Sumarið hefur geymt það besta fyrir síðustu dagana.
Ok, þetta þýðist ekki vel yfir; saving the best for last.
Ég hef verið frekar ringluð vinnulega séð. Var með þrjá daga í aðstöðunni en núna eru þeir bara tveir svo ég hef óþægilega mikinn frítíma. Engar áhyggjur, finn mér nú alltaf eitthvað að gera og er eiginlega bara stundum of upptekin. Vantar vel launaða hlutavinnu. Já, mér þarf reyndar að líða vel í umræddri vinnu og helst geta ráðið hvenær ég vinn af því að tja, í tveimur síðustu vinnum fékk ég frekar alvarleg kulnunareinkenni og veit að ég get engan veginn verið hvar sem er.
Verkefni vikunnar var smá djók. Munið eftir kerrunni sem ég keypti ódýrt í Barnaloppunni? Þetta er hálf svona draslaraleg kerra sem er greinilega vel notuð en hinar kerrurnar voru bara mjög dýrar. Allavega, þetta er svona Chicco kerra með rauðum skerm. Mér fannst hann eitthvað svo glataður og líður ekki vel með að vera með barnið í svona glataðri kerru. Þannig að ehemm, ég pimpaði hana smá upp. Keypti svart sprey og meira að segja primer spray undir aðal spreyið í Slippfélaginu og var að spreyja í gær. Veit ekki alveg hvað ég á að segja með útkomuna en hún er hugsanlega þannig að kerran er meira draslaraleg...
Hápunktur vikunnar var í morgun í Elliðaárdal. Mikið ofboðslega var dalurinn flottur í morgunsólinni. Byrjaði líka í Art of yoga eftir sumarfrí í gær og mikið var gott að sjá hana Talyu mína og fá faðmlagið góða. Gaman að hitta hina yogana líka.Lágpunktur vikunnar var á mánudaginn þegar Styrmir Orri (15 mánaða) steinsofnaði óvart kl 11 í kerrunni í stað 11:30 heima. Hafði labbað með hann í Kringluna á Borgarbókasafnið í krakkahornið sem honum fannst mjög gaman. Fórum svo í Bónus og var því með tvo bónuspoka og sofandi barn í kerrunni og bý upp á annarri hæð í blokk og ekki vekur maður sofandi barn sem er að taka lúrinn sinn.. Þetta var ekki samkvæmt áætlun. Jú, ég panikaði smá en góð nágrannakona kom til bjargar og hjálpaði mér að bera allt heila klabbið upp stigana. (Síðan svaf hann nú bara í 40 mín svo amman var dáldið þreytt þennan dag.)
Social vikunnar hefur nú ekki verið mikið þessa vikuna. Anna Lára mín kom í heimsókn á mánudaginn sem bjargaði deginum. Hún er svo yndisleg og hjálpaði mér með Styrmi. Kemur í ljós að hún er sannkallaður barnahvíslari og mátti meira að segja skipta á honum. Hann er nú aldrei ánægður með ömmu sína þegar kemur að bleyjuskiptum. Hitti Art of yoga fólkið aftur í gær sem var æði. Við töluðum saman nokkur eftir tímann, mjög notalegt. Á leiðinni niður stigann var ég að tala við tvo menn. Við vorum að djóka með hvað tíminn hefði verið langur, mjög fyndið. Er líka að fara hitta stelpurnar í sjósund á eftir svo þetta er nú alveg eitthvað social.
Málið er að mig vantar eitthvað svona borgandi skemmtilegt verkefni þar sem ég hitti fólk. Hvað gæti það verið?
Namaste
No comments:
Post a Comment