Friday, May 23, 2008

Yes!!!


Mikið ofboðslega er ég ánægð að við komumst áfram í Eurovision!!

Ég er nú enginn Eurovision fanatic eins og sumir (nefni engin nöfn) en ég komst bara í virkilegt keppnisskap í gær og þjóðerniskenndin blossaði upp... Ég fékk bara gæsahúð og læti þegar lagið okkar kom. Sjónvarpið var reyndar í botni og ég og Siggú að fíla okkur eins og okkur er einum lagið.. Það kom í ljós að ég kunni bara textann og alles!

Svo var ég varla að meika að horfa á úrslitin ég var svo spennt. Þetta var bara Trivial Pursuit all over. Það er svoooo sárt að tapa en lengst inni í manni blundar alltaf vonin..

Og það var svo gaman að komast áfram:) Jei!!!

No comments: