Leitin að jólunum var löng í ár.
Troðfullar verslunarmiðstöðvar. Ekki þar. Grátt veður. Ekki þar. White lotus Mama. Bingo!
Það þurfti ókapitalíska cacao seremoniu, möntrur og jólalög í besta félagsskapnum fyrir þessa mömmu (og ömmu) að finna jólaandann í ár. Það var eitthvað við rónna og rólega gleðina sem gerði það að verkum að jólaandinn kom yfir mig og sýndi mér hvað skipti máli.
Emilía kom og var með okkur á aðfangadag. Það voru jólin og hinn sanni jólaandi. Mér varð hugsað til þeirra sem eru einir á jólunum. Hringdi í eina þeirra. Það er jólaandinn. Þessi hátíð missir alltaf aðeins marks í öllum kapitalismanum. Þakklát fyrir að hafa fundið hvað það er sem skiptir máli í þessari veröld.
Verkefni vikunnar var jólahátíðin.
Hápunktur vikunnar var í gær í Heiðmörk. Sá mosann og náttúruna í rigningunni og Mmmm...
Lágpunktur vikunnar var líka í gær í Heiðmörk. Það á víst að loka veginum að uppáhalds staðnum! Bömmer
Heilög jól
Heimsum ból
Signuð mær
son Guðs ól.
Gleðileg jól kæru lesendur. Blessi ykkur öll.
Namaste.

No comments:
Post a Comment