said the man to the lady
uh said the lady to the man
she adored
And the whores like a choir
Æska mín, unglingsárin. Elska hvernig Pixies var ekki bara ég að búrast með áhuga á einhverri hljómsveit heldur var Pixies við öll. Algerlega sameiginleg hljómsveit okkar allra og var spiluð í öllum partýum og fíluð af öllum. Sameiginlegur áhugi okkar allra.
Það var svo skemmtilegt að á laugardaginn kom skeyti (skeyti? þú fæddist á síðustu öld Svava en ekki öldinni þar á undan) frá Ingu vinkonu þar sem hún bauð nokkrum Hvassó vinkonum í léttan kvöldverð og kvöldkaffi. Þetta var einmitt það sem ég þurfti í tilvistarkreppu númer xi. Við Vala mættum og Tinna og Kristín. Dásamlegt kvöld. Pixies var sett á fóninn og ég er búin að hlusta alla daga síðan. Á allavegana eina minningu frá partýi þar sem við vorum öll að drekka heima hjá foreldrum Ingu sem áttu þá heima í blokkinni á horni Lönguhlíðar og Miklubrautar. Smart blokk. Já, við sem sagt vorum að hlusta á Pixies.
Vikan er búin að vera alls konar. Kafaði djúpt í sjálfa mig og var með stífan verkefnalista. Niðurstaðan er sú að jú, ég er tilbúin með CV núna ef eitthvað sem hentar mér kemur upp en sannleikurinn er sá að ég var óbeint minnt á síðasta vetur þar sem ég var alls ekki góð á köflum. Þarf enn og aftur að hlúa að mér og minni andlegu heilsu. Kannski kominn tími til að vinna í OCD-inu. Málið er að það sem sálfræðingar hafa upp á að bjóða er hálfrar milljón króna helgi þar sem maður vinnur í sínum málum með sálfræðing í eftirdragi. Hmm..
Verkefni vikunnar var að vinna í CV inu. Núna er ég komin með einn meðmælanda og tilbúið CV og fylgibréf. Eina sem vantar upp á er almennileg passamynd. Málið er að ég er eins og Chandler í Friends þegar kemur að myndatökum. Frýs öll bara og verð asnaleg. Overdozaði líka á cacao-inu á þriðjudaginn og búin að vera í móðu síðan. No worries, er að taka málið föstum tökum.
Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar kúnni komst við því hún var svo ánægð að hafa fundið mig. Sömuleiðis mín kæra segi ég nú bara.
Lágpunktur vikunnar var á þriðjudaginn þegar ég fór á Mama og fékk of sterkan cacaobolla. Þurfti að leggja mig eftir á. Málið var líka að ég var að senda meðmælanda númer tvö skilaboð og hún minnti mig óbeint á hvernig ástandið var á mér síðasta vetur á tímabili. Kulnun. Lífsbruni. Það dæmi er ekki alveg búið. Málið var að þó ég væri í mínus mætti ég samt þar sem ég var búin að melda mig. Gerði það alveg allavega tvisvar. Hefði átt að halda mig heima í þessi skipti. Fór á bömmer út af því.
Social vikunnar var þegar ég fór á Mama. Fékk nú alveg tvö faðmlög og spjallaði við nokkra. Lifi nú liggur við ennþá líka af síðasta laugardagskvöldi.
Namaste.
No comments:
Post a Comment