Saturday, August 28, 2010

Halldór Laxness - Atómstöðin

Er ekki alveg nógu sátt við þessa bók.

Ég er tiltölulega nýbúin að lesa Sölku Völku og Sjálfstætt fólk og elskaði þær. Alveg. Svo byrja ég á Atómstöðinni og mér þykir hún svo torlesin og flókin eitthvað. Þessi bók er frá 5. áratug síðustu aldar þegar stjórnmálamenn töluðu um að selja landið. Það eru fullt af orðum í þessari bók sem ég hef aldrei séð eða heyrt áður og stundum er hann að tala um hluti sem ég skil ekki. Það er einhver Bítar og Ástmögur þjóðarinnar og f.f.f. (Fabriku fölsunar félagið í New York) og atómskáld og guðir og talsmátinn er svo skrýtinn að ég er oft heillengi að stauta fram úr einni blaðsíðu í þessari bók.

Ég rann í gegnum hinar bækurnar og naut þeirra í botn en ég er eitthvað að týna nóbelsskáldinu í þessu riti, því miður.

Bókin fjallar um Uglu sem kemur suður á mölina úr sveitinni og kynnist bæjarlífinu í Reykjavík í vist sinni sem ráðskona/þjónustustúlka/fóstra hjá Búa Árland þingmanni. Það er eitthvað í gangi á milli þeirra (þau eru hot fyrir hvort öðru) en hún verður ófrísk eftir annan mann. Hún lærir á orgel hjá athyglisverðum organista sem þekkir tvo guði. Söguþráðurinn er góður en mér þætti forvitnilegt að sjá íslenska æsku stauta sig fram úr þessum texta.

Later!

No comments: