Þetta var úr fyrstu sjálfshjálparbókinni sem ég las. Bókin var Hámarksárangur eftir Brian Tracy. Geggjuð bók. Var hugsað til þess sem þar segir meðal annars um hvernig ytri raunveruleiki manns endurspeglar hinn innri. Sem sagt sá sem líður vel og er með allt á hreinu og allt er í fína bína er með allt í röð og reglu. Bíllinn er ekki með neinu drasli inní, heimilið manns er hreint og allt er í ró vegna þess að það er staður fyrir hvern hlut.
Núna erum við búin að vera í framkvæmdum frá því í október og eins og til dæmis í gær upplifði ég að allt væri bókstaflega á hvolfi. Svanur vill jú gera hlutina vel og var því að hræra flísalíminu eða hvað sem þetta heitir með risahræru í risafötu með risavatnsmælidóti. Þeir voru tveir að klára að flísalegga á milli efri skápa og borðplötunnar í nýja eldhúsinu. Allt á hvolfi og búið að vera lengi og hausinn minn eftir því. Átti von á gestum og var undir þrýstingi að mér fannst að færa allt úr gamla eldhúsinu yfir á no time. Það er sem sagt maður að koma á laugardaginn til að taka gamla eldhúsið niður.
Fékk einhvern kvíða og varð bara voða lítil allt í einu. Hún Hólmfríður á bókasafninu sá það kannski. Góð kona. Bíllinn var búinn að vera bilaður í nokkrar vikur svo ég var bíllaus og það var mér einhvern veginn ofviða að fara niðrí bæ og labba með göngufélaganum. Það var líka veður og vatnspollar út um allt. Í fyrsta skipti frá því ég byrjaði í þessu verkefni cancelaði ég hittingnum. Bara var ekki að meika neitt. Langaði að tala við Brian um að ég geti lítið að því gert að hausinn sé á hvolfi vegna þess að íbúðin sé að hvolfi. Það var ekki ég sem ákvað að taka baðherbergið líka!
Það er líka merki um öldrun að það að allt í einu hafi vetur skollið á og mín vildi bara vera heima í örygginu. Svo komu þau, blessað fólkið mitt og hjálpuðu okkur að færa ísskápinn yfir. Katrín, þessi kjarnakona, endurraðaði í ísskápinn svo úr varð betra skipulag. Þvílíkur snillingur. Styrmir minn er botnlaus um þessari mundir. Hesthúsaði í sig skál af bláberjum (sem amma passar að eiga alltaf þegar hann kemur) og smá skyri og svo áttum við langar samræður um mat. Allt frekar dúllulegt. Töluðum mikið um að Styrmir mætti ekki alveg strax fá hnetur, hann er ennþá tveggja að verða þriggja. Hann er svo klár og skyldi þetta fullkomlega. Úr varð að hann fékk nokkur trönuber úr hnetumixinu. Hjartað mitt.
Namaste.


No comments:
Post a Comment