"If you´re scared of heights go to the top of the building.." Elsku Joey í Friends.
Fyrir sirka 15 árum skrifaði ég mjög dramatíska færslu hér um hvað það hefði kostað mig að hafa þurft að fara í blóðprufu þegar ég var ófrísk af Stefáni. Minnir að það hafi verið einhvern veginn svona (annars er færsluna að finna árið 2007 líklega.)
Tvö kvíðaköst
Eitt geðsýkiskast
Ein svefnlaus nótt
Einn veikindadagur í vinnunni.
Jesús. Það er ekki auðvelt að vera með fóbíu. Ég fór sem sagt til læknis á mánudaginn og hann vildi senda mig í rannsóknir, þvagprufu og blóðprufu. Hann sá að ég hafði ekki farið í blóðprufu síðan 2015 og furðaði sig á því. Ég útskýrði málið og þessi elskulegi læknir sýndi mér skilning og sagðist geta bundið um hnútana þannig að ég gæti fengið að koma til þeirra á heilsugæslustöðina og fengið að liggja fyrir og eftir og fengið róandi.
Sko.
Ég nenni ekkert að vera svona. Leiðinlegt að þurfa fórna heilum degi í ótta. Það hefur sem sagt gerst í hin skiptin að það hefur liðið yfir mig og svona. Það er hræðilega leiðinlegt.
Pee into the wind Svava!
Vikan var góð. Núna er frídagur sem er mjög gott að því að ég er eiginlega frá vegna túrverkja. Þeir koma á nóttunni. Byrjaði síðustu helgi. Ég sem ætlaði í gelluyoga hjá einni sem mig hefur langað til lengi. En ástand mitt býður ekki upp á það.
Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég var að heila. Elska bara svo mikið mómentið þegar ég kemst í beintengingu og almættið flæðir í gegn og vinnur í gegnum mig. Það gerist ekki alltaf. Nuddið þar á undan var beinlínis vandræðalegt af því að ég var með nýjan síma (iphone) sem ég kann ekki almennilega á og gat ekki tengt hann við bluetooth gaurinn svo að þegar ég setti á flugstillinguna hætti tónlistin. Sem betur fer var þetta fastakúnni og við spjölluðum og svo hjálpaði hún mér að tengja dæmið svo að ég gæti sett á flugstillinguna. Já og tifandi klukkandi truflaði líka það nudd. Hérna er hann. Lágpunktur vikunnar sem sagt. Fyndið að alltaf er þetta á miðvikudögum. Oft. Bæði hápunktur og lágpunktur vikunnar.
Verkefni vikunnar tókst ekki vel til.
Er frekar einföld kona. Þegar mig vantar nærbuxur fer ég í Lindex. Í öll síðustu skipti sem ég hef farið í Lindex hefur ekki verið til mín stærð sem er mjög einfaldlega Medium. Samt fer ég þangað aftur þegar mig vantar nærbuxur. Verkefnið vikunnar var sem sagt að kaupa nærbuxur og sokka. Var heldur ekki ánægð með sokkana. Þeir þurfa að vera ökklasokkar svona hvítir íþrótta en þeir sem ég keypti voru of þunnir.
Ég veit flestar aðrar konur elska að versla og hefðu farið í aðrar búðir og blablabla. Mér hins vegar leiðast svo mikið búðir og Kringlan að ég þurfti stuðningsfulltrúa með mér. (Djók, ekki djók.)
Er auðvelt að vera ég?
Nei.
Namaste
No comments:
Post a Comment