Friday, April 5, 2024

I want to get away

I want to fly away

Þetta var lagið sem ég vaknaði með í hausnum í morgun. Mikið væri ljúft að geta flogið bara burt.

Ætla þá að gera það bara. Með síðasta sumar í fersku minni þar sem ég var með 10 ára dóttur sem leiddist óhóflega ætla ég að kokka upp ferð þar sem við förum bara tvær til Danmerkur. 

Kóngsins Kaupmannahöfn, hér komum við. Mæðgur sem ætla að bæta upp fyrir síðasta sumar. Tívolí og Legoland, labba um og njóta.

Yes!

Vikan var óvanaleg. Fyrstu dagarnir voru ennþá páskafrí svo þetta var afskaplega róleg vika. Varla vika bara. 

Hápunktur vikunnar var í gærkvöldi þegar ég þóttist sjá skilaboð frá himnasmiðnum í skýjunum. Já, ég heillast að hinu andlega. Í gær var 4.4.2024 sem er víst dagurinn þar sem einhver meiriháttar gátt opnast í alheiminum sem hjálpar við kraftbirtingu (manifestation.) 

Ég óskaði mér fullnægjandi 8 tíma svefns allar nætur. Viti menn, vaknaði fersk eins og nýslegin túskildingur.

Lágpunktur vikunnar var núna áðan þegar ég fór með Pathfinderinn í sjálfsafgreiðsluna hjá Lindinni eða Löðrinu eða hvað þetta nú heitir, bílaþvottastöðin í Lindunum. Hann var orðinn svo skítugur þessi elska. Mikið að gera þarna og ég vel bara svona sjálfsafgreiðsludæmi og gerði óvart dáldið fyndið og asnalegt. Verandi gellan sem ég er var ég í fínni skónum og sullaði alls konar tjöruhreinsum og sápum og löðri á bílinn. Passaði að setja líka á toppinn, blint að sjálfsögðu þar sem ég sé ekki ofan á bílinn, krílið sem ég er. Sé svo núna frá íbúðinni minni á 2.hæð að ég mér hefur bara tekist að þrífa neðri helminginn af toppnum af bílnum. Hinn er drull. Pha!

Verkefni vikunnar var að kaupa ramma (í fleirtölu) fyrir útskriftarskírteinin okkar Siggu til að setja upp í aðstöðunni. Núna erum við bara tvær og erum að breyta og betrumbæta. Keypti nú kannski óhóflega dýra ramma. Vildi að ég væri aðeins séðari þegar kemur að peningum eða bara hefði meiri áhuga á þeim kannski fyrir það fyrsta.

P.s. Mikið heldur hann sér vel hann Lenny. Sá mynd af honum á Instagram um daginn og hann er bara ennþá flottur kallinn.

No comments: