Sunday, December 26, 2010

hooked...

... on Stieg Larsson.

Sem er tímafrekt en æðislegt:) Tímafrekt af því að ég er "slow reader" og hef lítinn tíma til að lesa (er svona tvo mánuði með eina af þessum bókum; 500+ bls.) en æðislegt af því að ég dýrka þessar bækur. Ég get nú ekki kvartað yfir því hvað ég er lengi með bækurnar þar sem það þýðir að get notið þeirra lengur. Það er kannski aðallega það að aðrar bækur verða að bíða á meðan.. Ég tek Stieg Larsson bækurnar á bókasafninu og hef tvo mánuði til að lesa eina þar sem maður má framlengja einu sinni mánaðarleigu.)

Núna er ég á bók nr. 2 í þrenningunni/tríólógíunni. Stúlkan sem lék sér að eldinum heldur mér á tánum.

Maður elskar kvennabósann og rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist af ýmsum ástæðum og hún þessi Lisbeth Salender... hún er engum lík og það liggur við að maður sé smá skotin í henni líka... Maður vill allaveganna ekki að neitt slæmt hendi hana.














and I will keep on reading.

I love 2010

Verð að segja að mér þykir miður að árið 2010 sé senn á enda. Ég elskaði þetta ár alveg frá fyrsta degi þegar ég sá hvað 010110 look-aði vel.

Ég var alveg dolfallin, mér fannst þessar dagsetningar vera svo geggjaðar, svo flottar og elegant. Svo finnst mér þetta ár bara hafa verið frábært, I must say. Þetta er með betri árum sem ég hef átt hreinlega, allt hefur gengið upp og allt hefur verið eins og það á að vera.

Ef ég gæti faðmað daga þá mundi ég faðma þessa daga sem eftir eru af árinu 2010 með tregafullum söknuði í hjarta og sinni. Mér líður bara eins og það komi ekki eins flott ár og 2010. Hvaða ár gæti hugsanlega look-að betur?

2011. Hmmm... er frekar skeptísk á það. 010111 er ekki nærri því eins flott og 010110 já, nema þá náttúrulega 010101 en árið 2001 var ekkert sérstaklega glæsilegt hjá mér þannig að mér finnst það ekki flottasta árið.

Kiss kiss 2010. Ég á eftir að miss you much.

Thursday, December 16, 2010

Sólheimajökull

En svo bar til um þessar mundir að Svava skellti sér upp á jökul í boði kærastans. Mikið góð ferð. Ekki amalegt að gista á Hótel Heklu, tja fyrir utan nóttina sem við sváfum á sömu dýnu. Fatta það nú ekki by the way að gera bara ráð fyrir að par geti sofið á sömu dýnu eins og ekkert sé! Hvað er það?

Anyways, fórum með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í þessa ferð (ásamt slatta af túristum, aðallega asíubúum.) Mér fannst nú dáldið tilkomumikið hvað þessi jökull sem og aðrir eru að hopa? mikið. (Ég meina minnka.) Leiðsögumennirnir voru að sýna okkur hvað jökullinn er búinn að minnka mikið bara á einu ári og það er nú ekkert smáræði! Þetta er augljóslega að gerast ekki á löngum tíma heldur beint fyrir framan nefið á þeim sem fara oft í svona ferðir.

Því er nú verr og miður því mikil er dýrðin:




















Ég var svo óheppin að myndavélin var að verða batteríslaus svo ég gat ekki tekið mikið af myndum. Ég fann greinilega að maður var komin í tengsl við náttúruöflin og mér fannst æðislegt að sjá mismunandi ísmyndanir og ísgöng og mismunandi "svelga." Mér finnst ég alltaf komast í tengsl við almættið þegar ég fer upp á fjöll eða jökla. Tja, allaveganna í þessi tvö skipti sem ég hef farið upp á jökul.

Ég verð samt að segja að mér finnst miður að hafa deilt þessari reynslu í bæði skiptin með fullt af algerlega ókunnugu fólki í skipulögðum ferðum. Myndi elska mest að fara í góðra vina hópi í svona ferðir. Það er samt auðvitað miklu öruggara að fara í svona skipulagðar ferðir, sérstaklega í þessu tilviki þar sem við vorum með brodda undir skónum og ísexi og með svona dæmi um mjaðmirnar sem hægt væri að nota til að hífa okkur upp ef við myndum nú detta ofan í sprungu...





















Á Sólheimajökli er fullt af alls konar flottum ísmyndunum, eins og t.d. þessi. Næst þegar ég fer ætla ég að passa að vera með fullt batterí á myndavélinni!
















Maður finnur greinilega að jöklar eru takmörkuð náttúruundur sem eru síbreytileg og fara þverrandi. Mér finnst afskaplega sorglegt að eftir 100 ár verða kannski allir jöklarnir horfnir.




















Þetta var ofan í dálitlum dal á jöklinum þar sem við borðuðum nestið okkar. Það var svo skrýtið að þetta dökka á myndinni var svona eins og eins konar leir viðkomu. Leiðsögukonan sagði okkur að hún hefði verið með blint fólk í einni ferðinni sem vildi smakka á þessu. Þetta bragðaðist víst bara fínt! Merkilegt náttúruundur.

Mig langar aftur.

Takk fyrir mig elsku Svanur<3

Thursday, December 9, 2010

Já nei.

Er alveg á báðum áttum með þessa fréttapásu mína.

Ef maður sniðgengur fréttir bara af því maður vill ekki endalaust hlusta á vondar og neikvæðar fréttir þá er maður samt ekki með á nótunum. Sem er ekki endilega góður hlutur.

Var með fullt heimilið af börnum áðan (ok. Þrjú) og missti af fréttunum af því ég var að elda og sinna þeim og leyfði þeim frekar að horfa á barnatímann.

Og þá er maður ekki með á nótunum um hvað er í gangi í veröldinni.

Svava. (já.) Farðu á netið og horfðu á fréttatímann í endursýningu. (Æ, já, ok.)

Dö.

Do I look bovvered?!

Fórum með dúlluna okkar í 2 og 1/2 árs skoðun um daginn sem er nú ekki í frásögur færandi nema það að snúllinn okkar þarf að mæta aftur takk fyrir. Hann náði ekki prófinu.

Enda er hann tveggja ára og er ekki alveg kominn á þann stað í veröldinni að geta útskýrt fyrir bláókunnugri konu í slopp af hverju drengurinn á myndinni grætur þegar brotið glas er á gólfinu. Eða til hvers úlpa er. Eða hvar maginn sinn er.

Stupid fokking gáfnapróf fyrir tveggja ára sálir.

DO I LOOK BOVVERED??!!

Pirruð og móðguð móðir.

Sunday, December 5, 2010

stupid is what stupid does

alveg finnst mér heimskulegt að vefja heilsusamlegum matvælum inn í hvítt fransbrauð og kalla það heilsubita.

Var í ferðalagi um helgina og vantaði nesti til að bíta í í jöklaferð. Ég gisti ekki heima hjá mér nóttina áður svo ég var ekki tilbúin með smurt nesti fyrir ferðina. Þess vegna stoppuðum við í N1 versluninni á Hvolsvelli til að kaupa samlokur og drykki. Samlokurnar og langlokurnar sem voru í boði voru svo sem smekklegar og girnilegar og ég keypti auðvitað heilsusamloku (af því ég er svo heilsusamleg.)

Svo endurfattaði ég í dag þvílík heimska þessar blessuðu heilsusamlokur sem eru til sölu í sjoppum eru. Ég held að þetta sé fyrirtækið Sóma sem smyr HVÍTT brauð með heilsusamlegu áleggi en frussar svo einhverri majonesdrullu yfir allt saman og lokar samlokunni með annarri hvítri brauðsneið.

Díses. Það eina sem hefur lækkað í verði á Íslandi af matvælum á síðustu árum er hvítt brauð. Einmitt vegna þess að það er fáránlega óhollt og næstum því gersneitt allri næringu.

Og af hverju, AF HVERJU, þarf svo drulla einhverju majonesógeði yfir allt saman í þokkabót?

Why? WHY???

Thursday, December 2, 2010

cha, cha, cha, changes...

... það nær varla nokkri átt hvað ég er búin að breytast mikið á 10 árum.

Hin tvítuga Svava hefði eflaust fundist hin 31s árs Svava vera hundleiðinleg. Bara mega leiðinleg dama sem er farin að taka útvarpið fram yfir sjónvarpið og þá ekki eitthvað eins og X-ið 97.7 heldur halló RUV og Rás 2. (Boring!)

Hin þrítuga Svava skilur ómögulega hina tvítugu Svövu og hvernig til dæmis hún gat alltaf verið í svörtum fötum. Það myndi aldrei ganga í dag. Og oj, hún reykti! OJ!!

En það er nú gaman að segja frá því að hin tvítuga Svava er ekki lengur til og komin er á sviðið allt önnur dama, reyndar með sama nafni.

Svona getur eitt líf tekið miklum stakkaskiptum.

Kiss kiss gamla Svava
og bless.

Friday, November 26, 2010

er klárlega ekki efnishyggjumanneskja

Þó að mig langi í flott einbýlishús og jeppa og utanlandsferðir þá finnst mér ég samt ekki vera efnishyggjumanneskja.

Ég þoli ekki snobb, skil ekki fólk sem elskar peninga og það sem kveikti í þessu ákveðna bloggi - þoli ekki svona "kaupa-kaupa" auglýsingar sem eru núna fyrir jólin. Mér finnst svo sorglegt að jólin snúist um jólagjafirnar. Og það þarf að KAUPA jólagjafirnar og verslunareigendur virðast vera með dollaramerki í augunum og líka veitingastaðir með rándýru jólahlaðborðin sín og bara money, money, money. Græða, græða, græða...

Finndist frábært ef jólin gætu snúist um sjálfan boðskapinn; hátíð ljóssins og trúna en ekki bara frí og gjafir...

Friday, November 19, 2010

framför

var svo hátt uppi (naturally high) eftir fyrsta tímann í langan tíma í hot yoga í gærkvöldi að ég hálf sveif heim. Strauk svo ketti í svona 7 mínútur fyrir utan heima hjá mér sem þýðir bara eitt - ég er að yfirstíga (hægt og rólega) sýklafóbíuna mína:)

Mér fannst svo gaman að hitta þessa veru á sama stað í alheimnum og ég sjálf svona beint eftir mega hot mega yoga tíma. Svona getur maður verið hamingjusamur þegar maður er nýkomin úr yoga. Ekki það að ég sé eitthvað óhamingjusöm, ég verð bara alltaf hamingjusamari eftir góðan yogatíma,

Love it, love it, love it!

Wednesday, November 3, 2010

bölvaður andskoti.

Einmitt.

Ef ég væri eina fullorðna manneskjan á heimilinu þá myndi ég ekki horfa á fréttir. Þetta er af því að ég er í fréttapásu. En af því að ég er ekki eina fullorðna manneskjan á heimilinu þá komst ég ekki hjá því að horfa smá á fréttir.

Bölvaður andskoti.

Það þurfti ekki nema smá hálftíma áður en ég gafst upp aftur. Á fréttunum. Þær eru svo niðurdrepandi þessa dagana að það er mesta furða að fólk hafi hreinlega ekki labbað út og hent sér fyrir bíl annað hvort meðan þær eru eða beint á eftir.

Það sem var í fréttunum í kvöld var t.d. það að röðin fyrir utan fjölskylduhjálpina var rooooosalega löng. 1000 manns var gefið að borða. Og þetta er rétt eftir mánaðarmót. Viðtal tekið við þriggja barna faðir sem varð að ná í mat fyrir fjölskylduna. Mig langaði að gráta. Næsta frétt: það er líklegast verið að fara loka Sólheimum vegna fjárskorts. Þessum líka yndislega stað sem er sjálfbær og fallegur. Þarna býr einstakt fólk sem veit nú ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Óvissan er djöfull og dauðadómur fyrir einstakt fólk. Frétt sem var á undan þessum fréttum og var á hinni stöðinni fékk mig til að æpa á Svan eins og geðsjúk kona, biðjandi hann um að skipta um stöð. Vil ekki segja hver sú frétt var.

Allaveganna. Mikið helvítis djöfull er ég þreytt á heimsku mannanna. Mér er hugsað til vitleysunnar sem var í gangi í Orkuveitunni fyrir hrun. Þar voru þjónar sem þjónuðu til borðs í matsal starfsmanna og eldhúsið (til dæmis) kostaði margar, margar, margar milljónir í rekstri. Fyrir skattpeninga! Og nú má saklaust einstakt fólk ekki lifa í friði á Sólheimum og fólk er að svelta.

Mitt jafnaðarhjarta er brotið.

Brjáluð.

Friday, October 22, 2010

Romance - not

Minnti kærastann minn á í dag (x2) og í gær að það væri MJÖG langt síðan hann hafði fært mér blóm. Síðan kemur hann í dag með rósir heim.

This must be the end of romance.

(maður á ekki að þurfa að biðja um rósir/blóm !)

ugh.

Monday, October 11, 2010

Brutal

Brutal;

Þegar stráklingurinn í búðinni segir manni kæruleysislega að maður hafi ekki unnið í lottóinu. Eins og það skipti ekki máli að loftkastalinn manns hrynji eins og spilaborg á einu augabragði.

Áts.

Wednesday, October 6, 2010

Yes!

Loksins bók sem ég elska.

Ég hef verið að þreifa fyrir mér hvað ég ætti að taka upp á að lesa og núna, loksins, er ég sokkin...

... í bók. Ég sem ætlaði aldrei að lesa þessa bók af því ég hélt hún væri ljót. Svo sagði einhver við mig að hún væri ekkert svo ljót og hvatti mig til að lesa hana. Mér leist nú ekkert á blikuna á fyrstu blaðsíðunum, fannst þetta óþarflega flókið, en núna er höfundurinn búinn að ná mér og ég verð ekki í rónni fyrr en ég er búin að lesa allar þrjár bækurnar. Tja, þið vitið hvað ég á við, er nú alveg pollróleg núna sko...

... bara rosalega forvitin!



Held að þessi Stieg Larson hafi verið snillingur. En eins og oft áður í menningarheiminum þá er ég einu skrefi á eftir. Það eru flestir löngu búnir að lesa þessar bækur OG sjá myndina... go figure.

Ég ætla bara að vona að þetta sé ekki of ljótt.

Thursday, September 30, 2010

Á minni stuttu ævi hef ég (m.a.) komist að því...

... að raunveruleikinn er betri en bíómynd eða sjónvarpsþáttur.

Oft gerast hlutir í hinu raunverulega lífi sem handritshöfundar hafa varla getu til að detta í hug. Mér finnst þetta alger snilld. Ég ætla að miða að því að hætta að horfa mikið á sjónvarp. Það er tímasóun! Ef ég horfi á bíómynd þá fer í það u.þ.b. tveir tímar. Þetta eru tveir tímar sem ég fæ aldrei aftur!

Enda er svo margt in real life sem er svo stórkostlegt og ótrúlegt að það er varla að maður hafi hugmyndaflugið til að detta það í hug einu sinni...,

pa, pa (bæ, bæ á pólsku)

love & peace forever amen

Wednesday, September 29, 2010

Þetta er nú meira ruglið!

Mér myndi líða aðeins betur með uppgjörið á hruninu ef bankamennirnir væru látnir svara til saka frekar en stjórnmálamennirnir. Þá er ég að tala um bankastjórana og útrásarvíkingana sem urðu valdir að hruninu.

Það á bara ekki að vera hægt að þeir geti kósað sig í lúxusíbúðum og í lúxusbifreiðum eftir að hafa sett hérna allt á hvolf. Helvítis fokking fokk!

Mér virðist afar fáir líða eitthvað betur með hrunið þó að ákveðið hafi verið að ákæra Geir fyrir landsdóm.

Wednesday, September 22, 2010

Um úrkynjun mannsins

"Eftir því sem ég kynnist manneskjunni meir þá þykir mér vænna um hundinn minn."

Mark Twain


Saturday, September 18, 2010

Never again!


Þessi laugardagur tók heldur betur óvænta stefnu þar sem ég endaði út úr stoned út í Viðey með börnunum og kallinum.

Þegar við ákváðum að fara út í Viðey ákvað ég staðfastlega að ætla sko aldeilis að taka sjóveikispillu til að fyrirbyggja öll leiðindi. Ég hef nokkrum sinnum orðið sjóveik um ævina og þeir sem þekkja til vita að það er með verstu tilfinningum sem maður getur upplifað. Algert ógeð að vera flökurt!

Svo ég tók mína pillu og endaði eins og fyrr segir stoned út í Viðey.

Fáránlegt.

Er ennþá stoned af þessari bévítans pillu. Ég varð ekkert sjóveik en mikið líður mér asnalega af pillunni. Ætla að henda þessu í ruslið og aldrei taka svona aftur!

Þetta rokkar alveg á milli þess að vera þægilegt og óþægilegt, áhrifin af þessari pillu. Hlakka til þegar áhrifin hætta!

Anyways, það var voða gott að fara í Viðey. Glimrandi fínn dagur. Gaman að sjá friðarsúluna. Hafði ekki rænu á að taka mynd af henni. Damnit. Mér fannst hún voða flott. Klökknaði smá þegar ég sá áletrunina I will love you forever eða eitthvað álíka frá Yoko Ono til Lennons. Þurfti svo að leggja mig í grasinu í vímunni...

Óli minn er alveg heillaður af sögunni um Yoko Ono og John Lennon og elskar að heyra um friðarsúluna. Hann biður mig oft um að segja mér söguna af þessum hippum þegar við keyrum frá ma+pa á Álftanesinu.

All we are saying is give peace a chance

:)

Peace and love.

Make love not war.

Saturday, August 28, 2010

Halldór Laxness - Atómstöðin

Er ekki alveg nógu sátt við þessa bók.

Ég er tiltölulega nýbúin að lesa Sölku Völku og Sjálfstætt fólk og elskaði þær. Alveg. Svo byrja ég á Atómstöðinni og mér þykir hún svo torlesin og flókin eitthvað. Þessi bók er frá 5. áratug síðustu aldar þegar stjórnmálamenn töluðu um að selja landið. Það eru fullt af orðum í þessari bók sem ég hef aldrei séð eða heyrt áður og stundum er hann að tala um hluti sem ég skil ekki. Það er einhver Bítar og Ástmögur þjóðarinnar og f.f.f. (Fabriku fölsunar félagið í New York) og atómskáld og guðir og talsmátinn er svo skrýtinn að ég er oft heillengi að stauta fram úr einni blaðsíðu í þessari bók.

Ég rann í gegnum hinar bækurnar og naut þeirra í botn en ég er eitthvað að týna nóbelsskáldinu í þessu riti, því miður.

Bókin fjallar um Uglu sem kemur suður á mölina úr sveitinni og kynnist bæjarlífinu í Reykjavík í vist sinni sem ráðskona/þjónustustúlka/fóstra hjá Búa Árland þingmanni. Það er eitthvað í gangi á milli þeirra (þau eru hot fyrir hvort öðru) en hún verður ófrísk eftir annan mann. Hún lærir á orgel hjá athyglisverðum organista sem þekkir tvo guði. Söguþráðurinn er góður en mér þætti forvitnilegt að sjá íslenska æsku stauta sig fram úr þessum texta.

Later!

Friday, August 6, 2010

Not far from being a grumpy old lady...

Fór í dekur í dag.

Eða það sem átti að vera dekur.

Ákvað að vera góð við mig og fara í djúpnæringu á ónefndri hárgreiðslustofu, miðsvæðis í borg þeirri sem ég lifi og hrærist í. Ég hef farið nokkrum sinnum áður í svona djúpnæringu og meiningin er að slaka á í dekstrinu á meðan maður fær höfuðnudd í sérstökum nuddstól sem er kveikt á í þeim tilgangi að maður fá slakandi nudd. Það er nú alveg yndislegt að fá höfuðnudd á meðan good hair-stuff er nuddað í hárið og hársvörðinn á manni. Right?

Mér var meira að segja boðið teppi svo slakandi á þetta að vera í nuddstólnum á meðan maður bíður í 10 mín. meðan "good hair-stuffið" er í hárinu.

Já, nei nei. Helvítis hárstofan var með eitthvað ógeðis techno tónlist á hæsta styrk kl. 10 árdegis og ég var eini kúnninn. Þetta var fáránleg trans-dans tónlist með engum takt, ógeðslega hátt stillt og ég var allan tímann í "slökuninni" að spá í hvernig í andskotanum þetta fólk geti unnið með þessa tónlist á. Bara skil það ekki, ég var að spá hvort tónlistin gerðu þau ekki taugaveikluð því að hún hafði allaveganna þau áhrif á mig.

Stelpan sem setti stuffið í hárið á mér fór allaveganna út að reykja á meðan stuffið var að virka.

Ok, reyndar var hárið rosa flott eftir meðferðina en wtf með þessa tónlist djöfulsins?!

Ég kvartaði ekki þar sem ég vildi ekki vera álitin e-r grumpy lady en maaaan, hvað þetta fór fokking í taugarnar á mér.

later,

Tuesday, August 3, 2010

Breaking news in Svava's world!

Ég er ekki búin að nota make-up í tvo daga. Omg.

What is up with my universe?

Get huggað mig við það að I haven't gone bonkers. (I would know, right?) Ég ætla svooooo að vera með make up á morgun! Sleppti því bara í dag af því að ég fór í sund með Mána og nennti ekki að standa í því að taka make-up-ið af og á aftur. Svo í gær ákvað ég að sleppa því bara til að hvíla húðina á því...

Mér leið samt mun betur með það í gær en í dag. Núna finnst mér ég bara vera sjúskuð og með ljótuna. Make up was invented for a reason!!

Mér líður sko ekki smart þegar ég er án make up. Omg nei! Mér leið svo asnalega í Hagkaupum áðan. Bara eins og ég væri hálf nakin eða eitthvað! Var bara alveg að vona að ég myndi ekki hitta NEINN.

Mér finnst ég bara ekki vera eins heppin og sumir aðrir með náttúrulegt útlit. Sumar stelpur eru gorgeous, bara alltaf. Make-up or no make up. Jís, ég er svo ekki ein af þeim!

Ég þarf svo að fara á förðunarnámskeið samt!

Wednesday, July 28, 2010

What a totally awesome day!!

had a very good day.

Mikið ofboðslega líður mér vel þegar ég fæ svefninn minn. Það hefur alltaf verið bein tenging á milli lengdar og gæða nætursvefnsins míns og hvernig dagsformið er.

Ef ég sef vel líður mér vel - ef ég sef illa líður mér illa.

Í gær leið mér ekki vel. Þá hafði ég vaknað tvisvar sinnum um nóttina, fyrst af því að ég þurfti að pissa og svo af því að Stefán vaknaði og vakti mig. Urg. Hvert einasta smáatriði af deginum var erfitt í kjölfarið.

Í dag líður mér dásamlega og lífið er pís of keik. Enda fékk ég svefninn minn.

Mér finnst að maður ætti alltaf - ALLTAF - að fá svefninn sinn.

Svo fór ég í höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð í dag og mér líður mjög vel eftir það.

Get óhikað mælt með svona meðferð. Maður bara liggur og slakar á á meðan konan "gúrú-ar" mann.

Yndislegt. Love it!

Sunday, July 25, 2010

Það er svo skrýtið að segja frá því...

... að ég hlakka til að verða eldri.

Þegar ég verð eldri og börnin verða um tvítug eða eitthvað ... ÞÁ GET ÉG BARA GERT ÞAÐ SEM ÉG VIL!!!!!

Ooohhh, ég hlakka svo til. Þá get ég farið í nokkra daga göngur um fjöll og fyrnindi út á landi (t.d. Hornstrandir og hjá Ásbyrgi fyrir norðan, já eða bara að ég get farið til útlanda í friði:)

Je, dúdda mía, hvað þetta verður yndislegt. Þá þarf maður aldrei að vera bundinn af börnunum framar og ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að vera ekki með barnapíu..

Ég hlakka bara ógeðslega mikið til!!!!!!!!!!!!!

Síðustu páska fékk ég þennan yndislega kaldhæðna málshátt: Eitt barn er sem ekki neitt en tvö sem tíu.

I rest my case for now og ætla ekki að eignast fleiri börn. Kem þó eilíflega til með að sakna þess að hafa ekki eignast stelpu. Það er bömmer.

Ég sakna þess líka af hafa ekki átt systur. Það er allt öðruvísi að eiga bræður en systur. Og það er allt öðruvísi að eiga stráka en stelpur.

Keypti beisli handa Stefáni Mána...

... og þetta er nú meiri snilldin!

Það var bara allt annað líf að labba á milli leikvalla í hverfinu í morgun, áhyggjulaus með Stefán í beisli. Var alveg laus við að hafa áhyggjur af því að hann hlypi í burtu því ég var auðvitað með hann í beisli:)

þvílík glimrandi hamingja.

af hverju datt mér þetta ekki í hug fyrr??!!

Thursday, July 15, 2010

I want to move!!!!!

Mig langar svo rosalega til að flytja. Í einbýlishús með lokuðum garði.

Þegar við Óli vorum bara tvö var íbúðin mín í Bogahlíðinni algert æði. Fullkomin fyrir okkur tvö.

Svo kom Svanur. Síðan kom Emilía. Svo kom Stefán Máni.

Núna liggur við að íbúðin sé martröð. Var ég búin að nefna að það fylgir ekki geymsla íbúðinni? Það er heldur ekki lokaður garðurinn og það er þvílíkt óþægilegt að vera með Stefán Mána (2ja ára) þar. Hann bara hleypur út á götu!! Í allar áttir og maður er alltaf á nálum. En það er sumar og maður bara getur ekki hangið inni í rosalegu góðu veðri!

Aaaaarrrrggggghhhh!!!!!

Another copy of me please!

Mikið ofboðslega væri gaman ef ég gæti tvöfaldað mig endrum og eins og verið tvær ég.

Jiiiii, hvað það væri gaman!


Sérstaklega á háannatímum í heimilislífinu á milli kl. 16 og 20! Þá myndi ég t.d. geta sagt við hina mig: "Hey elskan, ertu til í að vera með krakkana og sjá um heimilið og kvöldmatinn og svo tek ég við eftir kvöldmat? Ég þarf nefnilega að hvíla mig eftir vinnuna.." Þá myndi hin ég segja: "Auðvitað honey boney:)"


Ég myndi velta mér um í grasinu í hreinni og beinni alsælu ef þetta væri hægt.

Sunday, June 6, 2010

að missa trúna

hér skrifar einn "stjórnmálafræðingur" sem hefur (næstum) misst trúna á stjórnmálum.

Áður fyrr fannst mér stjórnmál vera heillandi og ég bar virðingu fyrir stjórnmálamönnum. Ég fylltist lotningu þegar ég kom inn á Alþingi eða hitti stjórnmálamann.

Núna finnst mér stjórnmál ekki bara rotin og spillt inn að beini heldur finnst mér líka stjórnmál vera spilaborg sem hrundi. Hvernig (í andsk..) má það til dæmis vera að flokkur sem fær 5% fylgi þjóðarinnar nær að komast í ríkisstjórn og að vera með forsætisráðherra, utanríkisráðherra og viðskiptaráðherra úr sínum röðum? Bara valdamestu embættin.. Hvernig getur þingflokkur með 5% fylgi endurspeglað þjóðina? Þýðir ekki lýðræði að lýðurinn á að ráða??

Ég er að vísa til þess að það var Halldór Ásgrímsson (Framsókn) sem ásamt Davíð Oddsyni setti Ísland á lista hinna staðföstu þjóða sem samþykktu innrásina í Írak. Ég er líka að vísa til þess að Valgerður Sverrisdóttir (Framsókn), þáverandi viðskiptaráðherra, gaf auðmönnum og útrásarvíkingum aðgang að ríkisbönkunum.

Þetta bara meikar ekkert sens.

Hvernig varð það eðlilegt að bankar fjármögnuðu kosningabaráttu stjórnmálamanna?

Money is power. Power corrupts. Total power corrupts totally.

jæja, hættu að röfla Svava og farðu út að hlaupa.

sælir!;)

Friday, May 14, 2010

Djöfull er ég orðin leiðinleg!

Ég sagði actually setninguna: "annara mann óregla kemur mér ekkert við!" þegar einhver sakleysinginn hringdi í Svan áðan.

Mér til varnar þá geri ég mér augljóslega grein fyrir vandamálinu.

Ég var bara alin þannig upp að fólk eigi ekki að hringja á matartíma. Kl. 18:30 og 19:00 er bara svona heilagur tími þar sem fólk hringir ekki í annað fólk. Svona var ég alin upp, þetta er innrætt í mig og mér finnst þetta vera heilagur sannleikur.

Svo kom maki minn inn í líf mitt og allt sem ég hef lært og mér er innrætt og það sem mér finnst vera heilagur sannleikur er ögrað. Big time.

Það voru sem sagt ekki allir aldir upp eins og ég.

"Því miður" langar mig til að segja en veit að það er asnalegt því að mínar "reglur" eru ekki algildar reglur. Það er til fullt af fólki sem þykir ekkert dónalegt að hringja á matartíma eða að koma í óvænta heimsókn.

Mig langar til að taka gömlu gildin mín og faðma þau.

Af hverju geta ekki allir verið eins og ég?

(DJÓK!)

Wednesday, May 5, 2010

Hot yoga

elska hot yoga. With a passion.

Það veitir ómælda ánægju að stunda hot yoga. Ég læt mér nægja einu sinni í viku. Það er nóg fyrir mig. Þessi tími sem ég fer í er 90 mínútur. Æfingin tekur á öllum vöðvahópum og teygjurnar eru ótrúlega djúpar og góðar.

Þetta er algert detox og manni líður eins og betri útgáfu af sjálfu sér þegar maður kemur út.



Love it!






Later.

Monday, April 26, 2010

Óvæntar heimsóknir

Ég er allaveganna samkvæm sjálfri mér:)

Fann hér á blogginu mínu blogg frá því seint í desember 2007 og ég er enn svo hjartanlega sammála því sem þar stendur:

"Það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér en óvæntar heimsóknir. Af hverju fólki finnst þetta vera góð hugmynd er gjörsamlega beyond me.

Flesta daga er ég búin að ákveða fyrirfram og líð áfram í alveg hreint ágætu flæði doing my stuff. Oft þegar ég er heima er ég að gera alveg fullt af hlutum og vil ekki vera trufluð við það. Hver dagur hefur sinn ramma. Mér finnst voða gott að kjafta í símann þegar ég er heima hjá mér en óvæntar heimsóknir vil ég alls ekki.


Ekki misskilja mig. Ég hef alls ekkert á móti heimsóknum. Mér finnst mjög skemmtilegt að fá heimsóknir og fara í heimsóknir. En heimsóknir er eitthvað sem á að plana fyrirfram. Allaveganna deginum áður. Yes? Þá geta allir verið tilbúnir fyrir heimsóknina, búnir að taka til og svona og tilbúnir með kaffi og með því. Annað er bara rugl.


Úff, ég bara varð að koma þessu frá mér."


Snilld! Eins og talað úr mínum munni núna.

Later!

P.s. I admire my honesty to be perfectly frank.

P.p.s. It's not hard. Come on, come over. Just call first! :)

Sæll!

Ég er komin með alveg nýtt pólitískt viðhorf.

Þrátt fyrir að hafa lært um ágæti Evrópusambandsins í háskólanum nær samfleytt í fimm ár (þegar ég hugsa tilbaka þá sat maður eiginlega undir áróðri, allaveganna síðustu árin..) þá get ég bara ekki hugsað mér að Ísland verði meðlimur.

Ég hef engan áhuga á að sjá út um allt Ísland skilti við brýr eða vegi eða við náttúruminjar sem á standa "this is an EU project." Bara nei takk! Svo fæ ég bara í magann við tilhugsina að Íslendingar komi ekki til með að ráða yfir sínum auðlindum einir. Meika ekki að allra þjóða kvikindi hafi puttana í þessu,

nei andsk.. ætli ég sé ekki bara argasti þjóðernissinni!

Það held ég. Þess vegna kem ég ekki til með að kjósa Samfylkinguna aftur, gæti best trúað að Hreyfingin verði fyrir valinu. Þar er snobblaust alvöru fólk sem veit nákvæmlega að lýðræði þýðir democracy for the people, by the people.

Og hana nú!

Friday, April 23, 2010

Móðguð..

Hann er strákur, ekki stelpa!





















Ég er búin að lenda í því í dag og í gær að fólk á förnum vegi segir "hún" en ekki "hann" þegar það segir eitthvað um Stefán. Var í Bónus áðan og maður í hjólastól segir: "er ég fyrir henni?" (Halló!) Svo í gær, á hverfishátíðinni á Klambratúni, þegar Stefán var að skoða og leika við þrjá hunda segir strákur sem er þarna líka eitthvað í sambandi við Stefán og notar þá orðið "hún."

DISLIKE. Ég er heavily offended bara!

Later:)

Hæ pabbi! Ætlaru ekkert að commenta!?

Tuesday, April 20, 2010

Lygi

Núna finnst mér eins og það sem ég lærði um íslenska flokkakerfið í stjórnmálafræðinni í HÍ hafa verið byggt á lygi. Mikið ofboðslega er þetta fjórflokkakerfi mikið rugl. Það er rotið og spillt inn að beini!

Mér finnst svo erfitt hvað það er erfitt að breyta hlutunum. Núna er fólk að tala um að það þurfi að stokka alveg upp í stjórnmálakerfinu og henda þessu fjórflokkakerfi í ruslið. Ég er sammála. En hversu langan tíma og hversu auðvelt er það að breyta einhverju í þessu landi? Hvað þá stjórnmálakerfinu eins og það leggur sig?

Djöfulsins kjaftæði.

Sunday, April 11, 2010

Verkefni dagsins...

... að venja Stefán Mána (22 mán.) af bleyju.

Jei.

Mér finnst þetta nú ekki mjög skemmtilegt verkefni þar sem það segir sig sjálft að pissið og hitt á bara eftir að lenda á parketinu og í sófanum (damn) og svoleiðis.

Ég vildi bara að ég gæti átt vitsmunalegar samræður við hann. Þá mundi ég bara segja við hann: "Stefán, ertu til í að hætta að nota bleyjur og nota bara klósettið eins og við hin?" Það væri svoooo frábært ef hann myndi bara þú veist segja: "da da já" og svo bara gera það það sem eftir er.

That would be great.

Annars er gott mál að parketið er hvort sem er orðið lélegt og sjúskað.

Thank God for small favours.

Later!

Monday, March 22, 2010

East Enders

Þrisvar í röð!!

Þrisvar í röð lifi ég mig svo sterkt inn í East Enders (sápuna mína) að ég fer að gráta þegar eitthvað slæmt gerist.

Í dag fæddist barn í pakistönsku (?) fjölskyldunni. Þetta leit ekki vel út um tíma og þau héldu að hann væri dáinn í smá stund. Síðan sýndi hann lífsmörk og lifnaði við (þá grét ég feginstárum: Lífið vann.)

Á föstudaginn var Stacey Slater í uppnámi vegna þess að hún var að missa manninn sinn. Þau voru nýgift og eru ung. Hún er ólétt og þau eru (voru) svo ástfangin og æðislega hamingjusöm saman. Hann deyr minnir mig bara rétt eftir giftinguna. Þau voru ennþá í sparifötunum. Hún stendur yfir líkinu þar sem hann liggur á líkstofunni og kveður hann en horfir á replay af video-i af þeim í myndavélinni þar sem þau hlægja saman eftir giftinguna og hann segir :"I love you misses Browning." Síðan meikar hún þetta ekki og hleypur týnd út í buskann (en er samt í miðri London.) Ég græt.

Á fimmtudaginn deyr Bradley (maðurinn hennar Stacey) á flótta undan lögreglunni. Hann er svo ungur og fallegur en klifrar upp á byggingu á flóttanum og dettur svo niður. Sorglegasta ever! (Ég græt.) Pabbi hans hleypur út hinu dýrslega hljóði þegar heyrist í mönnum þegar þau missa börnin sín og Stacey fríkar auðvitað líka út...

Núna er Stacey ennþá týnd. Ég hef áhyggjur af henni...

;)

later!

Friday, March 12, 2010

"Maybe I should have"

Mér líður dáldið svona. Bara svona að afsaka mitt klúður í lífinu.

Sem virðist vera (meðal annars!) að ofmennta mig. Tvær háskólagráður en lítil starfsreynsla og það er einmitt það sem atvinnuleitendur virðast vera að leita að núna. Manneskju með reynslu en líka háskólamenntun.

Hefði átt að nema staðar numið við fyrstu háskólagráðuna árið 2005 og fara út á vinnumarkaðinn þá í staðinn fyrir annað og meira háskólanám. Hvað var það? Djö....... klúður.

Maybe I should have.

Sunday, February 7, 2010

Vinstri grænir

Loksins skráði ég mig í Vinstri græna (stjórnmálaflokkinn)!

Af hverju ég hef ekki gert þetta fyrr er mér óskiljanlegt. Ég er líka skráð í Samfylkinguna en þar sem ég er ekki sammála henni í einu og öllu saman finnst mér gott að vera nú líka skráð í Vinstri græna, nema hvað? En þar sem ég er heldur ekki alveg sammála þeim í einu og öllu þá er nú gott að vera líka skráð í Samfylkinguna:)

Ég er vinstrisinnuð jafnaðarmanneskja:)

and loving it!

Sunday, January 31, 2010

Bráðum hata ég þig

Við Begga fórum á föstudagskvöldið í leikhús (Nemendaleikhús LHÍ) á sýninguna Bráðum hata ég þig.

Alveg hreint elska ég nemendaleikhús. Þetta fólk er svo ferskt og ungt að það er næstum því hrátt. Þau eru svo lifandi og sexy og það er svo gott að finna fyrir nýju blóði í leiklistarheiminum. Þetta leikrit er allt í lagi (mér fannst reyndar Eftirlitsmaðurinn, leikritið sem þau voru með á haustönninni) vera mun eftirminnilegra en þetta leikrit fjallar um alvarlega hluti (dauðann) sem er allt í lagi að því leiti að það fjallar líka um kynlíf sem vegur upp á móti því. Verð að viðurkenna að það er ansi "krassandi" að horfa á svona lifandi kynlífssenur. Call me kinky, I don't care.

Venjulega fer ég bara á leikrit sem ég veit að eru skemmtileg (því mig langar að hlægja) en þetta var nú bara allt í lagi. Ungir kynþokkafullir leikarar vega upp á móti alvarleikanum í leikritinu. Sérstaklega flott hvernig leikritið endaði; þrjú pör í kynlífssenum, hvert í sínu herbergi og ofboðslega er ég að fíla þessa nekt í leikhúsunum í dag. Bæði í Faust og svo í þessu leikriti eru ber brjóst. Það var nú mun minni spéhræðsla í þessu leikriti samt;)

Love it. Sexy leikrit:)

Rauði krossinn

www.rki.is

hmm.. míns bara á forsíðunni..

athyglisvert

:)

Tuesday, January 26, 2010

What's up with that?

Hvað er málið? Tvisvar núna á síðustu dögum er ég búin að vera vitni að því í umferðinni að eldgamlir karlar eru úti að keyra í einhverju rugli, bara alveg út að flauta og sjá ekki neitt og vita ekkert hvað er í gangi.

Þetta er dáldið fyndið og dúllulegt en dáldið alvarlegt líka. Um daginn þegar ég var að keyra keyrði gamall maður utan í bílinn minn. Hann ætlaði greinilega að skipta um akrein en var alveg í ruglinu bara og sá mig ekki líklegast af því að ég var í blinda punktinum hjá honum. Þetta var alveg fáránlegt. Sá karl var alveg út að flauta.

Svo í gær er ég að keyra á Listabrautinni og eldgamall karl keyrir löturhægt og ætlar svo að beygja inn á Kringlumýrarbrautina en stoppar bara langt frá því sem maður á að stoppa til að bíða eftir að óhætt sé að fara út á Kringlumýrarbraut. Síðan lullar hann löturhægt áfram, alveg í ruglinu..

Á ekki að gera eitthvað í svona málum? Fjarlægðarskynið var svo augljóslega farið að klikka eitthvað verulega hjá þessum körlum og þeir voru seriously mjög gamlir. Eru ekki reglur við svona??

Nei, ég bara spyr..

Sunday, January 24, 2010

Faust

Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera áhorfandi á Faust í Borgarleikhúsinu í síðustu viku. Takk mamma:)

Eins og Vesturporti sæmir er hér einstakt sjónarspil á ferð - og dýr(s)leg kroppasýning! Ég vil nú fá líkama nöfnu minnar sem leikur djöflapúka í sýningunni. Geggjað þegar hún var í splitti ofan á neti sem er fyrir ofan áhorfendur í þröngum og efnislitlum leður/latex galla! Rugl flottur líkami! (Hún er víst fimleikastjarna.)

Jú, ansi kraftmikil sýning en ég verð nú að viðurkenna að söguþráðurinn flæktist dáldið fyrir mér - sérstaklega þar sem ég vissi ekkert um hann fyrir sýninguna. En mér skildist sem svo að þarna sé gömul saga á ferð um mann sem gerir samning við djöfulinn sem endar auðvitað á þann veg að djöfullinn svíkur hann. Maðurinn selur sem sagt djöflinum sál sína fyrir eitt augnablik með þeirri sem hann ann og vill vera með.

Ansi töff uppsetning, elska þetta Vesturport lið:) Þvílíkur sköpunarkraftur! Elska hvernig þau ná að veita manni innblástur og gleði.

Bravó, bravó, bravó!!

Saturday, January 16, 2010

Get the fuck up, shut the fuck up!

Þetta er hið skemmtilegasta lag sem eróbikk dúddinn spilar alltaf í tímunum sínum í World Class. Þetta er bara á góðri leið með að verða uppáhalds work out lagið mitt!

"Get the fuck up, shut the fuck up" dúruududdu tfff tff tffff (bassinn sko)

Svo gott að fara í góðan eróbikk tíma á laugardagsmorgnum:)

Later!

Wednesday, January 13, 2010

A regular saint

I don´t meen to blow my own horn here but..

I'm a regular saint!

Var í einkabankanum og fattaði að á hverjum mánuði borga ég til Unicef, Amnesty international og ABC barnahjálpar! Og ég er atvinnulaus!

Oh well, ætla samt ekki að hætta að borga. Yei me!

Later:)

Thursday, January 7, 2010

"Takk fyrir að vera til"

Góðlátlegur eldri borgari kom inn í Rauða kross búðina í dag þar sem ég var á vakt og brosti innilega til mín og óskaði mér gleðilegs nýs árs. Aðeins seinna kom hann að borðinu og þakkaði mér kærlega fyrir að vera til. Ég komst smá við.

Svo sagðist hann vera á kenderíi. Fullur sem sagt.

Af hverju segir ófullt fólk ekki svona? Það væri nú gaman, ha?

jæja, ætla í rúmið, er þreytt.

Later!

Tuesday, January 5, 2010

Icesave

Þungt og erfitt mál indeed.

Ég var eitthvað svo ósátt um daginn við þetta allt saman og skráði mig á www.indefence.is af því að ég vildi ekki að þjóðin þyrfti að borga Icesave. Daginn eftir skipti ég um skoðun af því að mér finnst að það verði einhver að taka ábyrgð á þessu rugli og bankaráni og ef ekki íslensk stjórnvöld, hver þá?

Ég fékk hnút í magann í dag um leið og Ólafur Ragnar Grímsson byrjaði blaðamannafundinn og tilkynnti að hann ætlaði að vísa málinu í þjóðaratkvæði. Ég fattaði um leið hvað það er slæm hugmynd. En hann er og var á milli steins og sleggju í þessu máli eins og við öll hin.

Til fjandans með frjálshyggjuna, til fjandans með kapítalismann og Guð blessi Ísland.

Anyways,

xoxo

until next blog