Friday, May 17, 2024

Out with the old, in with the new

... with me being the old.

Er að finna að flestum vígstöðvum lífs míns eru ungu konurnar að taka yfir. Hvort sem það er í bókhaldinu hjá Svani eða í nuddinu. 

Hann er búinn að fá sér bókara. Hún er yngri en ég og kann betri og skilvirkari leiðir. Hvað ég geri þá á morgnana veit ég ekki en kannski fer ég að gera reikninga. Sagði hann.

Hún vill dagana mína. Er með fleiri kúnna. Er yngri, hraðari, skilvirkari. Veit ekki alveg hvernig ég að höndla þetta. Er rólega týpan. Ok, hún vill kannski bara einn af þeim en smá skellur samt.

Vikan byrjaði hræðilega en er að enda ljúflega. Ákvað að Pee into the wind og fór í blóðprufuna. Varð kvíðin, grét allan tímann og var svo í kvíðaástandi fram á þriðjudag þar sem verkurinn fór ekki og hélt fyrir mér vöku. Eftir því sem ég kemst næst var þetta einhvers konar egglos og blaðra sem blæddi inn á í móðurlífinu eða eitthvað. Allavegana, líður miklu betur. Þetta er allt að koma.

Hápunktur vikunnar var þegar ég var í einkaþjálfun í World class á þriðjudaginn og lyfti þyngra en ég hef nokkru sinni lyft. Eftir sirka 25 ár í World class lærði ég loksins á tækin og hvað er best fyrir mig að gera og hvaða tæki eru best fyrir mig. Leið svo vel eftir æfinguna að ég finn ennþá hvað þetta var gott fyrir mig og það er föstudagur. Er alveg á leiðinni að fara gera þetta aftur. Er að fara í ræktina.

Lágpunktur vikunnar var klárlega þegar ég fór að gráta þegar ég var að pee into the wind. Only my biggest fear samt.

Fékk svo að vita niðurstöðuna í gær og það er bara allt í fína Bína með örvæntingarfullu húsmóðurina okkar. 

Verkefni vikunnar að fá mér sensible augnháralengingar. Fann loksins lengingar fyrir viðkvæm augu eins og mín og yes, I did it. Líður smá kjánalega en var bara farið að líða eins og lúða með ómáluð augun alltaf. Langaði að gera eitthvað fyrir andlitið, poppa það aðeins upp, en kannski var þetta of mikið. 

Við lítum ekki allar vel út ófarðaðar.

Namaste.

 

 


No comments: