Þegar kona er útbrunnin, miðaldra OG á breytingaskeiðinu, ÁLAG hits different.
Fór til sálfræðings vegna fjölskyldumeðlims = álag
Fór til sálfræðings vegna mín =álag
Með engum fyrirvara er dóttir mín (11 ára) að fara í keppnisferð norður í tvær nætur og pressan um að mæta og sína lit gífurleg = álag
Vera með OCD og vera introvert = álag
Redda öllu nýja dótinu fyrir áðurnefnda norðurferð = ÁLAG
4 X álag + ÁLAG = ÁLAG í fjórða veldi
Verkefni vikunnar bugaði mig. Það var sem sagt að redda alls konar dæmi fyrir keppnisferð norður; búning, skóm, sérstakri dýnu. Er ekki góð í svona allt í einu hlutum. Hef meira gaman af að vita af viðburðum með lööngum fyrirvara. Þá skarast ekkert og viðburðir koma ekki aftan að manni.
Hápunktur vikunnar var þegar Vala mín kom í nudd til mín í gær. Það er svo gott að spjalla við góða vinkonu með rætur way back.
Lágpunktur vikunnar var líka í gær þegar örvæntingarfulla húsmóðirin sat í jeppanum á planinu fyrir framan Hagkaup í Skeifunni frekar fúl bara. Bíða eftir að Jysk opnaði kl 11 (!) og ofangreind jafna var í hápunkti. Ekki bara það að gamall skólafélagi úr Hvassó púllar upp á kagganum sínum með látum beint við hliðina á mínum og sér mig í fýlu. Nei, heldur líka það að ég tók öskur í bílnum eftir Jysk ferðina. Tvö. Sko, maður gerir þetta þegar bíllinn er á ferð og enginn í kring. Þetta sleppur út illum öndum og streitu og er gott fyrir líkama og sál. Losa sig við neikvæða orku. Þessi tilteknu öskur komu djúpt úr iðrunum. Ykkar kona búin á því.
Social vikunnar var kannski í gær þegar ég hitti Völu en helgin er nú öll eftir svo, hver veit..
Namaste
P.s. álag be gone.