Friday, May 9, 2008

wtf

Eitthvað er ég ekki að fíla 24 stundir, fréttablað Morgunblaðsins þessa dagana. Ég er reyndar alveg að fíla blaðið en ég veit að það er nýbúið að ráða nýjan ritstjóra og eitthvað líst mér illa á forgangsröðunina á aðalfréttum dagsins á forsíðunni. O sei sei..

Tvisvar sinnum í þessari viku - TVISVAR - hefur aðalfréttin á forsíðunni verið að loka á elliheimilinu á Þingeyri í Dýrafirði í fjórar vikur í sumar, tveimur vistmönnum þess til mikils ama. Það á víst að færa þau yfir á elliheimilið á Ísafirði í þessar fjórar vikur sem starfsfólkið er í sumarfríi af sparnaðarástæðum, þ.e.a.s. í stað þess að ráða afleysingarmanneskju í þeirra stað. Já, þau eru hundsvekkt yfir þessu þessi tvö gamalmenni og annað þeirra, Camilla einhver, er hrædd um að hún fái þunglyndi aftur af öllum þessum flutningum og breytingum og það vill hún alls ekki. Ég sá neblilega líka viðtalið við þessa kellu í fréttunum.

HALLÓ!! Er í alvörunni ekkert merkilegra í fréttum sem á heima sem aðalfrétt á forsíðunni??!! Enginn skandall varðandi ráðningu Jakobs Frímanns sem verkefnisstjóra í Ráðhúsinu til dæmis, err yfir 100.000 manns LÉTUST í kjölfar fellibyls í Búrma og þar ríkir algert neyðarástand, emm kennari í HR hefur verið dæmdur fyrir kynferðisafbrot...

Allt í lagi að leyfa þessum tveimur hræðum á Þingeyri að njóta þess að vera aðalfréttin á forsíðunni einu sinni í þessari viku, en tvisvar.. Surely, það bara hlýtur að vera eitthvað meira að moða úr en þetta..

No comments: