Jæja,
á þessum bæ er svo mikið frí að halda mætti að húsfrúin væri að vakna upp úr einhvers konar roti. Í gær, nýársdag, var eins og við værum í fríi allra fría og fórum í langan göngutúr á Gróttu. Dásamlega fallegt! Sólsetrið var einstaklega yndislegt. Allt var lokað auðvitað eins og vera ber á nýársdegi og við horfðum á lokaþáttinn af Stranger things sem kom út í gær. 2ja klukkutíma þáttur!
Í morgun var eins og ég væri að vakna upp af roti. Mér brá mikið þegar ég sá að klukkan var orðin 10! Frekar óþægilegt að vakna svona seint. Var í nokkra klukkutíma að finna taktinn í þessum öðrum degi árins 2026. Óþægilegt að fatta að það var eins og ég hafi sofið af mér almennar mannlegar skyldur eins og að borga reikninga og svona. Fattaði það allt í einu að ég hafði ekkert kíkt inn á einkabankann í fríinu. Úps! Fattaði ekki einu sinni að það væri föstudagur í morgun. Að einhverju leyti reyndar en ekki öllu. Gleymdi til dæmis að blogga í morgun. Það er kannski það jákvæða við þetta að eitthvað hefur manni tekist að slappa af!
Verkefni vikunnar var að mála forstofuna. Það tókst með herkjum þar sem Svanur hafði í miklu að snúast þann 30. des. Fór í margar búðir til að finna nýárs kvöldmatinn og svo komu jú óvænt rúm 40 kg af kjöti að norðan sem kostaði auka snúninga eins og að kaupa óvænt frystikistu nokkrar mínútur í lokun.
Hápunktur vikunnar voru sjálf áramótin. Mér fannst gaman að klæða mig upp og mála mig og vera fín. Árlega áramótaboðið hjá foreldrum mínum er alltaf með sama sniði en fjöldinn hefur breyst. Þetta var skemmtilegt boð og ykkar kona í stuði.
Lágpunktur vikunnar var þegar ég gerði asnalegan hlut. Jú, ég skammast mín. Já, ég geri asnalega hluti stundum en hey! Þú lifir og þú lærir. Sá sem sagt á tiktok svona trend hvernig kínversk leikfimi kemur aldeilis sogæðavökvanum af stað og jú er svo einstaklega orkugefandi og grennandi. Þetta var svona hoppa upp og niður 50 sinnum og fleiri æfingar eins og að sveifla höndunum alls konar og fleiri æfingar. Í mínu tilviki hafði þetta þau áhrif að ég hélt að ég væri að fá fyrir hjartað og líka blóðtappa í kálfann. Þvílíka veislan að vera að googla: blóðtappi í kálfa á þorláksmessu. Það þurfti hana Sophiu mína nálastungukonu og hjúkrunarkonu til að segja mér að snarhætta þessu meðþví sama. Æfingunum það er að segja. Viti menn, mér líður betur en ansi harður biti að kyngja að ég sé of gömul fyrir þessar æfingar. Ái. Já og heldur ekki í formi fyrir þær. Ái.
Oh well,
Gleðilegt nýtt ár elskurnar!



No comments:
Post a Comment