Friday, January 16, 2026

Fékk hland ...

... fyrir hjartað tvisvar í vikunni. 

Merkilegt hvað það gerist stundum mikið á einni viku og tíminn flýgur. Aðrar vikur silast tíminn áfram.

Það var allt að gerast á miðvikudaginn. Þá kom hérna innanhúsarkitekt til að hræra aðeins meira í hausunum okkar. Þeir voru alveg nógu hrærðir fyrir sko. Færa eyjuna... já ok. Fór þennan sama dag í hth innréttingar til að koma pöntuninni á borðplötunni af stað. Það er allavegana eitthvað að gerast. Svanur kom líka með nýjan ofn í eldhúsið og helluborð með innbyggðri viftu á þriðjudaginn. Duglegur en það mætti svo sannarlega vera meiri gleði yfir þessu öllu saman. 

Hlandið kom þegar ég var búin að senda grein á visi.is og fékk svarið "tímastillt 10:30" frá Atla Ísleifssyni. Eins og það væru 2 min í sprengju. Lét vini mína á bluesky vita og fann góðar undirtektir nema að mér hafði tekist að rugla smá í byrjun og þurfti að biðja um leiðréttingu. Eins konar orðavíxl. 

Verkefni vikunnar var að koma okkur fram og tilbaka í sumar þegar Guðrún Halla er að fara keppa á Partille cup í Svíþjóð. Vil að við séum innan handar ef eitthvað kemur upp á. Líka vera til staðar. Auðvitað var selt upp í öll flug til Gautaborgar en tókst að fá flug til og frá Stokkhólmi. Svo þarf ég að fatta hvar við gistum..

Hápunktur vikunnar var að fá birta eftir mig grein á visi.is. Er samt dáldið fegin að hún fór fljótt af síðunni þar sem hún var ekki undir mest lesnu innsendu greinunum. Hún fjallar sem sagt um muninn á taugatýpísku fólki (neurotypical) og taugafjölbreyttu (neurodivergent.) Þið finnið hana undir leitarorðinu taugafjöl.. Svanur náttúrulega skildi ekkert í henni og Óli minn spurði hvort ég væri með þetta? 

Lágpunktur vikunnar var að eftir að greinin var birt sá ég að það voru tvær stafsetningarvillur í greininni. Lét vita og búið að laga en líka að ég vil ekki setja þetta á Facebook strax því að mér finnst eins og fólk bara skilji ekki. Kannski aðeins seinna þegar ég er búin af jafna mig á hlandinu fyrir.. þið vitið. Hjartanu.

Birti hana hér í pistli næstu viku. Læt það þá bara líklegast duga. Verð ekki með fasta liði eins og vanalega.

Namaste.

 

No comments: