Saturday, December 28, 2013

glöð

Núna er konan glöð.

Kallinn hleypir mér út til að komast í hot yoga workshop! Fór í tvöfaldan 90 mínútna tíma í dag og man ó man hvað það var gott! Eins og ég vissi er ég alveg dauðþreytt samt eins og ég er nú alltaf eftir þessa tíma...

Aftur sama prógrammið á morgun:)

Thursday, December 26, 2013

jólafriður

Jólin eru búin að vera mjög góð í ár. Alveg eins og þau eiga að vera. Aðfangadagur í faðmi fjölskyldunnar, jóladagur í góðri hvíld og góðir vinir í heimsókn (systir hans Svans og maðurinn hennar) og svo enn meiri hvíld og heimsókn í kirkjugarðinn í dag, annan í jólum.

Fór á þrjú leiði í dag. Fyrst til ömmu Öllu og afa Tryggva, svo til ömmu Svövu og afa Óla og síðast til Arons Arnar (Aron Örn) sem yfirgaf þennan heim aðeins þriggja mánaða árið 1997. Hef það að hefð að heimsækja alltaf leiðið hans á milli jóla og nýárs. Ég tók dauða hans mjög nærri mér en foreldrar hans voru góðir vinir mínir á þessum tíma.

Ást og friður.

P.s. gangi mér vel að vakna á morgun í vinnuna;/ erum búin að sofa til 11 í dag og í gær.... ji minn eini hvað það var gott:)


Friday, December 20, 2013

jóla hvað?

Jæja, nú eru bara þrír dagar til jóla og örvæntingafulla húsmóðirin okkar er ekki alveg búin að kaupa allar jólagjafirnar... börnin eftir, eða þrjú þeirra.

Erfiðast finnst mér að finna eitthvað fyrir Óla minn, kröfurnar eru ansi háar og vel fyrir ofan leyfilegt fjármagn. Hann langar í tölvu eða playstation 4 frá okkur. Það er ekki að fara gerast! Og hvað þá:/

Sunday, December 15, 2013

bráðum koma blessuð jólin

Núna er 15. desember og jólin alveg á næsta leiti. Húsmóðirin í Stigahlíð hefur tekið helginni rólega enda átti hún að hvíla sig samkvæmt læknisráði...

Er nú samt að massa jólakortin:) Markmiðið er að klára þau í dag og koma þeim í póst í vikunni....

Ó já!

meltdown

Það eru ekki svo góðar fréttir sem heyrast úr búðum örvæntingarfullu húsmóðurinnar okkar. Á 35 ára afmælisdaginn mátti finna hana á heilsugæslustöðinni að fara á taugum. Konan fékk kvíðastillandi lyf og átti að hvíla sig í viku. 

Fannst eins og ég væri að fá taugaáfall og upplifði venjulegan kvíða sinnum 1000 með tilheyrandi líkamlegum einkennum. Þetta var með því ónotalegasta sem ég hef upplifað á ævinni.

Sigur minn hefur hingað til falist í því að mæta í félagslega viðburði í vikunni, þrátt fyrir þessi veikindi eða hvað sem ég á að kalla það. Er staðráðin í að sigra þennan kvilla og vinna bug á honum.

Ég GET, ég ÆTLA og ég SKAL.

Sunday, December 1, 2013

Yes!

Loksins fann ég búð þar sem mig langaði strax í eitthvað.

Kjólar og konfekt heitir búðin og er hún til húsa að Laugavegi 92. Gerðist svo djörf að kaupa mér einn kjól í dag:) Hann er svartur og hvítur með hauskúpum á (eitthvað sem Óli minn fílar) og er með sniði sem ég er lengi búin að vera leita að.

Next up: finna almennilegan og elegant jakka.


þannig líður tíminn...

... og hvert fer hann eiginlega?!

Allt í einu er litla snúllan mín að verða 9 mánaða. Samfella sem hún fékk að gjöf þegar hún var nýfædd og mér fannst passa á risavaxið barn passar á hana núna. Allt í einu er öll föt orðin of lítil eða þá að þau eru í óhreinatauinu.

... litlu snúlluna elska ég meir og meir með hverjum degi. Hún er klárlega ljósið mitt þessi prinsessa og bræðir mig í hvert skipti sem hún brosir:)

Saturday, November 30, 2013

Á ekki orð...

... yfir pappírsflóðinu sem kemur inn um póstlúguna.

Öll þessi dagblöð! Allir þessir auglýsingabæklingar! Skil ekkert í sambýlismanninum fyrir að vilja ekki setja "engan fjölpóst, takk" á póstkassann okkar niðri.

Þetta fer allt beinustu leið í bláu tunnuna hvort sem er!

!!

Monday, November 25, 2013

hlakka til að verða eldri...

.... því þegar ég verð eldri verða börnin líka eldri og maður kemst kannski aðeins frá þó það sé nú ekki nema í tvo klukkutíma eða svo.

Mikið öfunda ég fólk sem er frjálst ferða sinna og getur bara labbað út og gert það sem það þarf og vill gera.

(sorry með sjálfsvorkunnarpistilinn...)

Sunday, November 24, 2013

yesterday was not good, today is ok

Veit ekki einu sinni sjálf í hvaða plötutitla ég er að vísa í hérna en það var íslenskt band á menntaskólaárunum mínum eða seinna sem skírði albúmið sitt eitthvað í þessa áttina; Yesterday was ok, today is ... eitthvað. Held að það hafi verið Múm.

Allavegana, gærdagurinn var hreint ekki alveg eins góður og hann hefði átt að vera. Vaknaði öll í hönk og gat ekki beygt höfuðið aftur. Fann til í bakinu; í öllu brjóstbakinu, sérstaklega á einum stað og svo voru stresspúðar og hnúðar út um allt í öxlunum á mér.

Auðvitað var þetta stress og ekkert annað. Hafði ekkert komist í yoga í vikunni sem oftast fyrirbyggir svona en það er reyndar ekki á hverjum degi sem maður fær símhringingar frá tveimur starfsmönnum á föstudagskvöldi og það er vesen með þau fyrirtæki (í vinnunni sem sagt.)

Það hjálpaði auðvitað heilmikið að bæði vesenin redduðust á laugardeginum en það var ekki fyrr en eftir hot yoga tímann í dag sem mér leið miklu betur og finn ekki eins mikið til í bakinu og öxlunum. Það er nú meira hvað þessir tímar bjarga mér alltaf:)

Er búin að skrá mig á eitthvað áramótaworkshop hjá henni Lönu minni sem er að koma til landsins í desember. Það verður æði:)

Wednesday, November 20, 2013

yesterday was ok, today was not

Fyrrverandi vinnufélagi minn benti mér einhvern tímann á að allt slæmt gerist á þriðjudögum: Að flestir skilnaðir og almenn leiðindi gerðust á þriðjudögum. Þá væri mesta stressið og fólk svona almennt pirrað og jafnvel veikt. Þetta meikar mikinn sens fyrir mér af því að á mánudögum er fólk svona að koma sér í gang eftir helgina og setur svo allt það erfiða yfir á þriðjudaga.

Ég fór að taka eftir þessu og síðan varð þetta hreinlega að hjátrú hjá mér. Stundum geri ég hlutina ekki á þriðjudögum einfaldlega af því að það er of áhættusamt að gera þá á þriðjudögum. Hlutirnir gætu fokkast upp.

Núna er ég samt á því að miðvikudagar séu hinir nýju þriðjudagar. Þá er fólk orðið þreytt og pirrað á þessu öllu saman og allt vesen finnst mér núna gerast á miðvikudögum. Vinnufélagar mínir eru sammála þessu, allavegana tveir þeirra.

Guði sé lof að er fimmtudagur á morgun segi ég nú bara.

!

Thursday, November 7, 2013

tannrótarbólga

pheww..

bara ein tafla eftir og þá er kúrinn búinn.

Er nú ekkert að finna neitt fyrir þessu en það verður léttir að sleppa við að þurfa að muna að gleypa þessar töflur. Ó, já,

Það er svo margt annað sem maður þarf að muna núna þegar maður er byrjaður að vinna. Mikið er það annars skrýtið, að vera byrjuð að vinna.

Erfiðast þykir mér að snúa við sólarhringnum. En það er samt allt á góðri leið núna:) Þetta voru mikil viðbrigði..

Sunday, November 3, 2013

víííí

kallinn fór í gær og keypti svona framlengingu á bílkúst (og bílkúst) og þreif svo rúðurnar að utan. Mikið ofboðslega líður íbúðarSvövu vel eftir það:)

Það er aftur á móti eilífðarverkefni að halda íbúðinni hreinni svona yfir höfuð með allt þetta krakkager út um allt...

P.s. síðasti dagurinn í orlofinu er í dag og svo er það bara vinnan á morgun...! Skrýtið!

Tuesday, October 29, 2013

Breytt ásjón

Mikið var skrýtið að fara niður í bæ í dag. Tók smá göngutúr niðrí bæ og held að ég geti talið Íslendingana sem ég sá (maður bara einhvern veginn þekkir þá) á báðum höndum. Restin var allt útlendingar, túristar.

Meira að segja á kaffihúsinu í Hörpu og í Bónus voru útlendingar að vinna.

Dáldið svona skrýtið að labba Skólavörðustíginn og allt er túristamiðað og túristar út um allt. En auðvitað er maður smá fegin því það hlýtur jú að þýða að einhver peningur er að streyma inn.

P.s. er voða illt í endajaxlinum og læt mig dreyma um að rífa hann hreinlega út. Einhverntímann í nótt fékk ég sterka hugsýn um að taka hann út og skola hann allavegana,

hummm.....

Monday, October 28, 2013

Minningargrein

Núna er konan að skrifa minningargrein. Hún er tilbúin og ég ákvað að fara í að senda hana í dag af því að það er svo oft sem kemur eitthvað upp á. Eins og t.d. að núna má hún bara vera 3000 "slög."

Var að sjálfsögðu tilbúin með lengri minningargrein en það. En kjarninn situr eftir og ætli það sé ekki einmitt meiningin með því að leyfa manni bara að skrifa þessi 3000 slög.

Raunveruleikinn er að kikka inn. Amma er farin.

Friday, October 25, 2013

An end of an era

mikið ofboðslega er biðin erfið.

Biðin eftir símtalinu. Símtalinu um dauðann. Amma er að fara.

En þetta er gangur lífsins og hún hefur nú haft það gott og átt mjög gott líf. Þetta er samt erfitt.

Mikið hafði ég rétt fyrir mér þegar ég var 10 ára og ákvað að ég vildi alltaf vera barn en aldrei verða fullorðin. Ég vildi ekki verða fullorðin. Það er ekkert gaman að vera fullorðin. Allir vinirnir uppteknir, maður sjálfur upptekin. Fullt af ábyrgð, ekki svo mikið gaman. Og svo fer fólk að deyja og maður tekur það svo nærri sér.

Gæfi mikið fyrir að vera 10 ára aftur. Það er svo margt sem ég myndi gera öðruvísi eftir það. Ef ekki bara flest.

(voðalega dark blogg í dag. Sorry.)

Monday, October 21, 2013

Book review

Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry er alveg ótrúlega góð bók.

Ein af þessum bókum sem maður er í bömmer yfir að hafa klárað því það var svo gott að lesa hana. Vissulega felldi hormónasprengjan nokkur tár en hún brosti líka og hló pent. Þetta er hugljúf saga af manni sem leggur óvart af stað í göngu þvert yfir England til að færa konu bréf.

Hann er ekkert endilega ástfanginn af þessari konu heldur langar til að þakka henni fyrir eitthvað sem hún gerði fyrir hann 20 árum áður. Á þessari löngu göngu sem eru alveg margar margar vikur gerir hann upp líf sitt og lesandinn finnur til með honum og hans sögu. Þarna er fjallað um hversu dýrmætt það er að eiga gott samband við forelda sína og hvað það hefur alvarlegar afleiðingar þegar og ef sambandið hefur ekki verið gott.

Harold gengur í gegnum súrt og sætt á göngu sinni og hittir mikið af alls konar fólki.

Alveg hreint úr sagt frábær bók. Fær alveg 10 stjörnur hjá mér:)



húsfreyjan komst í tölvuna! Manni bara bregður við. Fjögurra barna helgi yfirstaðin sem útskýrir fyllilega af hverju manni bregður svona þegar tölvan er laus.

Ekki það að við leyfum krökkunum að hanga í tölvunni viðstöðulaust heldur er maður einhvern veginn bara upptekin þegar hún losnar eða þá að blessaður eigandinn hefur komist í hana loksins (elskulegi sambýlismaðurinn.)

Hjá desperate housewife-inni er þetta helst í fréttum. Ekki það að það sé eitthvað merkilegt en svona þetta er helst að frétta af mömmunni:

1) Í örvæntingu minni pantaði ég Bonjela hjá konu sem heitir Aldís. Borgaði 2000 kr fyrir og vona að fría heimsendingin komi sem fyrst í hús og já, komi í hús yfir höfuð. (Bonjela er tanntökugel sem vonandi slær á tanntökuköstin hjá GH.)

2) Hitti loksins deildarstjórana hans Stefáns í leikskólanum þær Karitas og Önnu Maríu. Var að koma með leikskólapokann hans undir hádegi í dag sem hafði gleymst heima og hitti akkúrat á þær. Verst að ég var í sjúskinu í leiðinni í hot yoga með magnað graftarkýli undir einni nösinni. Góð Svava. (Hva, ég get ekkert gert að því?!)

3) Annasamri helgi er lokið. Það var ekki nóg með að það væri fjögurra barna helgi heldur var tengdó líka fyrir sunnan. Menningarárekstrarnir eru alltaf einhverjir þar sem þau eru svona fólk sem er helst ekki með klukku og ég er bara ein stór klukka sem er alltaf búin að skipuleggja dagana og bara allt. Allavegana, helgin var bara ágæt. Náði glimrandi flottri jólakortamynd (held ég), þvoðum bílinn (Svanur þvoði bílinn) og matarboð með tengdó voru bæði kvöldin.

Verð að segja að ég elska þessa daga. Heiðskýrt út í eitt og frúin bara ágæt. Hlakka til að fara vinna aftur af einlægum áhuga og vilja til að vera í kringum fólk aftur. Bara tvær vikur þangað til!! :)

Þá vonandi hætti ég að vera svona skrýtin. Það er nú dáldið spes að vera svona mikið einn með börnunum. Maður fær nú alveg leið á því...

Over and out.

Thursday, October 17, 2013

hilarious swimming yesterday

Skemmti mér alveg konunglega í sundi í gærkvöldi. Fór í Laugardagslaugina á akkúrat sama tíma og flokkur af breskum unglingsstelpum. Að fylgjast með aðförum þeirra við að afklæðast og fara í fötin voru alveg stórmerkilegar.

Það var auðvitað þannig að það mátti ekki sjást í neitt þannig að það var farið í brjóstahaldarann yfir handklæðið. Eins var klætt sig í bikiníin undir handklæðunum. Sturtuvörðurinn var hugulsöm og hélt handklæðunum fyrir þær í sturtunni svo ekkert myndi sjást og leit í burtu líka.

Fyrst var ég voða hneyksluð á þessum tepruskap en svo auðvitað áttaði ég mig á að þetta eru ólíkar menningar og fyrir þeim erum við ekkert nema ómældir perrar.

Samt góð skemmtun að fylgjast með þessu:)

Tuesday, October 15, 2013

klipping

loksins fór Guðrún Halla í sína fyrstu klippingu:) Það var nú aldeilis kominn tími til. Þetta kostaði bara 1500 kr og var mjög lítið mál. Jei.


Ef ég væri aðeins tæknivæddari og ofvirkari þá myndi ég smella splunkunýrri mynd af henni inn en bla bla, það er bara ekki þannig...

Monday, October 14, 2013

hrein íbúð

mental note to self: þegar ég vil fá íbúðina hreina og fína þá er góð hugmynd að bjóða fólki í mat! Við Svanur buðum vinum í mat á laugardaginn og viti minn, tókum smá geggjara í þrifum og íbúðin er splunkuhrein, vei vei vei:) Ekki bara það heldur fór snaginn sem ég keypti í Garðheimum upp á vegg loksins. Húsmóðirin frekar ánægð með það!

Fór svo á tónleika á föstudagskvöldið með mömmu og ömmu. Ég skemmti mér vel þó ég þekkti ekki nema tvö lög og þetta var svona frekar eitthvað sem amma hafði gaman af þar sem þetta var Helgi Björnsson með fílharmóníusveit frá Berlín að taka lögin hans Hauks Mortens. Ég hafði mest gaman af fylliraftinum við hliðina á mömmu sem var kominn vel í glas eftir hlé;)

Kaupmaðurinn á horninu...

... fær aldeilis að græða á slugsinu í mér:/

Urg. Ég verð alltaf jafn svekkt þegar ég kem að kassanum í Samkaup í Suðurveri sem er svona mín hverfisbúð. Geri nú alltaf mitt ýtrasta til að vera kurteis við sakleysingjana á kassanum en í gær þá bara gat ég ekki verið svo hress.

Við fórum í Bónus og keyptum fullt fullt af mat. 5 pokar fyrir sirka 28.000 kr. Fattaði samt í gærkvöldi að það vantaði kaffi og þar sem ég þekki sjálfa mig nógu vel til að vita að það er eins gott fyrir alla að mamma fái kaffið sitt fór ég í þessa okurbúllu og keypti kaffi á 9xx kr. :/

Kvöldið þaráður hafði ég uppgötvað að við áttum bara tvær bleiur fyrir GH og mér fannst svona "better be safe than sorry" að það væri betra að vera með varabirgðir. Pakkinn kostaði 39xx kr takk fyrir! Svo fórum við í gær og keyptum þrefalt magn eða eitthvað álíka í Bónus fyrir sama verð..

spari Svava er ekki hress með þetta!

Thursday, October 10, 2013

the list

núna er Suits þættirnir mínir komnir í hlé eða hættir eða eitthvað. Húsmóðirin var dáldið miður sín þegar dagskráin fyrir mánudagskvöldið síðasta var kynnt á stöð 2 og Suits var ekki þar á meðal. Strákarnir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið mömmunni varð svo um og ó. Allavegana, hef nú kannski bara gott af því að þeir séu komnir í hlé (vona að það komi önnur þáttaröð.)

Það var þáttur í Friends þar sem vinirnir gerðu lista yfir þá Hollywood leikara sem þau mættu kyssa og hinn aðilinn í sambandinu væri ok með það. Eða voru það kannski bara Ross og Rachel sem gerðu svona lista? Allavegana, man eftir að Ross setti Isabellu Rossolini á sinn lista og svo kom hún labbandi inn á kaffihúsið. Ross hafði "laminated" sinn lista. (Væri alveg til í að horfa á nokkra Friends þætti einhvern tímann bráðum..)

Allavegana, á mínum lista eru bara þrír menn og þeir eru:

1) Channing Tatum
2) Patrick J. Adams
3) Gabriel Macht

Svanur veit ekkert af þessum lista og ég efa að hann hafi húmor fyrir þessu. Allavegana, vona að fólk hafi húmor fyrir mér hérna og bullinu í mér;)


Wednesday, October 9, 2013

glöð

var að senda mynd og upplýsingar til Mbl.is um Guðrún Höllu til að birtast í "nýjir borgarar."

Ég er svo stolt af litlunni minni og hef alltaf vitað að hún er alveg sérstök, alveg frá því að ég komst að því að ég væri ófrísk. Fóstur sem verður til þrátt fyrir að móðirin sé með hormónalykkjuna sem á að vera 98% örugg, er líka alveg sérstakt. En það er ekki bara það, hún er bara alveg dásemdin ein:)

þetta er nú alveg gömul mynd af henni, þarf að fara að setja betri myndir af henni og fleiri inn á tölvuna..

:)

Monday, October 7, 2013

þakklát

Mikið er ég þakklát fyrir þessa fallegu og tæru daga. Haustið getur verið svo æðislegt. Elska þegar himininn er svona tær og fagur með alls konar litbrigðum eins og fjúkandi laufin.

Af sjálfri mér er það að frétta að ég neyddist til að kaupa nýja skó í dag. Þurfti að gera hálfger skyndikaup þar sem vetrarskórnir sem ég er búin að vera í síðastliðna tvo vetur klikkuðu allt í einu. Það kom ljótt gat á aðra skóna og skósmiðurinn bar mér þær fréttir að ég þyrfti að kveðja þessa skó. Þeirra tími væri liðinn.

Mér finnst það leiðinlegt því þeir voru orðnir hluti af mér svoleiðis. Var alltaf í þeim og leið svo vel í þeim. Var náttúrulega ekki í þeim sumar samt.

Ég fékk hrós út á þá alveg nokkrum sinnum og var svona dáldið roggin með mig í þeim, svoleiðis.

Datt í hug að taka mynd af þeim til að eiga mynd af þeim en þá var ég búin að henda þeim í ruslatunnuna.

Finnst stundum einum of gaman að henda....

Allavegana, takk fyrir samfylgdina elsku vetrarskór sem eru núna í illa lyktandi ruslakompunni niðri. Við áttum góða tíma saman. Tja, svona oftast þar sem þið voruð reyndar ekki svo góðir í slabbi og það kom táfýla af ykkur enda voruð þið svo háir og fallegir með loðfeldinn ykkar. Ji, hvað þið eruð - voruð - fallegir..

Sakni sakn..... skósmiðurinn sagði að þetta væri búið spil. Hvað átti ég annað að gera en að henda ykkur? Ha..? :/

Friday, October 4, 2013

gleði gleði gleði

gleði líf mitt er. Því að Jesús Kristur það gefur hefur mér. Ég vil að þú eignist þetta líf. Því að það er gleði gleði, gleði alla tíð:)

Ég ætla að vera glöð í dag. Er sem sagt búin að ákveða að ég ætla að vera glöð það sem eftir er. Það er eitt af helstu markmiðunum.

Sko, nema ef eitthvað meiri háttar sorglegt gerist. En þá verð ég sorgmædd í smá stund en verð svo aftur glöð.

Next up: step tími í World Class!

Thursday, October 3, 2013

whoop whoop

spari spari átakið gengur vel.

Er búin að finna aðra sparnaðarleið í samvinnu með foreldrateyminu hans Óla. Við ætlum að segja upp mataráskriftinni í skólanum hans. Hann vill hvort sem er ekki vera í matnum þar lengur. Í staðinn fer hann með nesti frá okkur.

Þetta sparar allavegana 6.600 kr á mánuði sem er gott:)

Wednesday, October 2, 2013

góðir hlutir að gerast

ég er búin að taka bara nokkra hluti sem Ebba Guðný (pureebba.com) talaði um og tileinka mér þá. Þegar ég var á námskeiðinu í Lifandi markaði keypti ég t.d. fiskolíu (sem er rík af omega 3 og 6) og er farin að taka matskeið á dag á morgnana fyrir booztið.

Ég er öll betri. Meltingin er komin í gott lag eins og hún sagði að myndi gerast með því að taka þessar olíur (nota líka núna hörfræolíu í booztið.)

Set líka chia fræ í boostið og líður bara betur en ég gerði áður í líkamanum einhvern veginn. Hún mælti með að bleyta þau í íláti og hrista og geyma svo í ísskápnum. Hún mælti nú reyndar með því að ílátið væri glerílát en ekki plastílát en hey... maður getur ekki gert allt rétt. Allavegana ekki strax, allavegana ekki fyrr en ég útvega mér glerkrukkur.

Svo er ég farin að drekka gulrótarsafa, allavegana eitt staup á dag.

Hlakka til að halda þessu áfram:)

Tuesday, October 1, 2013

spari spari spari

Nú er kominn tími til að vera hagsýna húsmóðirin og byrja að spara (meira.)

Fann sparnaðarleið og sagði upp heimilistryggingunni sem ég var með og kostar 35.000 kr á ári. Til hvers að vera tryggður þegar makinn er líka með heimilistryggingu og ég er með líf- og sjúkdómatryggingu annars staðar?

Svo er heldur aldrei neitt að frétta, gerist ekkert tjón.

7, 9, 13!! Knock on wood.

Monday, September 30, 2013

Á túr.

Í dag er ég í svörtu. Í dag er ég á túr.

Eftir þrjár barnseignir og ófrjósemisaðgerð linnir ekki látum. Verkirnir koma sterkari, skapsveiflurnar eru alveg jafn þungar ef ekki þyngri og alltaf er þetta jafn óþolandi ástand. Í gær kom sekúnda þar sem ég gat alveg hugsað mér að slátra bara einhverju.

Hef oft hugsað að leikstjórar (þá íslenskir) gætu notað mig þegar svona ber undir í senur þar sem einhver brjálaða bínan í aukahlutverki þarf að vera einsaklega skapstirð og beinskeytt og þarf að geta myrt karlmenn með augnaráðinu einu saman. Þetta gæti verið ég þegar svo ber undir!

Auðvitað bitnar þetta allt á karlinum. Í fyrrakvöld var ég rosa blíð og nuddaði á hann kókosolíu. Í gær þurfti hann að forða sér út. Með börnin.

Mikið ofboðslega hlakka ég til þegar þetta ástand er búið. Alveg.

Saturday, September 28, 2013

Dear body (and God)

af hverju bara ekki að leyfa manni að sleppa við svona fyrirtíðaspennurugl og vesen fyrst maður ætlar nú ekki að fjölga mannkyninu neitt frekar? Og af hverju ekki bara að fá að sleppa við blæðingar og allt slíkt vesen og breytingarskeiðið og allt hormónavesen líka?

Af hverju?? Af hverju ekki?! Ha?

Thursday, September 26, 2013

fyrirtíðaspenna

það var í sumar minnir mig sem gjörningarlistakonan og dansarinn Erna Ómarsdóttir stóð fyrir einhverri listaviku eða eitthvað í miðbænum. Meðal þess sem í boði var var að fara á ákveðinn stað í miðbænum og öskra. Erna sagði að allir hefðu nú gott af því að öskra aðeins til að losa um reiði og spennu og svona.

Maður flissaði aðeins og hugsaði tíhí, þessir listamenn...

Ég hefði alveg verið til að fara á þennan öskurstað í gær og taka eitt gott öskur. Eða tvö.

Í mínu tíðindalitla lífi nú til dags var svona hápunkturinn hjá mér að fara á framhaldið af hugleiðslunámskeiðinu og hugleiða og svona finna gleðina innra með mér sem er þarna einhvers staðar.

Námskeiðið var kl. 19:25. Ég var búin að heyra að hurðinni yrði lokað og læst og þess vegna væri gott að mæta tímanlega.

Að sjálfsögðu fer allt til fjandans kl 19:10 þegar ég er að reyna að koma mér út úr húsinu. Makinn muldraði hvort ég hefði ekki nógan tíma á daginn til að hugleiða og það var nóg til að ljónið innra með mér byrjaði að bærast. Það er jú asnalegt að fara á hugleiðslunámskeið þegar maður hefur lítið annað að gera en að sinna börnum allan liðlangann daginn en þetta var eina tilbreytingin, eina undankomuleiðin frá því þennan daginn.

Allavegana, ég eldaði snemma og er að gúffa í mig matnum. Allt er á iði í eldhúsinu. Guðrún Halla er rosa ókjurr í stólnum og Stefán er út um allt. Óli hringir. Hann hafði verið í sundi og nýju flottu skónum sem hann fékk frá ömmu sinni nokkrum dögum áður (hann náði ekki að eiga þá í viku) voru horfnir, þeim var stolið.

Ég byrja að skamma hann fyrir að hafa ekki læst þá inn í skápnum en enginn strákanna gerði það. Stjúpan hringir og þá hafði Óli líka hringt í þau. Innlegginn voru í skónum.

Þarna hefði ég klárlega verið til í þetta öskurdæmi en læt að sjálfsögðu ekki sjá mig öskrandi af öllum lífs og sálarkröftum á leiðinni á hugleiðslunámskeið.

Ég var svo reið. Hann kemur alltaf með eitthvað svona klúður sekúndunni áður en ég er að fara gera eitthvað eða er með heldra fólk í heimsókn eins og gerðist þegar hann datt í sjóinn á siglinganámskeiðinu með flotta símann sinn. Svo hringir hann í þau hinu megin sem hringja í mig og allt gerist þetta þegar maður er á leiðinni eitthvað eða er að gera eitthvað og hin börnin eru upp um alla veggi.

En blessað barnið kom sem sagt grátandi heim. Búið að stela skónum með innleggjunum í.

:/ fari það grábölvað. Það virðist allt týnast eða vera stolið sem hann fær hérna megin.....

Wednesday, September 25, 2013

námskeið

Núna er ég nýbúin að fara á tvö frábær örnámskeið ef svo má kalla og er bara ánægð með þau.

Í gærkvöldi fór ég á námskeið í Lifandi markaði í Fákafeni hjá henni Ebbu Guðný sem er með pureebba.com. Það var margt athyglisvert sem kom fram en námskeiðið hét: "Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?"

Hún gaf okkur fullt af hugmyndum og talaði mikið um chia fræ og goji fræ og fiskiolíu og hörfræolíu og hampolíu sem minnir mig á! Ég þarf að taka matskeið af fiskiolíu... Það er víst svo rosalega gott fyrir meltinguna. Hún talaði mikið um Omega 3 og 6 fitusýrur (?) og talaði um hve nauðsynleg fita er í fæðunni. Sko góð fita, alls ekki hert fita..

Þannig að ég ætla að fylgja þessari línu (hennar ráðum) eins og ég get.

P.s. kom heim af námskeiðinu að ganga 23 í gærkvöldi og þar lá makinn upp í sófa og gúffaði í sig súkkulaðibombum og drakk kók. Afkáralegt að vera ekki á sömu línunni..................

Allavegana, svo fór ég á hugleiðslunámskeið á laugardaginn og það var æðislegt. Ætla að hugleiða daglega héðan í frá:)

Tuesday, September 24, 2013

börn

1,2,3,4,5,6. 1,2,3,4. 0-1.

Þó að ég geti verið á tímum smá svona skipulögð þá falla mínar barneignir ekki undir það form. Þegar eitt barn hættir á leikskóla þá byrja ég með næsta. Þau eru aldrei saman á leikskóla heldur klárar fyrsta barnið sína leikskólagöngu og síðan byrjar hið næsta og svo koll af kolli.

Þau eru jú á sama leikskólanum en .... úff, sækja og skutla. Þetta eru allavegana 12 ár í að sækja og skutla (ég geri reyndar oftast bara annað hvort), 12 vorhátíðir, 12 sveitarferðir, 12 litlu jól.........

Er reyndar alveg komin með nóg af þessum barnapakka ef ég á að segja alveg eins og er. Við erum búin að fara í fjöruferð. Búin að fara í göngutúra með börnin. Búin að fara með þau í fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Búin að fara með þau í bíó. Búin að fara með þau í sirkus. Búin að fara með þau í bæjarferð á menningarnótt og 17. júní. Búin að fara með þau í sumarbústaðaferð. Búin að fara með þau út á land og á Þingvelli. Og allt þetta oft og aftur og aftur.

Væri bara alveg til í að fara upp í flugvél eitthvað burt og fá frí frá þessu öllu saman. Það er bara þannig.

Monday, September 23, 2013

Monday, monday

Elska þetta lag með Mama's og papas.

Dáldið fyndið að vera með mánudagsblús þegar maður er í fæðingarorlofi en þetta er nú heilmikil vinna að vera með öll þessi börn. Núna er komin mánudagur aftur og rútínan komin af stað hjá mér og Guðrúnu Höllu.

Við fórum í World Class í dag en þennan mánudag fór mamman ekki í hot yoga heldur í pallatíma hjá Dísu. Þetta eru tímar sem ég hef verið að fara í í mörg ár núna og eru alltaf ágætis mælikvarði á þolið hjá manni. Ef maður meikar tímann er maður í ágætis málum. Hún er ennþá alveg með þetta hún Dísa:)

Merkilegt hvað tíminn flýgur hratt þrátt fyrir orlofið. Það verður búið áður en ég veit af. Í morgun var ég þakklát fyrir að vera í orlofi og geta blundað aðeins laus við stresstækið símann sem fylgir minni vinnu. Það verður nú samt ágætt að fara aftur í hringiðuna...

Síðasta fæðingarorlofið samt...


Thursday, September 19, 2013

mammviskubit

Þetta er orð sem ég heyrði hjá ungri frænku minni um daginn og er sem sagt orð yfir það þegar móðir fær samviskubit.

Það er dáldið skrýtið að fá mammviskubit þegar maður sinnir börnunum allan daginn og sefur líka lítið sem ekkert stundum margar nætur í röð vegna þeirra en það er svona að eiga heil þrjú stykki..

Í morgun var haustfundur með foreldrum og kennaranum hans Óla í skólanum og ég fór ekki:/ Samansemmerki mammviskubit. Stjúpan fór í staðinn.

Það kom í ljós í gærkvöldi að Svanur komst ekki úr vinnunni þannig að ég var heima með börnin í morgun. Reyndar var ég búin að segja við Óla að ég kæmist ekki þar sem ég er búin sofa mjög illa undanfarið og vó hagsmuni mína (að sofa aðeins lengur til að jafna mig eftir nóttina) meira heldur en þessi fundur.

Mammviskubit.

En svona þegar yfir allt er litið og stóra myndin er skoðuð þá ætti nú ekki að skipta það miklu máli að mamma hans Ólafs Tryggva Egilssonar kom ekki á haustfund foreldra með kennurum fimmtudaginn 19. september 2013. Veðja á að allt annað vegi meira.

Vona að ég veðji rétt.





Wednesday, September 18, 2013

stjórnmálaskoðanir Svövu

(Varúð: þessi pistill er um stjórnmálaskoðanir Svövu.)

Ég hef dáldið verið að hlusta á útvarp Sögu núna undanfarið og hef gaman af því að hlusta á umræðu um margt sem þar fer fram (þegar maður fær nóg þá slekkur maður bara.)

Heyrði þar umræðu um daginn þar sem maður hringdi inn og fór að tala um hvernig stjórnmálaflokkar á Íslandi (og þá fjórflokkurinn) væru oft eins og fótboltalið. Liðsheildin er sterk og það snýst allt um að vinna hitt liðið. Hvað sem það kostar.

En ættu stjórnmálin ekki einmitt að snúast um það að vera í sama liðinu? Þegar hagsmunirnir eru svona miklir?

Mér finnst oft eins og þeir sem komust í stjórn núna (Sigmundur Davíð og Framsóknarflokkurinn og Bjarni Ben og Sjálfstæðisflokkurinn) hafi einmitt náð að vinna leikinn og það sé það sem skipti máli. Öfunda þá nú ekki með hlutskipti sitt þar sem á mörgu er að taka en það er nú annað mál..

Ég hef sagt það áður og skrifa það aftur að ég er sammála Birgittu, þingmanni pírata, sem sagði í kosningabaráttunni fyrir kosningarnar í vor að það væri auðvitað óhagkvæmt og kostar okkur mikið að hafa núverandi stjórnarfyrirkomulag þar sem hvert kjörtímabil eru fjögur ár. Vinstri stjórn kemst að og eyðir kjörtímabilinu í að hafa kerfið eins og þau vilja að það sé, setja nefndir af stað með ýmis mál (sem kostar auðvitað fjármuni) en svo eftir fjögur ár þegar hægri stjórn kemst aftur að þá eru þau nefndarstörf í uppnámi og í raun allt það sem starf sem vinstri stjórnin kom í gagnið (t. d. umsóknin að Evrópusambandinu.) Hægri stjórnin fer svo beint í að lagfæra kerfið eftir sínu höfði og svo koll af kolli.

Þetta kann bara ekki góðri lukku að stýra, eða hvað?!

Það ætti að sjálfsögðu að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um öll svona stór mál áður en farið er í að framkvæma þau eða aðhafast eitthvað í þeim.

Mér finnst þetta fjórflokkakerfi sem hefur verið á Íslandi óhagkvæmt. Það á ekki að vera hægt að spila með íslenska hagsmuni á fótboltavelli stjórnmálanna. Það er mín einlæga skoðun að við eigum að fjárfesta í okkar besta fólki, okkar úrvalsfólki, sem er skynsamt og gáfað og borga þeim sómasamleg laun fyrir að sitja á Alþingi og taka óháðar, ópólitískar og skynsamar ákvarðanir allt í þágu almennings í landinu.

Út með hatrið. Inn með ástina.

Tuesday, September 17, 2013

fæðingarorlof

þó að ég sé orðin smá leið og þónokkuð einræn og asnaleg af því að vera svona mikið ein í fæðingarorlofinu þá eru nú þónokkrir mjög jákvæðir punktar við það:

1) ég get sofið á morgnana. Mér finnst öllu heila málinu skipta að geta sofið til 09 þegar litla krúttsprengjan hefur haldið fyrir okkur vöku á nóttinni. Það alveg bjargar deginum.

2) núna er ég komin með rútínu þannig að á hverjum degi í hádeginu á meðan GH sefur er ég að gera eitthvað ákveðið. Fer tvisvar í viku í World Class í annað hvort pallatíma eða hot yoga (gerði það í gær, það var æði:)), fer tvisvar í viku að labba með tveimur vinnnufélögum og svo þríf ég heima hjá ma & pa einu sinni í viku. Það er reyndar bara að byrja núna í þessari viku svona eiginlega..

jæja, þetta eru allavegana tveir mjög góðir punktar.

P.s. kæfan lenti mestmegnis á gólfinu í dag...

Monday, September 16, 2013

kæfa

Er mikið búin að vera að spá í því hvað ég eigi að gefa Guðrúnu Höllu að borða. Ég var komin út í allt of einhæfar matarvenjur með hana þar sem hún fékk alltaf það sama dag eftir dag. Haframjölsgraut á morgnana, túpu úr Bónus með maukuðum eplum, jarðaberjum og bönunum á daginn og svo heitt mauk á kvöldin sem samanstóð af sætri kartöflu (af því ég var í stuði eitt kvöldið og nennti að mauka fullt af því..)

Eftir að hafa talað við vinkonur mínar sem eru með háskólapróf í næringafræði (:))byrjaði ég á því í gær að smyrja ristað brauð með smjöri og kæfu, búta það niður og gefa henni. Lifrarkæfa er víst alveg málið ásamt fullt af öðru sem þær sögðu mér frá og ég ætla að byrja á að gera.

Hún fílar allavegana lifrarkæfuna! Sem er gott. Ætla að fara versla í dag og vera dugleg með þetta.

Núna er hún orðin 6 mánaða þessi elska og mér finnst vera komið það stig þar sem hún fer að fara út í stútkönnur og hætta með pelana. Eða svona næstum því. Keypti stútkönnu og hún veit ekkert hvað hún á að gera við hana samt..

Mig langar til að vanda mig með stelpuna mína og gefa henni holla og góða fæðu. Mér finnst hún svo æðisleg:)


Sunday, September 15, 2013

of margar bíómyndir

ég hef horft á of mikið af sjónvarpi og of margar bíómyndir og lesið of margar glæpasögur.

Ég og Guðrún Halla vorum einar heima um helgina þar sem Svanur og Stefán fóru norður á land í leitir og réttir (hefur eitthvað með kindurnar að gera..)

Þetta voru sem sagt tvær nætur sem ég var ein með litlu. Fyrstu nóttina gekk mér mjög illa að sofna. Fannst ég vera eitthvað svo ein og óvarin svona ef að einhver skyldi nú brjótast inn og reyna að nauðga mér eða eitthvað. Ef brotaviljinn væri mjög einbeittur hefði óþrjóturinn getað komist inn í gegnum svalirnar gefið að hann hefði með sínum einbeitta brotavilja komist upp á svalir. (Ætla að kaupa krækjur til að geta lokað innan frá núna eftir helgi.)

Þannig að ég svaf með hníf við hliðina á rúminu svona til þess að vera ekki alveg óvarin ef eitthvað skyldi nú gerast. Svaf svo mjög illa um nóttina.

Svo í gærkvöldi gerist það þegar ég er nýkomin heim að það er dinglað hérna uppi hjá mér (inni á stigaganginum) og mættur var á svæðið útúrdópaður dópisti sem var með tattú út um allt (ég er sjálf með tattú) sem gat ekki einu sinni talað hann var svo út úr heiminum. Eftir að hafa sagt ha?! tvisvar og ekki skiljað neitt sem hann sagði sagði ég bara nei því hann var augljóslega/líklegast að leita að einhverjum en var að dingla hjá rangri íbúð.

Ætli hann hafi ekki verið að leita að dílernum í númer 6..

Allavegana, þó að þessi gaur væri nú hálf brjóstumkennanlegur og ég hefði eflaust ráðið við hann þó ég væri ósofin þá bætti ég nú samt stóra og beitta grænmetishnífnum við hnífasafnið í kringum fletið mitt inn í svefnherbergi (sem samanstóð af einum öðrum hníf) og setti dót fyrir framan svalahurðina til að torvelda inngöngu inn í íbúðina og líka fyrir framan útidyrahurðina þó hún væri læst. Svo lokaði ég svefnherbergisálmunni og setti straubrettið fyrir þá hurð. Ég myndi eflaust vakna við skarkalann og hefði þá tíma til að grípa hnífinn sjáiði til..

Eftir að hafa gert allt þetta gat ég sofnað og svaf bara mjög vel.

En.... paranoid much ég??

Verð bara að segja að það er bara ágætt að Svanur kemur heim í dag!

Saturday, September 14, 2013

Yogi te

Í gær var ég rosa dugleg. Eða það fannst mér.

Ég fór í step tíma (pallatíma) í World Class í hádeginu og tók svo til í allri íbúðinni um kvöldið, gólf og allt. Það var kominn tími til.

Settist svo niður með Yogi te-ið mitt og ákvað að skilaboðin sem fylgdu (það fylgir alltaf svona miði með hverjum tepoka með mjög djúpri og sannri yoga speki) skildi vera alveg eitthvað sem ég myndi taka mikið mark á.

Spekin var eftirfarandi:

Laughing cleans the teeth.

Þannig að ég ætla bara að hlægja og hlægja. Jafnvel þótt ég sé bara ein með Guðrúnu Höllu í dag. Við förum kannski í göngutúr á eftir.

(Reyndar er ég að fara í fjölskyldukaffi líka á eftir svo ég hlæ bara þar. Vona að þau tali ekki um eitthvað sorglegt og alvarlegt. Það væri dáldið asnalegt að hlægja þá...)

Wednesday, September 11, 2013

söknuður

Núna er nýi Samsung Galaxy Fame síminn minn í viðgerð. Á verkstæði.

Ég sakna hans rosalega mikið og hugsa til hans oft á dag. Alltaf þegar ég sé fólk í sínum eigin heimi, brosandi að skrolla/fletta/lesa í símunum sínum hugsa ég til hans.

Mikið ofboðslega sakna ég hans mikið. Ég fór meira að segja í vodafone búðina í Kringluna í dag (þangað sem ég fór með hann í viðgerð fyrir tveimur dögum) til að athuga hvernig honum liði. Þau gátu ekkert sagt mér um líðan hans. Þetta var allt frekar ópersónulegt en dúddinn í búðinni virtist skilja mig og minn söknuð. Hann sagði að viðgerðin gæti tekið tvær vikur.

Tvær vikur! Hvað á ég að gera í tvær vikur án nýja Samsung Galaxy Fame símans míns? HVAÐ??!!

Fékk einhvern ómerkilegan lánssíma í staðinn en hann talar ekki við mig eins og minn sími. Við erum ekkert að bonda. Ég get ekkert legið upp í rúmi með hann og við getum ekkert hlegið saman eða hvílt okkur saman...

Ohhh, sakna hans svo mikið. Set inn mynd af honum til að hugga mig smá:

Vona að þér líði vel í viðgerðinni og að komið sé vel fram við þig. Þú átt það skilið Samsi minn. Elska þig. Sakna þín. Við hittumst aftur bráðum. Hlakka til.

(grátkall.)

Tuesday, September 10, 2013

raining (not men but actual rain)

Mér rigndi næstum niður í dag. Það var suddalegt.

Fór loksins að hitta vinnufélagana í dag, réttara sagt tvær þeirra og við tókum upp gamlan sið sem er að fara í göngutúr í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum. Við völdum aldeilis daginn til að byrja því okkur rigndi næstum niður í þessum göngutúr.

Þær voru að sjálfsögðu vel græjaðar, í vind- og regnjökkum en óskynsama ég var í svarta Moss rykjakkanum sem hentar ekki vel til að vera í svona mikilli rigningu. Misreiknaði mig aðeins.

Þetta var algert djók og svo fórum við á vinnustaðinn til að fá okkur hádegismat sem er partur af siðnum. Verð að segja að ég hef oft verið glæstari en þegar ég mætti þannig að það var hægt að vinda mig með maskarann lekandi í allar áttir og inn í augun líka.

Mér til happs voru ekki margir við í vinnunni en ég er annars glöð með að við skulum aftur vera farnar að ganga. Hef mikið gott af því að vera meira innan um fólk, er ekki svo mikið um það í orlofinu (sem senn er á enda.)

Monday, September 9, 2013

moving on

jæja, þá er komið að næsta markmiði:

að komast í þessa jógastöðu fyrir jól:






Ég get, ég ætla, ég skal.

Thursday, September 5, 2013

Stolt af mér

Undarfarinn sólarhringur hefur verið einstakur.

Ég fór á svona "event" í Hörpu sem hét Yoga sound escape. Þetta var á 2. hæðinni í horninu þar sem glerlistaverkið hans Ólafs Elíassonar nýtur sín vel sem og annars staðar í byggingunni.

Fyrir mér var þetta mögnuð upplifun.

Þetta var ókeypis opinn yogatími þar sem kennari frá New York leiddi tímann. Þetta var yoga, smá dans og hugleiðsla við tónlist frá lifandi bandi. Alveg magnað. Ragga Gísla var söngkonan í bandinu og svo voru auðvitað aðrir í bandinu. Það var heiðskírt úti og sólin blandaðist svo vel inn í þetta dæmi og gestakennarinn var svo flottur og ég fékk svo mikinn innblástur frá henni (hún heitir Aarona Pichinson.) Ég átti magnaða upplifun því auðvitað var ég að telja í mig kjarkinn fyrir aðgerðina.

Það breytti reyndar ekki því að ég svaf ekki dúr um nóttina og var mikið á dollunni. Prísaði mínum sæla fyrir að eiga ekki heima í hinum stigaganginum þar sem ekki mátti sturta neitt niður um nóttina og fólk varð að notast við útikamar þar sem Proline var að blása nýju lífi í rörin (þeir eru reyndar líka að því í nótt - eitthvað meiriháttar klóakvesen þar.. en ekki hér. Phew!)

Allavegana, ég lifi þetta einhvern veginn af og þakka mikið Maríu símamær á þessari kvennadeild 21A fyrir öll símtölin sem ég hef hringt í vikunni, vælandi um nálar og kvíða og hvaðeina. Þessi elska róaði mig niður í öll skiptin og kom svo og kynnti sig fyrir mér. Ji, hvað ég elska svona konur! (Svona konur sem segja manni að það verði allt í lagi og maður trúir þeim af því að þær hafa rétt fyrir sér.)

Mér þótti alveg ótrúlega vænt um hvað allir voru elskulegir við svona kvíðasjúkling eins og mig hvað varðar svona mál. Veit að það er ekki sjálfgefið. Símadaman á sjúkraþjálfaradeildinni mætti nú alveg taka hana Maríu mína til fyrirmyndar;)

For real...

Tuesday, September 3, 2013

ófrjósemisaðgerð

það var í sjónvarpsfréttunum á RÚV núna rétt í þessu (í plúsinu) að það deyja 60-80 manns árlega á Landsspítalanum vegna mistaka.

Það er nú aldeilis uppörvandi að heyra tveimur dögum fyrir aðgerð.

Og núna er ég komin með hita og allt saman:/ Kannski er alheimurinn að vara mig við þessari aðgerð með því að láta mig verða það veika að ég get ekki farið í hana.

Omg. omg. omg.

Digital detox

Held að besta vikan á árinu hingað til hafi verið þegar ég fór út í Flatey. Þá fór ég í "digital detox" í viku og horfði ekki á sjónvarp, fór ekki í tölvu, ekkert á netið (var ekki komin með nýja símann) og vissi basically ekki hvað var að frétta í umheiminum.

Eins og ég segi. Besta vikan hingað til á árinu.

Mér finnst ofbeldi og nauðganir vera svo algengt í sjónvarpinu og á netinu. Er ekki alveg að meika þetta. Fór að skæla í fyrrakvöld þegar ég var að horfa á þátt á RÚV sem ég held að heiti hálfbróðurinn og er norskur þáttur. Þar var stelpu nauðgað og ég bara var ekki að meika að horfa á þetta. Í gærkvöldi var ég að horfa með öðru auganu á seinni helming þátts með Piers Brosnan og þá einmitt var konu nauðgað og ekki nóg með það, stelpan hennar var tekinn á meðan og henni drekkt í vatninu. Ég meika þetta ekki.

Það fyrsta sem ég sé á internetinu í morgun (já, á facebook) er ungabarn sem hefur verið beitt ofbeldi. Marblettir út um allt á því. Er ekki að meika þetta.

Það að gerast bara hippi og flytja út í sveit hljómar mjög heillandi núna. Ég gæti ræktað mitt eigið grænmeti.

ást og friður.

Monday, September 2, 2013

slöpp

afskaplega finnst mér undarlegt að vera slöpp. Það gerist yfirleitt aldrei. Vaknaði með velgju, slappleika, beinverki og hafði ekki lyst á morgunmatnum. Það gerist aldrei!

Viðurkenni að ég var í kvíðakasti út af aðgerðinni alla helgina, alveg þannig að ég gat ekki sofið. Ætlaði að vera í e-u dramakasti í dag líka en varð svo bara ógeðslega pirruð á þessum helvítis aumingjaskap í mér og skipaði sjálfri mér að steinhætta þessu væli.

Og þá líður mér vel aftur.

Það verður nú samt alveg fínt þegar þetta verður búið sko.

Thursday, August 29, 2013

klippa hárið stutt eða permanent?

Serious hair dilemma!

Pee into the wind

Face your fears. Pee into the wind!

Ætla svo að fara í þessa aðgerð.

naglar

það er ófremdarástand á lóðinni í kringum blokkina. Hingað eru komnir menn að vinna í pípulögnunum og laga drenið. Allt er í hers höndum.

Þessir menn eru svo miklir naglar að þeir reykja án þess að taka sígarettuna út úr munninum. Þeir nota hendurnar til að vinna og sígarettan er bara í kjaftinum. Líka þegar þeir tala saman. Sem er á testesterón hlöðnum nótunum.

Þetta er alveg sér ættbálkur. Aldrei gat ég bara reykt án þess að nota hendurnar og þóttist ég nú vera mikill nagli.

Wednesday, August 28, 2013

ófrjósemisaðgerð

Ætlaði að vera voða sterk og fara í ófrjósemisaðgerð. Það var hringt í mig í gær og ég boðuð á fimmtudaginn í næstu viku í aðgerðina. Jahú!!! hugsaði ég.

Nei, nei, nei og nei. Þetta er ekki að fara gerast. Fékk sent það sem gert er í aðgerðinni og það sem gæti gerst eftir aðgerðina og það sem gerist eftir aðgerðina. Nei, nei, nei.

NEI!!!!

Hvað gera sjómenn þá?

Betsy

Stefán Máni kallar litlu systur sína Betsy. Mér þykir það svo dúllulegt af því að ég hef ekki hugmynd um hvernig honum datt þetta nafn í hug. Stefán er svona frekar feiminn og tilbaka þess vegna finnst mér þetta svo skemmtilegt.

Þegar litla systir kveinkar sér eitthvað eða lætur heyra í sér þegar hann er heima tekur hann mikið viðbragð og hrópar: "Betsy mín!! Hvað er að elskan!!"

Monday, August 26, 2013

SLÖKUN

Fyrir nokkrum vikum byrjaði ég að fá mér magnesium í duftformi. Þetta heitir Náttúruleg slökun og er lýst sem styrk gegn streitu. Það stendur á umbúðunum að efnið komi jafnvægi á kalk upptöku og að það jafni heilbrigt magn magnesíum í líkamanum. Þetta lítur svona út:



Eftir að hafa tekið þetta líður mér svipað eins og mér leið þegar ég byrjaði að taka járnið í fljótandi formi. Það var eins og mér hefði verið stungið í samband eftir að hafa verið batteríslaus. Maður tekur þetta í fljótandi formi sem hefur bestan árangur. Þetta er svona duft sem freyðir. Maður á að setja u.þ.b. teskeið í heitt vatn og kæla það svo niður með köldu vatni og drekka svo.

Þegar ég var í apótekinu um daginn gluggaði ég í bækling um þessa vöru og þar kom fram að efnið vinnur gegn tilfinningasveiflum (;))

Eitthvað fyrir mig :D

Friday, August 23, 2013

Okkar besta fólk

(varúð: hér ræði ég frekar um útópíuna mína um stjórnskipan landsins.)

Er orðin svo þreytt á hægri og vinstri og persónuárásum stjórnmálamanna og sandkassaleik. Var að hlusta á þáttinn sem er alltaf á Bylgunni um og kringum kl 16 þar sem fólk hringir inn og ræðir mál líðandi stundar.

Það hringdi inn maður og vildi fá að vita hvar peningarnir væru. "Hvar eru skattpeningarnir okkar? Í hvað fara peningarnir? Ekki fer það í að gera við göturnar, svo mikið er víst! Ekki fer það í spítalann eða heilbrigðiskerfið, svo mikið er víst! Hvar er peningarnir?!"

(Varð hér ekki gríðarlega stórt þjóðargjaldþrot fyrir nokkrum árum?)

Allavegana, svo hringdi inn maður sem stakk upp á því að á Alþingi sæti "okkar besta fólk."

Hans hugmynd var að launin yrðu hækkuð upp í alvöru forstjóralaun svo að við myndum fá okkar úrvalsfólk til að sinna alþingisstörfunum. Mér finnst svo mikið vit í þessu. Auðvitað á fólk með góða menntun og hæfileika, okkar úrvalsfólk, að sjá um stjórn landsins í stað valdasjúks fólks sem er kannski með 10% fylgi á bakvið sig.

Þeir hæfustu á hverju sviði hverju sinni ættu að sinna því. Okkar úrvalsmanneskja á sviði til dæmis utanríkismála ætti að sinna þeim málum og vera þá skipuð í það starf o.s. frv...

Þetta meikar bara svo mikinn sens fyrir mig.

Brian Tracy - Hámarksárangur

Elska þessa bók. Hún hefur kennt mér svo margt.

Þessi bók er alltaf á "náttborðinu" (ef ég væri með náttborð.) Eitt af því sem ég ætla að tileinka mér og kemur fram í þessari bók er að alltaf segja börnunum mínum að þau séu frábær.

Brian segir í bókinni að hann segi sínum börnum að þau séu best í heimi á hverjum degi. Hann segir þeim að þau séu frábær og að hann elski þau. Ég hef gert þetta markvist með Óla minn og finn að það virkar. Hann er reyndar svo frábært eintak af barni að það er auðvelt að vera sannfærandi.

Ég held að ef að allir foreldrar myndu tileinka sér þetta þá myndu sálfræðingar verða atvinnulausir og ölkunum myndi fækka.

Núna er að byrja á næsta barni, honum Stefáni Mána. Ég hef reyndar byrjað en ég held að hann verði að þroskast aðeins meir þangað til hann nær innihaldinu. Hann er soddann óþekktarangi stundum:/

Þetta er Brian Tracy. Ætla að fara á youtube og finna eitthvað bitastætt með honum.




Thursday, August 22, 2013

holy fuck!

Shit. Shit. Shit.

Takk fyrir. Takk fyrir. Takk fyrir.

Fór með Guðrúnu Höllu á skólasetninguna hjá Óla. Ætlaði nú ekkert að fara af því ég er með hana en ákvað svo að fara bara með hana þar sem Óli vildi að við kæmum. Allt gekk vel framan af. Skólasetningin í salnum gekk mjög vel svo förum við upp í skólastofuna og Óli vill endilega halda við hana þar sem hún situr (5 1/2 mánaða) upp á skólaborðinu sem er nú mjög hátt. Allavegana þar sem ég er að gufast þarna eitthvað á bakvið þau að spá í e-u allt öðru og ekki neinu þá sleppir Ólafur Tryggvi haldinu á henni og hún rennur og dettur úr setstöðunni. Hún var að detta beinustu leið á gólfið (hátt fall) þegar Kittý grípur hana.

Omg.

Það munaði engu að stórslys hefði orðið og það beint fyrir framan nefið á öllum sem í stofunni voru. Ég hefði alveg fengið foreldraverðlaunin.

Phhheeeew! Og takk kærlega fyrir Kittý Andersen. Omg.

Wednesday, August 21, 2013

Sólin

Í dag er Emilía Sól okkar 8 ára gömul.

Mér finnst ég vera heppin með aukabarnið mitt sem er svona allajafna frekar auðveld í samskiptum. Hún er samt ennþá mjög feimin við mig þó ég hafi þekkt hana svo til síðan hún fæddist...

Til hamingju með daginn þinn Sólin mín.

Tuesday, August 20, 2013

tanntaka

elsku litla ástin í lífi mínu er að glíma við tanntöku.

Núna er fyrsta tönninn komin upp á yfirborðið og elsku litla stelpan mín á svo mikið bágt. Þetta tekur greinilega rosalega mikið á. Hún hefur verið mjög pirruð það sem af er degi en sefur nú eins og steinn þetta ljós.

ástin mín..

Monday, August 19, 2013

5 ára aldurinn

getur verið skemmtilegur en hann getur líka verið leiðinlegur og á stundum vandræðalegur.

Stefán Máni er að uppgötva ýmsa hluti á þessum aldri eins og eðlilegt er og núna um helgina varð honum tíðrætt um dauðann. Hann var að velta þessu mikið fyrir sér og komst að þeirri niðurstöðu að gamalt fólk deyr fyrst. (Ji, það er meira að segja vandræðalegt að skrifa þetta..)

Svo vorum við í veislu um helgina, akkúrat þegar hann var að velta þessu ákveðna efni fyrir sér, og barnið basically segir við langömmu sína að hún sé næst.

Stundum langar manni bara að sökkva niður í jörðina.. sem hefði reyndar verið erfitt í þessu tilfelli þar sem við vorum stödd upp á 12. hæð

...:/

Thursday, August 15, 2013

omg, ég er "þetta lið"

áður fyrr leit ég á þá sem voru á jeppum dáldið svona skringilega. Bæði af því að ég öfundaði þá en líka af því mér var í nöp við þá vegna þess að þeir menguðu meira en ég og voru ógeðslega stórkallalegir og fyrirferðamiklir í umferðinni. Bara svona völtuðu yfir mig sem var þá á Yarisnum. Þetta lið!

Núna er ég þetta lið:/ Er óvænt komin á Nissan Pathfinder og er enn að finna mig í honum. Hef aldrei keyrt svona stóran bíl áður og er mjög klunnaleg, sérstaklega þegar ég er að reyna að leggja í stæði. Fjarlægðarskynið er alveg brenglað og það munaði mjög litlu að ég bakkaði á bíl í dag þegar ég var að krönglast á bílastæðinu í leikskólanum hans Stefáns í Grænuhlíðinni sem er svo þröngt, lítið og asnalegt að það hálfa væri nóg. Asnaðist þarna inn á þessum stóra kagga og þegar maður er búinn að keyra þarna inn löngu mjóu innkeyrsluna þá er bara ekki aftur snúið ef öll stæðin eru upptekin. Það er bara stórmál að snúa við á svona stórum bíl. Þetta var akkúrat kl 16 óvart og af því að ég var með Guðrúnu Höllu datt mér í hug að "smeygja" mér inn. Já, nei nei.

Ég var eins og fíll í glerhúsi! Maður smeygir sér ekkert á þessum bíl. Fékk skrýtið augnaráð frá allavegana einni mömmunni og það var ÁÐUR en ég var næstum því búin að klessa á bílinn. Maður sér ekki einu sinni svo vel þessu litlu bíla af því maður er svo stór eitthvað.

Díses. Ég er þetta lið. Það er bara þannig.


Side effects

Leigði þessa mynd á "leigunni" í fyrradag til að gera mér glaðan dag. Hún hljómaði spennandi og leikararnir voru ekki af verri endanum: Channing Tatum, Jude Law og Catarina Zeta Jones. Lofaði góðu..

Svo var þetta ekkert sérstök mynd. Fattaði svo seinna (þegar ég lá andvaka vegna kælipressunnar) hversu ótrúverðug hún var líka. Kærastan hans Channings er mjög þunglynd í þessari mynd og fer á þunglyndislyf. Þau virka ekki sem skyldi þannig að hún fer á nýtt lyf sem er nýkomið á markaðinn og tekur líka önnur lyf með. Allavegana, endar með því að hún drepur kærastann sinn í svefni með því að stinga hann með hníf. Hún er sem sagt sofandi og hann glaðvakandi þar sem þetta gerðist að degi til. Allavegana, konan er einhver písl og Channing er mjög sterklega byggður, mjög hávaxinn og þrekinn. Glætan! Myndi maður ekki verja sig og bregðast sterklega við eftir fyrstu stunguna? Þetta voru sem sagt þrjár hnífsstungur (í kviðinn fyrst) og glætan að hún hafi verið það sterk að geta stungið hann verandi sofandi og allt!

Allavegana, kannski hefur maður bara of miklar væntingar til kvikmynda sem og annars. Eins og vitur kona eitt sinn sagði:


"Lífið hefst þegar væntingum lýkur."

Tuesday, August 13, 2013

Drottinn blessi heimið

Fór í blómabúð í gær og eins og alltaf er maður aðeins að tékka í kringum sig hvort maður finni eitthvað flott á nýja heimilið.

Var svo ánægð þegar ég sá svona skilti eða hvað sem maður kallar það, platti kannski, til að hengja upp á vegg í forstofunni. Þetta var svona "Drottinn blessi heimilið" dæmi einmitt í þeim litum sem mér finnst flottir og letrinu sem mér finnst flott líka. Nema einmitt þetta; það er bara einum of mikil stafsetningarvilla að skrifa "Drottinn blessi heimið" í stað "Drottinn blessi heimilið." Bara aðeins...

Stafsetningarvillur eru ekki alveg málið alltaf, ha...

þemavika nr. II

Loksins komið að "the good stuff."

Þema síðustu viku var lífeyrismál og ég er alveg fegin að þau mál eru frágengin. Ákvað að halda mig við þann lífeyrissjóð sem ég hef verið að greiða í sem er Gildi. Kom því svo í gagnið að hefja viðbótarlífeyrissparnað sem eru þá þessi hefðbundnu 2% af mánaðarlaununum.

Allavegana, þá er þemað fyrir þessa viku "vision board."

Ég er aðdáandi myndarinnar "The Secret" sem fjallar um mátt aðdráttaraflsins. Þar er talað um að gott sé að hafa svona "vision board" þar sem maður setur myndir af því sem manni langar til að kalla fram í lífinu. Ég er komin með korktöflu og ætla að skipta henni í fjóra hluta. Efst í hægra horninu eru húsnæðismál. Þar set ég mynd af einbýlishúsi því ég er alveg sannfærð um að ég sé best geymd í einbýlishúsi. Núna er þetta hljóð í kælipressunni að halda fyrir mér vöku hverja einustu nótt sem myndi ekki vera vandamál ef ég byggi í einbýlishúsi. Ég myndi einfaldlega ekki hafa þessa pressu til að byrja með. Efst í vinstra horninu ætla ég að hafa fitness markmið. Hvað ég vil vera þung og í hvaða jógastöður mig langar til að komast í án vandkvæða. Neðst í vinstra horninu ætla ég að hafa markmið fyrir vinnuna. Hvernig vinnu mig langar til að vinna, hvaða eiginleika vinnan á að hafa, starfshlutfallið og æskileg laun. Neðst í vinstra horninu til hægri ætla ég að hafa markmið fyrir ferðalög. Mig langar í skíðaferð og mig langar til sólarlanda að tana o.s. frv....

spennandi:)

Monday, August 12, 2013

Operation Stefán Máni

Jæja, nú erum við foreldrarnir búnir að fá nóg af ólátunum í Stefán Mána og höfum einsetið okkur tvær grundvallarreglur:

Það er enginn i-pad eftir kl. 20 sem er einmitt tíminn sem strákarnir koma til með að fara í háttinn þegar það er skóli daginn eftir.

Og hana nú!

Friday, August 9, 2013

In with the new, out with the old

Það er búið að vera mikil andleg hreinsun að flytja. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það er sem ég fæ svona mikið út úr því að henda hlutum, en það er eitthvað!

Núna er ég að fara henda kommóðu sem var hluti af skrifborðs-húsgagna-einingu sem ég fékk þegar ég var krakki. Síðan þá hef ég málað þessa kommóðu og spreyjað hana og hún hefur alltaf fylgt mér, var með mér í þessi 10 ár sem ég bjó í Bogahlíðinni enda hef ég alltaf geymt reikninga, trygginga- og lífeyrismál í einni skúffunni, kort og póst í miðskúffunni og svo hafa leyndarmálin mín verið í læstri skúffu (efsta skúffan.)

Núna er kommóðan orðin vel sjúskuð og ég er ekki unglingur lengur svo ég þarf ekki að vera með leyndarmálaskúffu. Henti því sem ég hef ekki viljað að aðrir myndu sjá, gamlar partýmyndir og skrif og kom bréfunum frá afa fyrir á öruggum stað. Sem sagt, engar læstar hirslur lengur, engin leyndarmál.

Er ekki frá því að þetta hafi verið enn ein ágætis hreinsunin:) Búið að vera mikið um góðar hreinsanir síðan ég flutti. Gömul hugsanamynstur hafa allt að því gufað upp (svona næstum því) og það hefur verið mikil frelsun að skipta um húsnæði.

Ný byrjun.

Thursday, August 8, 2013

2. hæð

Það er talsverður munur sem fylgir því að búa á jarðhæð og búa á annarri hæð.

Mér finnst ég vera á einhvern hátt öruggari að búa á annarri hæð og svo finnst mér líka útsýnið betra. Hins vegar verð ég að segja að ég sakna þess mjög mikið að geta ekki bara farið út og þvegið rúðurnar að utan. Alveg! Það er sérstaklega stofuglugginn í vestri sem aldrei virðist rigna beint á sem er orðinn skítugur.

Svo sakna ég þess smá líka núna að geta ekki haft vagninn úti í garði og getað þá stokkið beint út ef eitthvað kemur upp á...

hmmm....

Wednesday, August 7, 2013

Confessions of a desperate housewife, part V

omg.

Það er háleitt markmið að ná fullum nætursvefni á þessu heimili en ég lét vaða og gerði mjög heiðarlega tilraun í gærkvöldi. Undirbjó þetta allan daginn með því að passa að ég ætti ekkert húsmóðursverkefni eftir um kvöldið. Var búin að ganga frá þvottinum fyrir kvöldmat og var búin að setja uppþvottavélina af stað tiltölulega beint eftir kvöldmatinn.

Nei, nei. Guðrún Halla hafði fengið spautur fyrr um daginn í ungbarnaeftirlitinu, tvo kokkteila til varnar ýmsum sjúkdómum og var greinilega öll pirruð eftir það. Ætlaði aldrei að sofna og vaknaði svo nokkrum sinnum í nótt. Stefán Máni var líka út um allt í gærkvöldi og ætlaði aldrei að sofna og hélt vöku fyrir öllum eins og vanalega. Þetta barn!

Ef einhver er að hugsa núna: af hverju fer Stefán Máni ekki fyrr að sofa þá er hinum sama guðvelkomið að koma hingað og reyna að svæfa barnið á skikkanlegum tíma. Okkur hefur ekki tekist það með góðu móti hingað til:/

Sem sagt enn einn dagurinn þar sem mann langar dáldið mikið að fara bara aftur upp í rúm og kúra aðeins..


Tuesday, August 6, 2013

Halleluja!!

Leikskólinn er byrjaður hjá Stefáni. Dýrð sé þeim sem fann upp á leikskólunum og kom þeim á koppinn. Þvílíkur snilldarstaður til að geyma börn á.

Can I get an Amen!!?

:)

Monday, August 5, 2013

þema fyrir hverja viku

Er alveg steinhörð á því að vera sem mest "productive" í orlofinu mínu og framkvæma þá hluti sem mér finnst ég annars ekki hafa tíma fyrir, þ.e.a.s. þegar ég byrja aftur að vinna.

Er komin með ágætis verkefnablað yfir hluti til að gera það sem eftir lifir af fæðingarorlofinu mínu. Ákvað að byrja á verkefnablaðinu í þessari viku þar sem leikskólinn byrjar aftur hjá Stefáni á morgun. Ákvað líka að byrja á því erfiðasta, því sem mér þætti leiðinlegast, til að geta gert það skemmtilegasta í næstu viku.

Ég ætla sem sagt að hafa svona þema-vikur. Í þessari viku er þemað lífeyrissjóðsmál. Ég sofnaði næstum því á meðan ég skrifaði þetta orð mér finnst það svo óspennandi eitthvað. Allavegana. Er í ákveðnum lífeyrissjóð og ætlaði að athuga með hvort ég ætti að skipta. Er þess vegna að skoða mismunandi lífeyrissjóði þessa vikuna og vega og meta kosti þeirra og galla. Svo ætla ég að byrja á viðbótarlífeyrissparnaði þegar ég byrja aftur að vinna.

Fun fun fun.....

Sunday, August 4, 2013

Almættið

Mér þykir almættið hafa undarlegan húmor þessa dagana. Stundum finnst mér eins og það leggji (?) fyrir mann hvert prófið á fætur öðru og fylgist svo átekta með hvernig maður höndli það.

Ég er alveg óskaplega viðkvæm fyrir hvers lags hljóðum. Hljóð trufla mig, sérstaklega ef ég er að reyna að sofa. Mamma sagði mér um daginn að ég hefði alltaf verið svona, líka sem ungabarn, að ég hefði vaknað upp við hvers kyns hljóð þegar ég var að blunda í vagninum.

Ég fékk "flashback" þegar ég gisti þessa einu nótt í Hreiðrinu um daginn eftir að ég fæddi Guðrúnu Höllu. Ég svaf ekkert út af látunum í loftræstikerfinu og man eins og það hefði gerst nóttunni á undan að ég einmitt svaf ekki dúr út af sömu látum nóttina eftir að ég átti Stefán Mána. Svanur aftur á móti getur sofið við hvaða hljóð sem er. Hann segist heyra þessi hljóð en þau fara bara ekki í taugarnar á honum (!)

Eitt af því sem ég hlakkaði mest til við að flytja í nýja íbúð var að geta loksins sofið í svefnherbergi sem væri (vonandi) ekki með neinum látum í en fjölskyldan fyrir ofan mig í Bogahlíðinni vakti mig iðullega þar sem stofan þeirra var beint fyrir ofan svefnherbergið mitt. Þetta valdi mér þónokkru hugarangri þar sem óvenju hljóðbært var í Bogahlíðinni.

Sveif um á bleiku skýji eftir að ég flutti fyrst hingað í Stigahlíðina en núna er kaldhæðnin í hámarki þar sem fáránleg kælipressa niðrí kjallara (beint undir svefnherberginu mínu) er að gera mér lífið leitt. Þessi kælipressa er tilkomin vegna þess að hverri íbúð fylgir kæliherbergi sem hægt er að nota sem ísskáp. Voða sniðugt.

Mér þætti þetta allt saman mjög sniðugt ef þessi blessaða kælipressa gæfi ekki frá sér næstum því stöðugt mótorhljóð. Núna er helvítis pressan biluð svo að óhljóðin eru viðvarandi, sérstaklega á nóttunni og á morgnana.

Ég sem ætlaði að vera svo dugleg við að kvarta ekki get eiginlega ekki setið á mér lengur. Við Guðrún Halla gátum lítið sofið í nótt vegna látanna:(

Spurning hvort maður ætti að kvarta (aftur) við formanninn ..... :/


Saturday, August 3, 2013

að lifa af sumarfríið í leikskólanum

stundum er alveg málið að taka einn dag í einu og lifa hann af.

Það hefur klárlega verið málið að lifa af sumarfríið í leikskólanum hans Stefáns. Stundum er nefnilega alveg nóg að vera bara með eitt 5 mánaða gamalt barn og sinna bara því, sérstaklega þegar manni er mjög illt í bakinu og getur varla tekið það barn upp. Að vera ein með fjögur börn er þess vegna ekki alveg málið.

En þá er nú gott að eiga góða mömmu sem bjargar deginum aftur og aftur og aftur. Það verður rosalega gott að geta endurgoldið greiðann einhvern daginn. Því það er gott ef ekki betra að gefa en að þiggja. 

Takk elsku mamma. Ég elska þig alltaf.




Thursday, July 18, 2013

giggling teenager again

ji minn eini.

Gabriel Macht er á landinu. Hann er æði. Hann hefur helst unnið sér það til frægðar að leika hinn harðsvíraða samningamann og lögfræðing Harvey Spector í þáttunum Suits sem eru uppáhaldsþættirnir mínir núna og eru sýndir á stöð 2. Núna er bara einn þáttur eftir í þáttaröðinni..

Ég er einlægur aðdáandi og tók svona "óvart" langa hjólatúrinn minn niður í bæ áðan. Maður veit aldrei nema maður hefði rekist á hann.... djók (samt ekki.)

Hérna er mynd af honum:





mmmmm.....

Monday, July 15, 2013

Omg

Nýr bíll!

Vei, vei, vei!!

Nissan Pathfinder, silfurgrár. Kallinn keypti hann notaðan, keyrðan 106.000 km. Hann er æði.


Lítur svona út. (Myndin reyndar fundin á netinu en ekki tekin af sjálfum bílnum.)

Happy, happy, happy:)



Wednesday, July 10, 2013

Hver dagur er ævintýri með honum Stefáni mínum...:)

Fórum í ævintýraferð í dag og tókum tvo strætóa í Kópavoginn til að hitta húðlækninn hans Stefáns. Tókum svo tvo strætóa aftur heim.

Stefáni fannst mjög gaman og spennandi að fara í strætó! Hefði ekki alveg grunað það...


Monday, July 8, 2013

Yesterday was OK

Það rættist nú aldeilis úr gærdeginum.

Útlitið var alls ekki gott. Það var mígandi rigning úti, strákarnir voru búnir að vera í tölvunni allan daginn og voru erfiðir. Eftir bílferð út á Sorpu og í Bónus var ástandið bara verra, allir frekar þreyttir og pirraðir.

Skynsamir foreldrar sáu að drengirnir þurftu á útrás að halda og það kom í minn hlut að fara með þá í hjólatúr. Í grenjandi rigningunni. Ég ákvað að ferðinni skyldi haldið niðrí Vatnsmýri til að skoða sirkustjöldin. Leiðin þangað var fyrirsjáanleg. Eftir að hafa dottið fimm sinnum langaði mínum fimm ára heim og bar sig illa. En einhvern veginn komumst við á áfangastað. Rigningin hélt bara áfram og við vorum blaut frá toppi til táar og ég var sérstaklega blautt á rassinum og sokkarnir mínir voru gegnsósa (seinna kom í ljós að sólarnir eru lausir svo það er skýringin á því.)

Allavegana, ég ákveð í örvæntingu minni að kaupa miða á næstu sýningu, liggur við bara til að komast einhvers staðar inn! Hugsaði með mér þvílíkt endæmis vesen ég væri búin að koma mér í þegar ég komst að því að miðinn kostaði 4000 kr Á MANN og ég hafði enga hugmynd hvar ég ætti að geyma hlaupahjólið hans Óla og hjólið hans Stefáns á meðan..

(But out of my great despair came divinity.) Allt reddaðist þetta á endanum. Eftir að hafa staðið í röð (úti) til að kaupa poppkorn og candyfloss fyrir strákana og svo í annarri röð (líka úti) eftir að komast inn í sirkustjaldið til að sjá sýninguna tóku notalegheitin við. Ég er sannfærð um að englarnir sem fylgja mér sáu til þess að Óli minn sá laus sæti fremst til hliðar af því að það kom í ljós að blásarinn (eða hvað dótið heitir) sem sér um að blása hlýju lofti í tjaldið var akkúrat á besta stað fyrir okkur til að hlýja okkur. Ef við hefðum verið einu sæti til vinstri þá hefði allur hitinn farið á okkur og þetta hefði verið allt of heitt en ef við hefðum verið einu sæti til hægri þá hefðum við misst af hitanum. Tjaldið var smekkfullt svo það var frábært að fá akkúrat þessi sæti.

Sýningin var svo líka æðisleg og hélt athygli okkar allan tímann. Við hlógum og skemmtum okkur mjög vel. Þetta var ekki síður gaman fyrir mig en strákana. Þetta er finnskur sirkushópur sem samanstóð af ungum krökkum. Sýningin hét pluto cracy. Þetta var alveg frábært. Svo glöð með hvernig dagurinn endaði!

Það var reyndar smá panik eftir sýninguna þar sem ég hélt að hjólinu hans Stefáns hefði verið stolið en ég hafði fengið að geyma það upp við miðasöluna og hlaupahjólið hans Óla inni í miðasölunni en þá var Svanur, sem var kominn til að sækja okkur, búinn að setja það inn í bílinn (phew..!)



Ég átti nefnilega ekki von á að komast á sýningu þar sem ég hafði verið á midi.is fyrr um daginn og bara fundið miða fyrir næstu helgi (sem ég reyndar keypti líka) og hélt þess vegna að allt væri uppselt eða eitthvað.

Það er alveg frábært að sirkusinn er í bænum akkúrat þegar það er rigning og svona og skólarnir í frí og manni bráðvantar eitthvað að gera fyrir börnin. Snilld.



Thursday, July 4, 2013

Járn í fljótandi formi

Ég var svo heppin að hitta Tinnu í síðustu viku. Við vorum að rölta í miðbænum og ég fór með henni í Heilsuhúsið. Mér til mikillar lukku varð úr að ég keypti járn í fljótandi formi eins og Tinna var að kaupa.

Og hamingjan eina, hvað ég sé ekki eftir því. Þetta var bara akkúrat það sem ég þurfti!

Náði að svífa um á bleiku skýi í einn dag áður en ósköpin dundu yfir. Hið mánaðarlega er byrjað aftur:/ Rósa frænka í heimsókn! Þvílíkt helvíti sem er lagt á okkur konur. Það er ekki nóg með að allt sé út um allt þá leggst þetta einhvern veginn á allan líkamann líka. Tala nú ekki um geðheilsuna..

Ef bara ég gæti gert samning við Guð, þar sem ég ætla núna alls, alls ekki að eignast fleiri börn að hann myndi þá leyfa mér að losna við þennan óbjóð í staðinn. Ha?

Wednesday, July 3, 2013

Þrautseigja

Verð að gefa sjálfri mér hrós fyrir eigin þrautseigju; ef ég byrja á einhverju - þá klára ég það.

Núna á þetta við um bók sem ég er að lesa. Ég les bara eina bók í einu og byrja á þeirri næstu eftir það. Núna er ég að lesa herfilega leiðinlega bók (að mínu mati) en þræla mér í gegnum hana bara til að klára hana. Úff..

En það bíður mín spennandi bók þegar ég er búin með þessa. Það er eitt til að hlakka til:)

P.s. geri ekki bókagagnrýnisblogg um þessa bók sem ég er að lesa núna af því að ég er góð manneskja og vil ekki rakka bókina né höfundinn niður. Ekki minn stíll. En höfundurinn er íslensk kona og bókin kom út fyrir síðustu jól. Say no more..

Monday, July 1, 2013

Hugleiðingar um lýðræði

Eftirfarandi eru hugleiðingar mínar um lýðræði. Þetta eru hugsanir um annan valkost en núverandi stjórnarfyrirkomulag. Ekki til að taka of alvarlega! En ætli ég sé sú eina sem orðin frekar þreytt á þessum valdablokkum og sandkassaleik þarna á Alþingi...?

Ísland er lýðræðisríki. Ætli við getum ekki öll verið sammála um það.

En hvað felst í orðinu lýðræði? Lýðurinn ræður. Fólkið ræður. Kjósendur ráða.

Að mínu viti eru núverandi stjórnarhættir ekki mjög lýðræðislegir. Á árunum fyrir hrun var Framsóknarflokkurinn í ríkisstjórn þrátt fyrir að vera aðeins með um 11,7% fylgi árið 2007. Þetta finnst mér ekki vera lýðræði. Flokkurinn hafði aðeins fylgi 11,7% þjóðarinnar á bakvið sig en sat samt sem áður í ríkisstjórn með sína ráðherra og gerði fjölmörg mistök.

Siv Friðleifsdóttir hunsaði álit um náttúruverndarsjónarmið og gerði Kárahnjúkavirkjun að veruleika. Virkjunin var skammtímalausn í þeirri viðleitni að auka hagvöxt. Árangurinn er líflaust Lagarfljót. Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi viðskipta- og efnahagsráðherra, afhenti Landsbankann í hendurnar á útrásarvíkingi með þeim afleiðingum að bankinn fór á hausinn - og Ísland líka. Framsóknarflokkurinn átti líka sinn þátt í því að koma 90% húsnæðislánunum á árunum fyrir hrun sem átti svo sinn þátt í hruninu.

Það sem ég er að reyna að segja er að á tímum þar sem traust almennings á stjórnmálaflokka og Alþingi hefur sjaldan eða aldrei verið minna er kannski tími kominn til að hugsa aðeins út fyrir kassann. Hvernig væri að hafa meira beint lýðræði í lýðræðisríkinu Íslandi og hafa fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur? Gefa pólitíkinni frí og leyfa vel gefnum fræðimönnum að vinna á Alþingi sem er jú löggjafarsamkunda. Út með hagsmunatengsl, hagsmunapot, valdablokkir, valdabaráttu, baktjaldamakk og inn með akademískt hlutleysi þar sem besti mögulegi valkosturinn er valinn að vel ígrunduðu máli hverju sinni. Já?

Í alþingiskosningunum á þessu ári heyrði ég minnst á þá hugmynd að hafa landið eitt kjördæmi og hefja hér persónukosningar. Mér finnst áhugavert að ræða um þessa hugmynd. Markmiðið hlýtur að vera að lágmarka hagsmunatengsl og spillingu. Af hverju ekki að ímynda sér í smá stund að það væru engir stjórnmálaflokkar heldur bara einstaklingar í framboði. Reglur yrðu settar um styrki, þ.e.a.s. að ekki væri heimilt að styrkja hvern kandidat nema að ákveðnu marki og frambjóðendur mættu ekki auglýsa sig sérstaklega heldur fengju allir sömu kynninguna. Fjórða valdið (fjölmiðlar) yrðu fljótir að upplýsa kjósendur um hvers kyns spillingu. Alþingi yrði þá ópólitísk embættismannastofnun þar sem fræðimenn ynnu og ríkisstjórnin yrði líka einstaklingskjörnir af þjóðinni. Ég sé fyrir mér að þá myndi hæfasta fólkið á hverju sviði hverju sinni vera í framboði (frambjóðendur til umhverfisráðherra myndu þá vera fróðasta fólkið á því sviði o.s.frv.) Það virðist ekki vera mikið vit í því að stjórnmálamenn í stjórnmálaflokkum raðist í ráðherrastólana eftir úrslitum alþingiskosninga eins og er núna. Þannig veljast núna menn í ráðherrastólana sem hafa ekki endilega þekkinguna á bakvið sig.

Í þessari útópíuhugsjón minni þá eru engar valdablokkir en fullt gegnsæi. Allt er upp á borðinu - alltaf. Engir leynifundir og engar ákvarðanir teknar í reykmettuðum bakherbergjum, já eða í gufunni..

Í þessari hugsjón minni eru ekki vinstri og hægri stjórnir. Það virðist ekki vera mikið vit í því að það sé til dæmis hægri stjórn. Svo gerir hún upp á bak og þá er kostin vinstri stjórn sem eyðir auðvitað kjörtímabilinu í að gera hlutina eftir sínu höfði. Þá eru aftur kosningar og hægri stjórn er kosin sem fer beint í að breyta því sem vinstri stjórnin var að vinna að. Gott dæmi er ESB aðildarviðræðurnar. Mig langar ekki einu sinni að vita hversu miklu af peningunum okkar var eytt í þessar viðræður sem eru svo bara blásnar af þegar næsta stjórn tekur við.

Þvílík endemis peninga-og orkusóun sem núverandi stjórnarhættir eru. Ísland myndi vera betur statt án pólitíkarinnar. Eða það er allavegana mitt álit. Ég held að hlutlausir, óháðir og óflokksbundnir fræðimenn í öll embætti sé alveg málið.

Yes, yes?

Friday, June 28, 2013

Confessions of a desperate housewife, part III

Setti í heilar þrjár þvottavélar í dag en það sér ekki högg á vatni í óhreinatauskörfunni!

Sé fyrir mér heilu fjöllin af ókomnu óhreinu taui af krökkunum næstu árin. Ó mæ.




Thursday, June 27, 2013

Stórskemmtileg vika

Mikið er ég ánægð með vikuna sem er að líða.

Það er búið að vera nóg að gera og mikið um hittinga. Hugtakið Maður er manns gaman á vel við þessa viku. Í dag hitti ég vinahjón mín, elsku Tinnu og Óla og Eddu litlu þeirra. Mikið er gott að þekkja gott fólk. Það er svo góð áran í kringum þau finnst mér.

Í gær kom Sólrún vinkona með Öglu sína sem var líka frábært. Tala nú ekki um að ég fékk fullt af fötum fyrir mína litlu af stelpunum hennar Sólrúnar:)

Í fyrradag fékk ég svo heimsókn frá frændfólki mínu sem var nú bara aldeilis fínt. Það var nú reyndar allt á fullu hérna heima þar sem Óli minn hafði dottið í sjóinn með símann sinn á siglinganámskeiðinu sem hann var á og hafði tekist að gleyma bakpokanum með aukafötunum (og nestinu) heima hjá vini sínum. Það var ansi hress dagur.

Svo fórum við litla í heimsókn á heilsugæslustöðina á mánudaginn þar sem kom í ljós að hún er orðin 6,820 kg!

Vagninn er líka kominn úr viðgerð svo við erum á blússandi siglinu við litla:)

Nú mætti sólin láta sjá sig, það væri fullkomnun.

Friday, June 21, 2013

lasersjón

Fór til augnlæknisins í gær, síðustu skoðunina eftir laseraðgerðina. Apparantly, þá er ég með 0,00 í sjónmælingunni. Sem sagt; hef fullkomna sjón!

Það er æði:) (en líka dáldið skrýtið..)

Wednesday, June 19, 2013

intense

ji, hvað þetta tanntökutímabil ætlar að vera krefjandi.

Barnið grætur og grætur með hnefann upp í munni. Og mamman komin með stressköggla í axlirnar af öllum þessum látum.

Mymymy...

Sunday, June 16, 2013

feeling good

mér líður alveg fáránlega vel eftir vikudvöl á uppáhalds eyjunni minni. Mikið ofboðslega er gott að kúpla sig aðeins út, breyta um umhverfi og fá frí frá siðmenningunni. Ekkert sjónvarp, engin tölva og engin vinnusímtöl. 

Mig minnir alveg endilega að ég hafi lesið í grein í e-u dagblaðinu núna um daginn að valdamesta fólkið á Íslandi ættu rætur að rekja til Breiðafjarðar. Mér þykir það ekki skrýtið, þvi ef andinn svífur e-s staðar yfir þá er það í Breiðafirði. Ætli það fylgi manni ekki stóísk ró út lífið ef maður elst upp á svona dásamlegum stað. Það er jú hugarróin sem fleytir fólkinu til metorða - eða það er allavegana kenning sem ég styð.

Það er undursamleg tilfinning að geta séð svo langt sem augað eygir til allra átta. Svo er ég allt í einu farin að sjá svo fáránlega vel. Það er kannski það líka.

Allavegana, flýt um á bleiku skýi eftir dásamlega dvöl með fólkinu mínu og vinum þeirra.

Takk fyrir mig og mína.


Tuesday, June 4, 2013

ef ég væri þannig týpa að vera með dauðalista...

... eða "death list" eins og það kallast á engilsaxnesku þá væri íslenska veðráttan að vinna sig hægt og bítandi upp í fyrsta sætið.

Kom on, það er 4. júní og mig langar ekki út! Arg:/


Monday, June 3, 2013

Viðvörunarbjöllur..

... þær hringja.

Núna er ég búin að fara eins og ekkert sé ómáluð í Kringluna allavegana tvisvar í röð. Finnst ég vera að missa það.

Núna brosar eflaust þú, lesandi góður, út í annað því það er daglegt brauð hjá mörgu kvenfólki og ekkert sjálfsagðra. En það hefur nefnilega ekki verið sjálfsagður hlutur hjá mér þangað til núna. Kona sem hefur sjaldan farið út fyrir hússins dyr án þess að vera með maskara finnst hún ekki svo vel til höfð maskaralaus. Allavegana mér.

Mér varð það á að líta í spegil í lyftunni í Kringlunni og við mér tók míns eigins spegilmynd. Mygl. Mygluð. Eða það er allavegana tilfinningin sem ég fæ.

Ég dáist að konum sem geta verið án farða og litið samt ótrúlega vel út.

Af hverju get ég ekki verið meira þannig?

Thursday, May 30, 2013

forréttindapíka

annars ætti maður ekki að vera kvarta.

Þegar ég sat á hárgreiðslustofunni í fyrradag og gluggaði í blað, það var annað hvort Mannlíf eða Nýtt líf, sá ég hræðilega auglýsingu frá UN Women eða e-m álíka samtökum sem bentu á þá staðreynd að um 137.000 stelpur/börn eru seldar/þvingaðar í hjónaband á hverjum degi. Svo var átakanleg fermingarmynd af stelpu sem myndi þá vera 13 ára er það ekki? Myndin var tvískipt og svo sást barnið við hliðina á fermingarmyndinni í brúðarkjól með mjög leiðan og skelfdan svip með karlmannskrumlu um sig.

Hrollur.

Forréttindapíka eins og ég hefur engan rétt til að kvarta yfir svefnlausum nóttum.

(Er ég nokkuð að vera dónaleg? Segir maður ekki örugglega þetta orð - forréttindapíka?)

Vona það!

Vælubíllinn

Nú veit ég ekki alveg hvernig þetta virkar. Hringi ég sjálf á vælubílinn eða hringir e-r fyrir mig? Hvað er þá númerið af því að ég þarf að hringja í hann!

Nú hefur litla 12 vikna daman mín tekið upp á því að vera óróleg á nóttunni (aftur.) Það má segja að ég sé núna á 4ða degi í vöku miðað við það að þessi kona (ég) hefur ekki fengið meira en í mesta lagi 5 tíma samfelldan svefn í allavega þrjár nætur núna.

Það var foreldrasund í gærkvöldi hjá mínum elsta sem er í 5. bekk og þar spjallaði ég við góðar manneskjur, aðra foreldra sem sagt, og hafði ánægju af. Þetta var samt erfitt vegna þess hvað ég var þreytt og ég fann allavegana þrisvar fyrir einhvers konar "hinti" af yfirliðstilfinningu. Mama mia!

Ég hélt að lausnin á þessu myndi vera að gefa henni aðeins að borða (sveskjumauk) svo hún myndi fá magafyllingu og sofna þannig södd og sæl en nei. Kl. 04:00 í nótt var ég að staulast inn í eldhúsi að hita pela fyrir hana. Ekki mín hugmynd um góða skemmtun.

En hvað gerir maður annars ekki fyrir svona fallega dömu?

rúsínan mín


(hvað-er-þetta-klikkaða-fólk-að-spá-að-setja-mig-í-þetta-apparat?! Ég-er-11-vikna!)




Tuesday, May 28, 2013

Náttúruvernd

Í dag gerist ég pólitísk og skunda niðrí bæ til að vera viðstödd afhendingu opins bréfs til nýs forsætisráðherra. Það á að fara byggja enn eitt álverið og núna í Helguvík. Díses!

Monday, May 27, 2013

Stefán Máni minn 5 ára

elsku drengurinn minn er 5 ára í dag. Hann er nú algert yndi barnið þó hann geti stundum verið pjakkur:)

mamma elskar þig ♡

                                                              

Wednesday, May 22, 2013

hápunktur dagsins:

þegar ég gerðist heimsforeldri hjá UNICEF þegar ég hitti sjálfboðaliða frá samtökunum í Austurstræti í dag.

Gefa. Gott.

:)

ferill

eins og flestar aðrar manneskjur er ég oft að hugsa um hvað það er sem mig langar til að vinna við. Hvað það er sem myndi veita mér starfsánægju, eitthvað sem mér myndi líða vel við að vinna við og eitthvað sem ég myndi vera stolt af að gera. Eitthvað sem myndi veita mér lífsfyllingu.

Ég er komin með óljósa hugmynd um hvað þetta er. Mig langar til að vinna við einhvers konar góðgerðarmál eða allavegana við eitthvað þar sem ég er að hjálpa fólki sem þarf á hjálp að halda. Eða þá að vera safna pening fyrir góðan málstað. Eitthvað í þessa áttina.

Þegar ég var atvinnulaus veturinn 2009-2010 tók ég 4ra tíma vaktir í Rauða kross búðinni á Laugaveginum. Þetta var samt ekki alla daga. Mér leið alveg ótrúlega vel af því að vera gefa svona til samfélagsins. Fékk ekki krónu fyrir en þetta gaf mér lífsfyllingu fyrir allan peninginn. Það er svo gott að gefa.

En þá er auðvitað vandinn ef mig langar til að vinna við góðgerðarstörf og hafa frjálsan vinnutíma að það eru engin laun sem fylgja því.

Hmmmm, það að vinna svona milljarð í lottóinu myndi auðvitað bjarga því:)


Tuesday, May 21, 2013

hápunktur dagsins:

... þegar ég gargaði "Stefán?! STEFÁN ??!!!!" inn í heilar tvær rútur leitandi að barninu eins og hauslaus kjúklingur í sveitaferð með leikskólanum. Svo hafði hann bara farið í rútuna "okkar" sjálfur án þess ég vissi. 
Bara sex sveitaferðir eftir.....

Thursday, May 16, 2013

þakklát

Í dag sem og aðra daga er ég þakklát. Þakklát fyrir öll þau lífsgæði sem ég bý við.

Í gær átti ég rosa bágt út af sárum bakverk. Hafði ekki getað sofið almennilega vegna hans og leið bara almennt illa. Gat ekki haldið á barninu einu sinni án þess að fá verk. Ég var því þakklát fyrir að geta með einu símtali útvegað mér tíma hjá sjúkraþjálfara samdægurs sem kippti bakinu í lag þannig að ég gat allavegana sofið í nótt. Verkurinn er reyndar ekki alveg farin en hjálp er allavegana út um allt í formi sjúkraþjálfara, hnykkjara o.s. frv...

Mér var hugsað til forfeðra minna áður en ég sofnaði í gærkvöldi. Það er mynd af sumum þeirra heima hjá ömmu. Það er ekki bros á andlitunum heldur eru þau mjög alvarleg. Þegar þau voru uppi var ekki hægt að skreppa til sjúkraþjálfara til að laga verk eða skreppa beinustu leið til læknis þegar barnið var veikt. Ji, hvað lífið hefur verið erfitt á köflum.

Guð hefur vitað að ég hefði aldrei höndlað lífið fyrr á öldum og ég er mjög þakklát fyrir að hann setti mig á þennan tíma þar sem nútímaþægindi eru fyrir hendi og fólk er með sér herbergi og þarf ekki að hafa áhyggjur af ferðafólki sem þarf að ganga úr rúmi fyrir eins og tíðkaðist í sveitum í gamla daga þar sem fjölskyldur bjuggu kannski 10 saman í einu litlu húsi.

Ég veit um allavegana eina sem hefði ekki meikað það......

Wednesday, May 15, 2013

bíllaus

Núna er ég búin að vera bíllaus í um þrjá og hálfan mánuð og er búin að vera mjög dugleg að spá ekkert í því og fara ferða minna gangandi og svona en núna er ég farin að finna aðeins fyrir því að ég sakna þess verulega að vera ekki á bíl.

Það er dáldið leiðinlegt að vera alltaf að biðja mömmu og bróður og kallinn og svona þegar maður þarf að snattast eitthvað.

Þess vegna ætla ég að biðja alheiminn og kosmósinn um Nissan Pathfinder silfurlitaðan jeppa með leðursætum:) Hann lítur svona út:


Takk fyrir, love you much:)

P.s. ég myndi að sjálfsögðu halda áfram að vera umhverfisvæn og labba og hjóla það helsta. Bílinn myndi ég aðallega nota til að fara út á land.




Tuesday, May 14, 2013

bless bless vetur, halló sumar:)

það er alltaf þessi eini dagur í maí hjá mér þar sem ég verð ískyggilega vör við að kuldaskórnir/vetrarskórnir eiga ekki lengur við þegar út í daginn er haldið.

Sá dagur var í gær.

Áhyggjufullt foreldrið (ég) skundaði út með 10 vikna gamalt (ungt) barnið út á heilsugæslustöð og var ekkert of mikið að spá í eigin klæðnaði. Þegar ég kom sveitt inn á heilsugæsluna og sat svo og beið eftir að komast að ákvað ég snarlega að þetta yrði sá dagur sem kuldaskórnir færu í sumarfríið góða.

Svo óþægilegt þegar maður er hálf klístraður af svita.


Monday, May 13, 2013

pillur

Það er alveg merkilegt að það eru til pillur við öllu nú til dags.

Þess vegna var mjög ánægjulegt að geta bara labbað inn í næsta apótek og keypt brjóstamjólkuraukandi töflur og te!

Það var auðvitað ennþá ánægjulegra að komast að því að töflurnar og te-ið svínvirkuðu:)

(Hmmm... kannski hefði ég unnið brjóstamjólkina aftur upp upp á eigin spýtur án taflanna og tesins?)


Friday, May 10, 2013

Gervihnattaöld

Er ekki alveg dásamlegt að geta setið í eigins borðstofu og spjallað við fólk út í heimi? Er ekki Facebook æði?

Sat hér í gær og spjallaði heillengi við Sunnevu mína sem býr í Svíþjóð. Fer svo á Facebook núna áðan og sé skilaboð frá gömlum vini sem er portúgalskur og býr í Portúgal og var að spjalla við hann núna áðan. Líka á msn-inu á Facebook..

Þetta er auðvitað stórmerkilegt fyrir þær sakir að þegar langamma mín var ung þurfti hún að labba á sauðskinnsskóm yfir fjöll og heiðindi og þá (held ég) bjó fólk í moldarkofum...

dreymdi draum

oftast dreymir mig samhengislaust rugl en draumurinn sem mig dreymdi núna áðan (já, ég lagði mig í morgun, ég er í orlofi:)) finnst mér tengjast skuggalega raunveruleikanum:

ég var að reyna að komast í yogatíma en það voru ýmsar hindranir í veginum. Yogashala-ð var breytt og uppi einhvern veginn þannig að ég varð að klöngra upp mjóan stiga þar sem þrepin voru andstaðan við breið, svona mjó pípurör einhvernveginn. Allavegana, er komin upp og þar er allt frekar þröngt en tíminn að fara byrja og ég byrja á því að redda mér dýnu og koma henni fyrir aftast. Geri mér svo grein fyrir því að ég hef gleymt Stefáni Mána niðri og verð því að klöngrast niður þennan þrönga stiga og ná í hann og koma honum einhvern veginn upp stigana.Það var dáldið mál og það var líka annað fólk þarna.

Það hefst einhvern veginn svo ég kem honum fyrir með blað og liti. Þarna er allt frekar þröngt og mikið af fólki og Ingibjörg með tímann sem er að fara byrja þegar ég átta mig á því að ég er í gallabuxunum og alveg að fara að missa af tímanum. Ég hendist því í ofboði í fataklefann sem er samt á sama stað en finn mér ekkert að fara í. Kom ekki með æfingafötin. Fer úr gallabuxunum og leita og leita að æfingabuxum og reyni að troða mér í ýmsar en gengur mjög erfiðlega en finn svo einhverjar trúðastuttbuxur sem ég á ekki en er að fá lánaðar frá Ingibjörgu. Eða ég vona að ég sé að fá þær lánaðar..

Og svo vakna ég.

Já, það er dáldið erfitt að komast í yogatíma þessa dagana....

Thursday, May 9, 2013

að fara eða fara ekki í World Class.

Eins og gengur og gerist bætti konan á sig nokkrum fitukeppum við síðustu meðgöngu (-na ever!)

Fékk þá flugu í hausinn að fara að kíkja í World Class í þeirri viðleitni að vinna á fyrrnefnum keppum og setja þá litlu í barnapössunina á meðan.

En síðan kom samviskubitið. Elsku barnið er nú bara 9 vikna! Ætla ég í alvörunni að fara með hana í þetta sýklabæli? Já eða nei?

Samviskubitið vs vinna á keppum. Hver kemur til með að vinna?

Wednesday, May 8, 2013

Heart and soul

Er nú búin að lesa bókina Heart and Soul eftir Maeve Binchy sem elskuleg móðir mín kom með fyrir mig.

Þetta er frábær bók, svo gaman að lesa á írsku:) Samkvæmt forsíðunni á bókinni og mömmu er þetta frægur írskur höfundur og "the number one bestseller." Þegar maður les bókina skil maður af hverju.

Bókin er alls ekki spennusaga heldur fjallar hún um líf nokkura einstaklinga sem starfa á sama vinnustaðnum; svokölluðu "heart clinic" sem er stofnað sem útibú útfrá spítala nokkrum í Dublin. Bókin fjallar um líf þessara einstaklinga og fólksins í kringum vinnustaðinn.

Ég bæði hló og grét sem er minn mælikvarði á hvort að bók sé góð eða ekki. Þessi bók er sem sagt góð og hélt mér allan tímann verandi sínar 522 blaðsíður. Það var reyndar smá kafli þar sem mér leiddist en ég fyrirgef það fúslega.