
Excellent.
Fórum í Bláa lónið í dag og mikið afskaplega var það notalegt! Ég man ekki alveg hvenær ég fór síðast í Bláa lónið en mikið ofboðslega er það miklu flottari núna, í alla staði, en þegar ég fór síðast. Mér fannst þjónustan vera góð, það var þarna strákur í deskinu þegar við komum sem útskýrði alveg fyrir okkur hvernig þetta skápasystem virkar og svaraði öllum mínum spurningum vel og skilmerkilega.
Aðstaðan í búningsklefanum var hreint út sagt ævintýraleg þetta er svo flott. Ok, maður borgar náttúrulega 1800 kr. á kjaft (ókeypis fyrir börn) en samt, mér finnst þetta virkilega smart aðstaða. Það hefðu reyndar mátt vera færri konur í búningsklefanum þegar ég kom upp úr - ég
þoli ekki þegar aðrar konur stara á mig í búningsklefum! "Já, ég er kasólétt, get over it" - en fyrir utan það var allt tip top. Það var meira að segja gaman að fara á klóið og það var æðislegt að fara í sturtu! Mér fannst þetta vera svo smart og lekkert. Ég gat meira að segja lokað að mér í sturtunni! Þvílíkur lúxus:) Það þyrfti reyndar að mínu mati að vera þannig aðstaða í
öllum búningsklefum þar sem sú staðreynd að flestar útlenskar konur eru fáránlega spéhræddar og vilja alls ekki baða sig naktar fyrir framan aðrar konur er jú einmitt
staðreynd sem er ekkert að hverfa. Svo að bara for sanitary sake þá þyrftu baðaðstöður á öllum opinberum stöðum að bjóða upp á fjölda lokaðra sturtna. Come to think about þá finnst mér bara annað fáránlegt.
Anyways, mér fannst lónið bara virkilega nice, ég hafði ekki áttað mig á því hvað það er fín aðstaða í lóninu til að slaka á eftir baðferðina. Allaveganna, það var virkilega notalegt að vera í sjálfu lóninu, það kom mér reyndar á óvart hvað það var mikið salt í vatninu en hárið á okkur er ekkert weird eða neitt eftir þessa stórkostlegu baðferð eins og ég man eftir að gerðist stundum þegar ég fór þegar ég var yngri. Svo er psoriasis-ið hans Óla miklu betra:) Reyndar akkúrat daginn áður en ég fer með hann til húðsjúkdómasérfræðings en.. það verður bara að hafa það að hún fái skekkta mynd af ástandinu..
Annars vil ég ljúka þessari færslu á að lýsa undrun minni og hneykslan yfir örlögum náttúruperlna Íslands. Þetta eru bara túristapleis! So sad. Mér fyndist einhvern veginn eðlilegra að börnin okkar myndu frekar alast upp við að fara á t.d. Þingvelli og Bláa lónið um helgar heldur en Kringluna og Smáralind og Ikea. En í staðinn þá eru þessar náttúruperlur okkar Íslendinga orðnar að pjúra túristapleisum. Það voru
ekkert nema útlendingar í Bláa lóninu (nema starfsfólkið) og það voru
ekkert nema útlendingar á Þingvöllum þegar við fórum þangað um síðustu helgi.
Og það eru ekkert nema Íslendingar að versla og versla og versla í Smáralind og Kringlunni og Ikea á sínum endalausa bílaflota svo vart er laust stæði.
Arg.
There is something so very wrong about this picture..