Friday, April 26, 2024

Feeling

... old.

Aftur. Sé að síðasti póstur byrjaði álíka annarkannarlega. 

"Gah" sagði vinkona mín í gær. Við vorum staddar á Fjörukránni, ekki að sumbli, heldur var hún að ferma elstu dóttur sína. Fyrsta fermingin af þremur. "Þetta er ekkert smá mikið mál!" sagði hún. Veislan var stór, held um 70 manns. 

"Við höfum fermt þrisvar" heyrðist í okkur Svan. 

Þarna var það. Þessi skringilegheit. Vinkonur mínar og jafnaldrar eru í ár að ferma í fyrsta skiptið og sumar ekki byrjaðar og eru kannski með þrjú börn undir fermingaraldri. 

Mér finnst þær vera sprækar. 

Skil ekki alveg af hverju mér finnst ég vera eldri og þreyttari en þær. 

Hver veit?

Allavegana, vikan var nú bara létt. Frídagur í gær og ég vann ekki nema tvo daga. Svo er líka allt léttara um leið og fer að birta svona yfir. Gleðilegt sumar segi ég nú bara:) 

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar ég fékk óvænt tvo kúnna sem pöntuðu samdægurs. Var aðeins farin að missa trúnna á þessu nuddbrasi því þetta er dáldið bras og hark en nei, það eru einhverjir sem finnst ég hafa upp á eitthvað að bjóða. Mikið ánægð með mig á miðvikudaginn. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar mér fannst ég vera eldri en jafnaldra vinkonur mínar þegar raunin er að þær eru nokkrum mánuðum eldri en ég!

Markmið vikunnar var þungt og erfitt. Þetta er rétta viðhorfið Svava. Allavegana, náði því ekki. Markmiðið var sem sagt að selja annan nuddbekkinn minn því núna þarf ég að spara fyrir Danmerkurferðinni:)

Namaste.

No comments: