Friday, September 13, 2024

Skítamix

Andskotinn djöfull.

Afsakið, ég biðst forláts.

Það er ekki nóg með að ég sé að fara á skítamix í kvöld heldur líður mér eins og skítamixi. Þessi blessaði líkami. Stundum er hann góður, stundum er hann vondur. Er ennþá að glíma við stoðkerfisvandamál frá því á meðgöngu og fæðingu Stefáns. Hann er 16 ára. Rófubeinið brotnaði í fæðingunni og alls konar vesen er búið að hrjá mig síðan. Oftast er ég góð en svo koma tímar eins og núna þegar mér líður eins og spjaldbeinið sé brotið. Gat varla labbað upp stigann í gær eftir vinnu.

Skítamix stendur annars fyrir skeet eða tvít. Þetta er blessað fólkið sem ég á í samskiptum við á samskiptaforritinu bluesky alla daga. Ein (líklegast extrovert) ákvað að halda skítamix þar sem við erum actually að fara hittast (!) Allt í kringum þetta er glugg glugg, fyrsta hintið er að þetta er á vínbar niðrí bæ. 

Það fer í sögubækurnar að ég ætla að fá mér rauðvínsglas í fyrsta skiptið í 16 ár. Er alveg búin að hugsa þetta. Langar að sjá hver áhrifin verða og ætla að drekka þetta blessaða glas löturhægt. Bara eitt. Á nokkrar vinkonur sem eru búnar að slaufa mér sökum edrúmennsku svo kannski verður maður eitthvað vinsælli. Hver veit?

Allavegana, verkefni vikunnar var smátt en stórt. Er sem sagt ekki ennþá búin með það. Það var að sortera og raða öllum teikningunum sem krakkarnir hafa gert yfir árin og ég hef haldið upp á. Þetta eru nokkrar möppur, er þegar búin að losa eina. Henti sem sagt nokkrum punktum, kommum og strikum. Maður þarf nú ekki að geyma ALLT.

Hápunktur vikunnar verður líklegast í kvöld þegar ég verð í fyrsta skipti á vínbar í 20 ár. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég þurfti að styðja mig við vegginn til að geta labbað upp stigann (bara alveg í bláendann samt.)

Social vikunnar verður í kvöld þegar ég verð umkringd fólki sem ég þekki (ekki.)

Bara bímm bara bamm.

Namaste.


No comments: