Friday, January 30, 2026

Janúar að klárast

 Um leið og ég hef elskað þennan janúar er líka alveg kominn tími á meiri birtu og þar með meiri orku.

Hef verið óvenju þreytt þennan janúar. Óvenju glöð líka sem er skýtið því vanalega finnst mér janúar erfiður. Það var ofboðslega erfitt að komast aftur í rútínu eftir hátíðarnar, hver sem sú rútína er. Hef haft það að aðalmarkmiði að mér líði vel og að taugakerfinu mínu líði vel og það hefur tekist að mestu. Er komin með á heilann að ég þurfi að fara vinna. Hef trú á að það takist á þessu ári. Er nú búin að tala um þetta í langan tíma núna. Málið er bara að ég er neurodivergent og ég get bara ekki verið einhversstaðar. 8 tímar hljómar eins og að labba Everest fyrir mig. Ég þarf alltaf að gera smá, taka hvíld. Gera aftur smá og taka hvíld. 

Verkefni vikunnar var að gera salat. Hef ekki gert neitt í eldhúsinu í lengri tíma þar sem Guðrún Halla sér um kvöldmatinn. Þetta var uppskrift sem ég sá á tiktok og tók alveg klukkutíma. Rauðlaukur, egg, tómatar, agúrka, túnfiskur og svo dressing með grískri jógúrt. Þetta var allt í lagi. Bragðaðist best fyrsta daginn svo ekki það vel.

Hápunktur vikunnar var hrós frá góðum kúnna í nuddinu. Það er svo gott að vita að maður hefur gert eitthvað rétt í þessu lífi og látið manneskju líða betur. 

Lágpunktur vikunnar var þegar bíllinn fór í viðgerð. Hann er alveg í fokki. Skilst að málið sé að kaupa nýjan bíl! 

Framundan í dag er drum circle smá af því að ég hef ekkert annað að gera og langar að hitta fólk. 

All is well. 

Namaste

Friday, January 23, 2026

Munurinn ...

... á taugatýpísku og taugafjölbreyttu fólki.

Eins og ég minntist á í síðasta bloggi ætla ég að skutla hingað inn greininni sem birtist í smá stund á www.visir.is. Hún er þar ennþá ef þið setjið inn leitarorðið taugafjölb.. Sem sagt ekki pistill vikunnar eins og vanalega núna heldur bara greinin. Gjörið svo vel:

Þessi grein er um málefni sem snertir mig djúpt. Alla daga. Það er munurinn á taugatýpísku (neurotypical) fólki og taugafjölbreyttu (neurodivergent) fólki. Þessi munur snýst um skynjun og hvernig heilinn vinnur upplýsingar. Aðalatriðið er hvernig skóla- og vinnuumhverfi er í raun hannað fyrir taugatýpískt fólk og hvernig taugafjölbreytt fólk á erfitt með að aðlaga sig að því.

Taugatýpískt (neurotypical) fólk hefur hugsun og taugaþroska sem fellur að því sem samfélagið telur ”hefðbundið” eða algengast. Samskipti eru auðveld samkvæmt óskráðum félagslegum reglum, skynjun hljóðs, ljós o.s.frv. er yfirleitt innan ”meðaltals.” Þ.e.a.s. hljóð og birta truflar taugatýpískt fólk að meðaltali ekki. Skipulag, athygli og tilfinningastjórnun passa vel við skóla- og vinnuumhverfi. 

      Taugafjölbreytt fólk hefur heila sem vinnur á annan hátt en venjulegt þykir. Þetta getur falið í sér greiningar eða einkenni eins og einhverfu, ADHD/ADD, dyslexíu og aðrar námsraskanir, tourette, OCD eða aðra taugaþroskafræðilega fjölbreytni.

      Það sem er algengt hjá taugafjölbreyttu fólki er skynjun (t.d. mjög næm fyrir hljóði eða ljósi.) Hugsun getur verið mjög djúp, nákvæm eða skapandi. Þau geta átt erfiðara með óskráðar félagslegar reglur og þurfa oft aðlögun í skóla eða vinnu en hefur jafnframt styrkleika sem nýtast vel.

Það sem er mikilvægt að hafa í huga er að neurodivergence er hluti af mannlegri fjölbreytni, ekki sjúkdómur í sjálfu sér. Samfélagið er oft hannað fyrir neurotypical fólk, sem getur skapað hindranir. Margir neurodivergent einstaklingar hafa einstaka styrkleika (t.d. rýni, heiðarleika, sköpun, þrautseigju.)

·        Neurodivergent rófið er ansi vítt og breitt og einstaklingarnir innan þess ólíkir. Það er mín von og trú að neurotypical fólk skilji neurodivergent fólk betur og í framtíðinni sé tekið meira tillit til okkar í skólum og vinnuumhverfi öllu. Ég vil vitundarvakningu og að sérstaklega fagfólk og þeir sem vinna með fólki þekki muninn á taugatýpísku fólki og taugafjölbreyttu fólki.

Svava Ólafsdóttir

Heilsunuddari 

·       

Friday, January 16, 2026

Fékk hland ...

... fyrir hjartað tvisvar í vikunni. 

Merkilegt hvað það gerist stundum mikið á einni viku og tíminn flýgur. Aðrar vikur silast tíminn áfram.

Það var allt að gerast á miðvikudaginn. Þá kom hérna innanhúsarkitekt til að hræra aðeins meira í hausunum okkar. Þeir voru alveg nógu hrærðir fyrir sko. Færa eyjuna... já ok. Fór þennan sama dag í hth innréttingar til að koma pöntuninni á borðplötunni af stað. Það er allavegana eitthvað að gerast. Svanur kom líka með nýjan ofn í eldhúsið og helluborð með innbyggðri viftu á þriðjudaginn. Duglegur en það mætti svo sannarlega vera meiri gleði yfir þessu öllu saman. 

Hlandið kom þegar ég var búin að senda grein á visi.is og fékk svarið "tímastillt 10:30" frá Atla Ísleifssyni. Eins og það væru 2 min í sprengju. Lét vini mína á bluesky vita og fann góðar undirtektir nema að mér hafði tekist að rugla smá í byrjun og þurfti að biðja um leiðréttingu. Eins konar orðavíxl. 

Verkefni vikunnar var að koma okkur fram og tilbaka í sumar þegar Guðrún Halla er að fara keppa á Partille cup í Svíþjóð. Vil að við séum innan handar ef eitthvað kemur upp á. Líka vera til staðar. Auðvitað var selt upp í öll flug til Gautaborgar en tókst að fá flug til og frá Stokkhólmi. Svo þarf ég að fatta hvar við gistum..

Hápunktur vikunnar var að fá birta eftir mig grein á visi.is. Er samt dáldið fegin að hún fór fljótt af síðunni þar sem hún var ekki undir mest lesnu innsendu greinunum. Hún fjallar sem sagt um muninn á taugatýpísku fólki (neurotypical) og taugafjölbreyttu (neurodivergent.) Þið finnið hana undir leitarorðinu taugafjöl.. Svanur náttúrulega skildi ekkert í henni og Óli minn spurði hvort ég væri með þetta? 

Lágpunktur vikunnar var að eftir að greinin var birt sá ég að það voru tvær stafsetningarvillur í greininni. Lét vita og búið að laga en líka að ég vil ekki setja þetta á Facebook strax því að mér finnst eins og fólk bara skilji ekki. Kannski aðeins seinna þegar ég er búin af jafna mig á hlandinu fyrir.. þið vitið. Hjartanu.

Birti hana hér í pistli næstu viku. Læt það þá bara líklegast duga. Verð ekki með fasta liði eins og vanalega.

Namaste.

 

Friday, January 9, 2026

Virk..

 .. eða óvirk. Það er spurningin.

Þessi fyrsta vika ársins hefur verið skrýtin. Mjög erfitt að koma sér aftur í rútínu og í takt við aðra sem labba í takt og hafa orku til þess. Yoginn í mér leyfir mér að taka því rólega því það er svo sannarlega það sem ég þarf í janúarmyrkrinu og frostinu. Þarf mikinn svefn og óvenju mikla hvíld. Hef lært að það borgar sig að hlusta á líkamann og það er það sem ég er að gera. Skrýtið hvernig aðrir vilja líka ekki bara hvíla sig?

Kaosið gerði margar tilraunir til að ná mér í vikunni. Það er erfitt að búa í íbúð sem er hálfgert kaos með tveimur eldhúsum og með fólki sem það virðist ekki hafa nein áhrif á. Svanur talar um að það sé maður að koma varðandi baðherbergið.. ég veit ekkert hvað það þýðir. Þarf ég að flytja út aftur? Það er allavega guðs lukka að það myndi líklegast ganga upp. 

Hugsa daglega til rólegrar náttúru þar sem enginn er nema náttúran og ég og rigningin. Það sem er í hrópandi mótsögn við það er að ég er komin í hóp annarra mæðra sem erum bekkjarfulltrúar. Óvenju kröftugur hópur, það er að segja þær. Ég er bara hérna introvertinn sem hræðist fjöldasamkomur. 

Verkefni vikunnar var að koma jólaskrautinu niður í geymslu. Það tókst en auðvitað er einn jólalegur diskur sem gleymdist sem þýðir að ég þarf að fara aftur niður í geymslu þegar ég er zenuð og ná í stóra þunga kassann sem auðvitað er á efstu hillunni til að bæta þessum eina hlut í hann.

Anyways, hápunktur vikunnar var í gær þegar ég komst óvænt í stuð við að heyra Herra hnetusmjör í bílnum. Tuddastuð sem það hlýtur að vera að vera á tónleikum með honum:)

Lágpunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar kaosið gerði atlögu að mér úr öllum áttum. Ég hafði gert to do lista um morguninn sem ég var að sinna. Þurfti að gera ákveðinn hlut sem ég ætlaði að gera þegar ... Svanur bað mig að vinna í tölvunni fyrir fyrirtækið ... you guessed it, allt í einu og núna. Það er alltaf þannig. Á sama tíma kom barnið með alls konar fyrirspurnir varðandi alls konar. Svanur var að tala um þrjá mismunandi hluti á sömu mínútunni og já, eitt af þeim var að sjálfsögðu borðplatan í eldhúsið. Þetta er orðið svo vandræðalegt að ég vil ekki tala um það. Allan tímann var ég að hugsa um það sem ég ætlaði að gera til að byrja með. Á þeim tímapunkti átta ég mig á að ég var að fá tölvupóst sem var fyrirspurn um vinnu?! Var einmitt nýkomin heim af fundi með ráðgjafanum frá Virk þar sem við vorum að ákveða dáldið leyndó.

Kaosið náði mér ekki. Það er gott. Það væri kannski ekki slæm hugmynd að fara út á Álftanes til að forðast það í næstu viku. Hver veit hvort það gerist? Ekki ég allavegana,

Namaste vinir.


Friday, January 2, 2026

Rútína hvað?!

 Jæja,

á þessum bæ er svo mikið frí að halda mætti að húsfrúin væri að vakna upp úr einhvers konar roti. Í gær, nýársdag, var eins og við værum í fríi allra fría og fórum í langan göngutúr á Gróttu. Dásamlega fallegt! Sólsetrið var einstaklega yndislegt. Allt var lokað auðvitað eins og vera ber á nýársdegi og við horfðum á lokaþáttinn af Stranger things sem kom út í gær. 2ja klukkutíma þáttur!

Í morgun var eins og ég væri að vakna upp af roti. Mér brá mikið þegar ég sá að klukkan var orðin 10! Frekar óþægilegt að vakna svona seint. Var í nokkra klukkutíma að finna taktinn í þessum öðrum degi árins 2026. Óþægilegt að fatta að það var eins og ég hafi sofið af mér almennar mannlegar skyldur eins og að borga reikninga og svona. Fattaði það allt í einu að ég hafði ekkert kíkt inn á einkabankann í fríinu. Úps! Fattaði ekki einu sinni að það væri föstudagur í morgun. Að einhverju leyti reyndar en ekki öllu. Gleymdi til dæmis að blogga í morgun. Það er kannski það jákvæða við þetta að eitthvað hefur manni tekist að slappa af!

Verkefni vikunnar var að mála forstofuna. Það tókst með herkjum þar sem Svanur hafði í miklu að snúast þann 30. des. Fór í margar búðir til að finna nýárs kvöldmatinn og svo komu jú óvænt rúm 40 kg af kjöti að norðan sem kostaði auka snúninga eins og að kaupa óvænt frystikistu nokkrar mínútur í lokun. 

Hápunktur vikunnar voru sjálf áramótin. Mér fannst gaman að klæða mig upp og mála mig og vera fín. Árlega áramótaboðið hjá foreldrum mínum er alltaf með sama sniði en fjöldinn hefur breyst. Þetta var skemmtilegt boð og ykkar kona í stuði.

Lágpunktur vikunnar var þegar ég gerði asnalegan hlut. Jú, ég skammast mín. Já, ég geri asnalega hluti stundum en hey! Þú lifir og þú lærir. Sá sem sagt á tiktok svona trend hvernig kínversk leikfimi kemur aldeilis sogæðavökvanum af stað og jú er svo einstaklega orkugefandi og grennandi. Þetta var svona hoppa upp og niður 50 sinnum og fleiri æfingar eins og að sveifla höndunum alls konar og fleiri æfingar. Í mínu tilviki hafði þetta þau áhrif að ég hélt að ég væri að fá fyrir hjartað og líka blóðtappa í kálfann. Þvílíka veislan að vera að googla: blóðtappi í kálfa á þorláksmessu. Það þurfti hana Sophiu mína nálastungukonu og hjúkrunarkonu til að segja mér að snarhætta þessu meðþví sama. Æfingunum það er að segja. Viti menn, mér líður betur en ansi harður biti að kyngja að ég sé of gömul fyrir þessar æfingar. Ái. Já og heldur ekki í formi fyrir þær. Ái.

Oh well,

Gleðilegt nýtt ár elskurnar!