Friday, February 27, 2026

as within so without

Þetta var úr fyrstu sjálfshjálparbókinni sem ég las. Bókin var Hámarksárangur eftir Brian Tracy. Geggjuð bók. Var hugsað til þess sem þar segir meðal annars um hvernig ytri raunveruleiki manns endurspeglar hinn innri. Sem sagt sá sem líður vel og er með allt á hreinu og allt er í fína bína er með allt í röð og reglu. Bíllinn er ekki með neinu drasli inní, heimilið manns er hreint og allt er í ró vegna þess að það er staður fyrir hvern hlut.


Núna erum við búin að vera í framkvæmdum frá því í október og eins og til dæmis í gær upplifði ég að allt væri bókstaflega á hvolfi. Svanur vill jú gera hlutina vel og var því að hræra flísalíminu eða hvað sem þetta heitir með risahræru í risafötu með risavatnsmælidóti. Þeir voru tveir að klára að flísalegga á milli efri skápa og borðplötunnar í nýja eldhúsinu. Allt á hvolfi og búið að vera lengi og hausinn minn eftir því. Átti von á gestum og var undir þrýstingi að mér fannst að færa allt úr gamla eldhúsinu yfir á no time. Það er sem sagt maður að koma á laugardaginn til að taka gamla eldhúsið niður.

Fékk einhvern kvíða og varð bara voða lítil allt í einu. Hún Hólmfríður á bókasafninu sá það kannski. Góð kona. Bíllinn var búinn að vera bilaður í nokkrar vikur svo ég var bíllaus og það var mér einhvern veginn ofviða að fara niðrí bæ og labba með göngufélaganum. Það var líka veður og vatnspollar út um allt. Í fyrsta skipti frá því ég byrjaði í þessu verkefni cancelaði ég hittingnum. Bara var ekki að meika neitt. Langaði að tala við Brian um að ég geti lítið að því gert að hausinn sé á hvolfi vegna þess að íbúðin sé að hvolfi. Það var ekki ég sem ákvað að taka baðherbergið líka!

Það er líka merki um öldrun að það að allt í einu hafi vetur skollið á og mín vildi bara vera heima í örygginu. Svo komu þau, blessað fólkið mitt og hjálpuðu okkur að færa ísskápinn yfir. Katrín, þessi kjarnakona, endurraðaði í ísskápinn svo úr varð betra skipulag. Þvílíkur snillingur. Styrmir minn er botnlaus um þessari mundir. Hesthúsaði í sig skál af bláberjum (sem amma passar að eiga alltaf þegar hann kemur) og smá skyri og svo áttum við langar samræður um mat. Allt frekar dúllulegt. Töluðum mikið um að Styrmir mætti ekki alveg strax fá hnetur, hann er ennþá tveggja að verða þriggja. Hann er svo klár og skyldi þetta fullkomlega. Úr varð að hann fékk nokkur trönuber úr hnetumixinu. Hjartað mitt.

Namaste.


Friday, February 20, 2026

Kaosið ...

 ... náði mér í gær.

Jú, mikill árangur búinn að nást í íbúðinni í vikunni. Svani tókst að láta vatn renna út úr veggnum inní stofu. Sem sagt eldhúsinnréttingin nýja í stofunni er farin að virka. Það kostaði samt einhvern part af geðheilsunni minni. Hér er allt á rúi og stúi og hausinn minn er ekki að höndla það mjög vel. Er farin að dreyma drauma þar sem ég kemst ekki út úr húsum vegna þess að ég finn ekkert og það er of mikið af dóti út um allt. 

Jú, Svanur er mjög duglegur að gera þetta allt en ... það eru flísar út um alla íbúð og við erum ennþá að tannbursta okkur við eldhúsvaskinn. Mér finnst smá sorglegt að við séum að fara gera það í nýja eldhúsinu líka. Væri gríðarlega þakklát ef baðherbergið myndi vera eðlilegt. Með vaski með hillum undir fyrir handklæðin og nýrri sturtu. Hef samt enga þolinmæði fyrir enn fleiri ókunnugum karlmönnum í íbúðinni. Hér voru tveir menn frá Lettlandi allan miðvikudaginn frá kl. 08:40 til 18:00. Mér fannst smá sætt að þeir voru að hlusta á útvarp eða sögur frá heimalandi sínu á lettnesku. Auðvitað. Myndi ég ekki gera það sjálf í útlöndum?

Það bætti enn frekar á kaosið í gær að það var vetrarfrí hjá krökkunum, allir heima, allt á hvolfi og ég hafði líka hluti að gera. Var að fara á námskeið hjá Virk en ég þurfti líka að fara og kaupa flísar í nýja eldhúsið, á millivegginn. Mikið er ég fegin að það er búið. Ég elska ekki búðir. 

Verkefni vikunnar var ... ha? Ég get varla hugsað heila hugsun með heimilið svona. Er með nokkur mjög auðveld verkefni sem gerast bara ekki því ég hef ekki orkuna í þau. 

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar mennirnir frá Lettlandi voru farnir. Rosalega góð mynd komin á nýja eldhúsið og Svanur og Guðrún Halla fóru í Costco og Stefán var einhvers staðar og allt í einu var ég EIN HEIMA. Það hefur sjaldan verið eins og gott að vera ein heima. Fékk svo mikla yfirþyrmandi vellíðunartilfinningu að ég get ekki fyllilega lýst henni. Horfði EIN á Heated rivalry af því að þessir þættir eru þannig að maður þarf að horfa einn á þá. Smá dónó. Ok, fullt.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar kaosið náði mér. Var komin með kvíðahnút í magann yfir öllu stressinu í manninum. Flísarnar þurftu að skila sér heim. Ég þurfti að fara á námskeið. Tók rosalega margar öndunaræfingar í gær. Öskraði í bílnum stressuð. Þurfti að segja nei við Óla um að koma í mat. Kaosið var of mikið. Komst blessunarlega í yoga þar sem kvíðahnúturinn leystist blessunarlega upp. Dreymdi rosalega raunverulegan og erfiðan draum sem var um fimmtugsafmælið mitt. Ég hafði gleymt að bjóða Tinnu vinkonu, hafði bara boðið Siggú. Svo var veislan í gangi einhvers staðar í einbýlishúsinu sem við vorum í (samt ekki hjá foreldrum mínum) og ég var bara ein í bömmer yfir að hafa gleymt að bjóða Tinnu og var allan tímann að spá hvort ég gæti sent henni sms um að koma. Fattaði samt að það var dónalegt en æ, hún er svo spontant alltaf. Úff, erfitt. Myndi aldrei gleyma að bjóða Tinnu í afmælið mitt. 

Vaknaði svo og engin hugsun kom. Ég er á survival mode. 

Namaste.


Friday, February 13, 2026

Þögn..

 .. er gulls ígildi og allt það en.. 

Hún getur líka verið mjög óþægileg. Eins og þegar einhver sem manni er annt um svarar ekki í símann í þrjár vikur. 

Lífið er svo mikið yin og yang, svart og hvítt, upp og niður, norður og suður. Jú, það á að vera þannig því eitt getur ekki lifað án hins en samt. 

Vikan var fín. Er búin að hreyfa mig á hverjum degi sem er líklegast ástæðan fyrir því að mér hefur liðið vel. 

Af hverju er þetta blogg sett upp í tveimur setningum og svo bil? Veit það ekki.

Verkefni vikunnar var CV eða Curriculum Vitae eins og ég lærði hjá enskukennara í MH. Fann eitt frá því í fyrra sem gengur alveg ennþá. Einhvern veginn hefur það orðið google docs eða pdf þannig að ég get ekki breytt því. Það er allt í lagi því ég er víst að fara á sérstaka vinnustofu í næstu viku á vegum Virk þar sem við lærum og gerum CV og kynningarbréf. 

Hápunktur vikunnar var gott foreldraviðtal með kennaranum hennar Guðrúnar Höllu. Kemur í ljós að Guðrún Halla er búin að brillera og fær bara tíur. Kristín kennari hrósaði henni í hástert, sýndi mér próf þar sem hún fékk 100% og talaði um hvað hún væri mikill fyrirmyndar nemandi og góður leiðtogi og ég veit ekki hvað og hvað. Minntist á hvað hún væri kurteis við alla sérstaklega. Ég er einstaklega stolt mamma. 

Lágpunktur vikunnar er sú staðreynd að hin dóttirin er ekkert búin að svara í síma í margar vikur núna. Það getur ekki verið gott. Ég bauð henni í nudd, eitthvað sem hún svarar vanalega, en nei. Ekkert. Mjög óþægilegt allt saman. Hef ekki kynnst öðru eins ef ég á að vera alveg hreinskilin. 

Bömmer

Namaste.

Friday, February 6, 2026

Einhvers staðar..

 ... er retreat sem ég á að vera á.

Fékk yfirþyrmandi tilfinningu í vikunni að ég þyrfti að koma mér í burtu en hafði ekki orku til að aðhafast eitthvað í því. Sá mjög mikinn mun á birtunni samt í vikunni þegar kona sem kemur til mín mánaðarlega kl. 16:30 kom og birtan hélst allt nuddið. Það er eitthvað! (Ég hef alltaf gluggatjöldin frá á Suðurlandsbrautinni til að horfa á fjöllin og fuglana og Esjuna og fellið í Mosfellsdal.) 

Verkefni vikunnar var að kaupa plöntur. Gat bara ekki leyft íbúðinni að vera með eina slappa plöntu (tvær reyndar.) Fór því og keypti mánagull og mánasilfur og einhvers konar indíánaplöntu. Varð að gera eitthvað fyrir þessa blessuðu íbúð sem er bara í framkvæmdafrosti þar til borðplatan kemur (í næstu viku vonandi.)

Hápunktur vikunnar var kannski bara í gær þegar ég var að sjálfboðaliðast. Það er svo gott að gefa til samfélagsins. Ef þetta gæti verið vinnan mín væri það awesome.

Lágpunktur vikunnar var að þurfa að segja nei aftur og aftur við unglingana mína. Finn á mér að þetta er bara byrjunin og við tekur nokkurra ára unglingasuð. Stefán er búin að bögga mig vegna bílsins og Guðrún Halla vill fara erlendis með vinkonu sinni um páskana. 

Þessi mamma (bendi á mig) þarf að komast í burtu. Yoga retreat í Tælandi hljómar vel..

Hef nú ekki mikið meira að segja svona í morgunsárið. Við ætlum í leikhús í kvöld. Það verður held ég í eina skiptið sem ég sé fólk í dag. Þetta er svona frekar einmanalegt líf sem ég lifi um þessar mundir. Amma Svava þarf reyndar að skipta um barnabílstól og það er svo skrítið að eins lítið og ég hef að gera er ég að ströggla við að koma því inn í dagskrána í næstu viku. Fer kannski á eftir og skila gamla. 

Húha.

Namaste vinir.