að já, við gætum bara rúllað í bæinn um hádegið á sunnudeginum. Hélt fyrst að veislan byrjaði kl. 13 en hún verður kl. 14 sem er auðvitað betra en ég er amman.
AMMAN!
Nú, auðvitað kem ég með eitthvað og hvað á það nú að vera og blablabla.
Er aðallega hrædd um að lenda í kvíða yfir þessu nóttina áður. Í húsmæðraorlofi. Í sumarbústað.
Fékk mitt reglubundna kvíðaskot fyrir kennsluna á miðvikudaginn. Af hverju ég geri mér þetta veit ég ekki. Jú, út af peningnum.
Vikan var með besta móti. Orkan er góð þessa dagana. Þurfti ekki að hafa mikið fyrir henni.
Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar ég var (löngu) búin með allt námsefnið (sem þau höfðu engan áhuga á) og þar sem það var útskrift þurfti ég að drepa tímann. Það voru þónokkrir frá Afríku í tímanum svo ég setti bara african beats á og við fórum að dansa. Það var æði. Elska hvað Afríkubúar virðast alltaf vera léttir. Músíkin og takturinn er þeim í blóð borin og það var svo æðislegt að fylgast með þeim bara standa á fætur og dansa.
Af hverju er ég ekki meira Hakuna Mutata?
Lágpunktur vikunnar var líka á miðvikudaginn um morguninn þegar ég var með kvíða yfir að vera fara kenna. Skrýtið af því að þeim er svo sama og þetta er tiltölulega góður hópur. Hélt það allavegana. Fyrra skiptið var æði með þeim en svo var eins og þau væru öll blúsuð og á túr í seinna skiptið. Mjög skrýtið. Finn til með uppistöndurum sem lenda stundum í erfiðum sal.
Verkefni vikunnar var tiktok maskinn. Náttúrulegur maski gerður úr hörfræum og hrísgrjónum og aloe vera sem ég sá á tiktok og á að gera mann (já eða húðina) 18 ára aftur.
Pha!
Namaste.
No comments:
Post a Comment