Er byrjuð í einkaþjálfun sem hefur reynst alger game changer í mínu lífi.
Passaði að velja einkaþjálfara sem er líka osteopati og veit allt um hryggskekkjur og brjósklos. Er búin að finna þvílíkan mun á bakinu mínu og líðan. Líkaminn er bara allt annar. Vildi óska að ég hefði gert þetta fyrr. Sá líka þegar ég fór í sund í vikunni að ég er komin niður í 63 kg allt í einu og frekar flott bara. Er mjög sátt. Aðal bömmerinn er að það er bara einn tími eftir. Svo er það eftir mér komið að halda þessu við.
Verkefni vikunnar var eins einfalt og það gerist. Samt er það búið að taka mig margar vikur að koma mér í að gera það. Það var einfaldlega að ryksuga bílinn. Sko. Hér áður fyrr fór fólk á bensínstöðvar með 100 kalla og ryksugaði bílinn þannig. Þessi menning virðist dauð eftir því sem ég kemst næst. Var nokkurn tíma að finna út að það eru bílaryksugur sem virka hjá Löðri í Kópavogi. Var bara heillengi að koma mér í þetta en það tókst sem sagt. Sá að bílamottan bílstjóramegin er eiginlega gatslitin og næsta verkefni er þá að finna nákvæmlega svona sem passar í Nissan Pathfinder. Hún nefnilega smellist í ákveðið dúbb í bílnum og er held ég merkst Nissan. Mon diau..
Hápunktur vikunnar var klárlega þegar ég var í búningsklefanum í sundi og fannst ég bara frekar flott!
Lágpunktur vikunnar var í gær þegar Emilía mín þurfti að horfa upp á hvernig ég fer út úr nuddrýminu. Þarf að taka allt úr sambandi og marg tékka hvort allt sé ekki örugglega úr sambandi. Ekki eins og það geti kviknað í út frá saltlampa en .... :/
Ætla að fara rokka þennan dag (gera allt á check listanum sem er oddly satisfying.)
Namaste.
No comments:
Post a Comment