Friday, September 20, 2024

I surrender all

 I surrender all

Heyrði einhvern tímann Opruh segja þetta. Stundum þarf maður bara að gefast upp. Verkefni vikunnar var þannig. Stundum er þetta bara of mikið mál, of klístrað og of asnalegt og örvæntingarfullt.

Var búin að vera með á verkefnalistanum að gera tiktok maskann. Hann á víst að virka betur en botox. (Yep, here it is again, the midlife crises.) Er búin að vera með þetta á verkefnalistanum mínum lengi og ákvað að þetta yrði verkefni vikunnar þar sem ég var að passa frekar mikið og hafði lítinn tíma í verkefni vikunnar í vikunni. Tilefnið er að það var tekin mynd af mér á skítamixinu (það var mjög gaman) og ég sá heilar þrjár hrukkur í röð á kinninni. 

Allavegana, maður á að sjóða saman hrísgrjón og hörfræ og það á að mynda kremið eftir maður kreistir það í gegnum þess til gerða tusku.. Gerði tvær tilraunir og bara klúðraði þessu. Fór frá þessu í eitt skiptið og hitt skiptið var of lítið vatn held ég. Strika þetta verkefni bara út af listanum og buygones. Sætti mig bara við að ég er eldri en þrítugt (eða fertugt.)

Hápunktur vikunnar var þegar ég sá að ég er komin á Special thanks listann hjá uppáhalds podcastinu mínu Seasons of friendship. Þáttur vikunnar var líka extra skemmtilegur.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var ósofin út af dottlu og leið hræðilega í kjölfarið. Kom heim úr vinnunni þar sem mér var eiginlega óglatt af þreytu og gat bara ekkert gert. Þetta fulla tungl ha?

Social vikunnar hefur verið bara nokkuð fjölbreytt. Er búin að hitta Önnu Láru vinkonu og Sunnevu vinkonu og bara fólk hér og þar; í sundi, í Bónus, í vinnunni.. já, já. Social síðustu viku var líka bara frekar grand á minn mælikvarða. 

Er svo heppin að eiga eins góða vinkonu og Tinnu mína sem kom með tvo afleggjara til mín á föstudaginn þegar ég var á skítamixinu (set inn mynd á eftir) þannig að núna er ég komin með þrjár plöntur til að hugsa um:)

 Namaste.


No comments: