
Mikið ofboðslega er ég ánægð með hana Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra.
Hún stendur sig svo vel og hefur alltaf gert. Hún er vinur litla mannsins, þolir ekki ójöfnuð og óréttlæti og gerir alltaf eitthvað í því, þ.e.a.s. hún framkvæmir, breytir hlutunum. Lætur menn ekki komast upp með neitt kjaftæði.
Enda er hún líka sá ráðherra sem hefur aldrei verið með neitt kjaftæði. Það er aldrei neitt bull í kringum Jóhönnu. Hún er gjörsamlega og algjörlega samkvæm sjálfri sér og breytir röngu í rétt. Enda jafnaðarmanneskja af húð og sál.
Jóhanna, þú ert uppáhalds ráðherrann minn:)
No comments:
Post a Comment