Einmitt.
Ef ég væri eina fullorðna manneskjan á heimilinu þá myndi ég ekki horfa á fréttir. Þetta er af því að ég er í fréttapásu. En af því að ég er ekki eina fullorðna manneskjan á heimilinu þá komst ég ekki hjá því að horfa smá á fréttir.
Bölvaður andskoti.
Það þurfti ekki nema smá hálftíma áður en ég gafst upp aftur. Á fréttunum. Þær eru svo niðurdrepandi þessa dagana að það er mesta furða að fólk hafi hreinlega ekki labbað út og hent sér fyrir bíl annað hvort meðan þær eru eða beint á eftir.
Það sem var í fréttunum í kvöld var t.d. það að röðin fyrir utan fjölskylduhjálpina var rooooosalega löng. 1000 manns var gefið að borða. Og þetta er rétt eftir mánaðarmót. Viðtal tekið við þriggja barna faðir sem varð að ná í mat fyrir fjölskylduna. Mig langaði að gráta. Næsta frétt: það er líklegast verið að fara loka Sólheimum vegna fjárskorts. Þessum líka yndislega stað sem er sjálfbær og fallegur. Þarna býr einstakt fólk sem veit nú ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Óvissan er djöfull og dauðadómur fyrir einstakt fólk. Frétt sem var á undan þessum fréttum og var á hinni stöðinni fékk mig til að æpa á Svan eins og geðsjúk kona, biðjandi hann um að skipta um stöð. Vil ekki segja hver sú frétt var.
Allaveganna. Mikið helvítis djöfull er ég þreytt á heimsku mannanna. Mér er hugsað til vitleysunnar sem var í gangi í Orkuveitunni fyrir hrun. Þar voru þjónar sem þjónuðu til borðs í matsal starfsmanna og eldhúsið (til dæmis) kostaði margar, margar, margar milljónir í rekstri. Fyrir skattpeninga! Og nú má saklaust einstakt fólk ekki lifa í friði á Sólheimum og fólk er að svelta.
Mitt jafnaðarhjarta er brotið.
Brjáluð.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment