Friday, May 3, 2024

Teenage angst

Guðirnir eru góðir.

Unglingurinn minn (bráðum 16 ára) er ekki með neitt á veggjunum í herberginu sínu. Oft er ég að hvetja hann til að finna einhver fótboltaplaköt eða eitthvað en hann bara: "hvar?"

Ég var hins vegar allt annað mál. 

Veggirnir voru málaðir í litum djöflana; rautt og svart og málað á vegginn með svampi. Það var í tísku í kringum 1993 að svampmála. Ákveðinn stíll. Síðan voru fullt af plakötum með menningu þess tíma. Mikill karakter í öllum þeirra. Flest úr tímaritinu i-D sem var það svalasta sem ég vissi um á þessum tíma. Fyrir utan Stussy. Mikið teenage angst í gangi með léttúð samt. 

Úff, svakalegt tímabil.

Mikið er ég þakklát fyrir unglinginn minn sem stendur sig svo vel í lífinu. Núna er allt að gerast. Hann er í lokaprófum og er að klára 10. bekk. Næsta vetur verður hann líklega kominn í menntaskóla.

Allavegana, er að elska vikurnar núna. Það gerir svo margt og mikið gott að vera með 4ra daga vikur þökk sé öllum þessum frídögum. Varð reyndar smá ringluð á miðvikudaginn og hélt að það væri laugardagur. Mín ástkæra móðir leiðrétti misskilninginn.

Vikan var létt og góð. Alveg eins og ég vil hafa þær. Hef aldrei verið mikið fyrir álag. 

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn í hot power yoga tíma. Veit ekki hvort þið hafið farið í svona tíma en hann var meira en klukkutími og ég var bara svo ánægð að hafa lifað hann af!

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég fór í Kringluna að útrétta og leið eins og lúða af því að ég er alltaf í sömu útivistarbuxunum (þær eru þægilegar) og sömu skónum (pússaði þá reyndar aðeins upp í gær.) Verð að step up my game af því að jú, þið heyrðuð rétt. Gelluseason er að byrja. 

Verkefni vikunnar var að undirbúa bæði húsmæðraorlof í formi sumarbústaðaferðar með besties og afmæli Styrmis Orra með því að gera rétti sem ég síðan frysti.

Whoop whoop!

Namaste.



No comments: