Wednesday, September 18, 2013

stjórnmálaskoðanir Svövu

(Varúð: þessi pistill er um stjórnmálaskoðanir Svövu.)

Ég hef dáldið verið að hlusta á útvarp Sögu núna undanfarið og hef gaman af því að hlusta á umræðu um margt sem þar fer fram (þegar maður fær nóg þá slekkur maður bara.)

Heyrði þar umræðu um daginn þar sem maður hringdi inn og fór að tala um hvernig stjórnmálaflokkar á Íslandi (og þá fjórflokkurinn) væru oft eins og fótboltalið. Liðsheildin er sterk og það snýst allt um að vinna hitt liðið. Hvað sem það kostar.

En ættu stjórnmálin ekki einmitt að snúast um það að vera í sama liðinu? Þegar hagsmunirnir eru svona miklir?

Mér finnst oft eins og þeir sem komust í stjórn núna (Sigmundur Davíð og Framsóknarflokkurinn og Bjarni Ben og Sjálfstæðisflokkurinn) hafi einmitt náð að vinna leikinn og það sé það sem skipti máli. Öfunda þá nú ekki með hlutskipti sitt þar sem á mörgu er að taka en það er nú annað mál..

Ég hef sagt það áður og skrifa það aftur að ég er sammála Birgittu, þingmanni pírata, sem sagði í kosningabaráttunni fyrir kosningarnar í vor að það væri auðvitað óhagkvæmt og kostar okkur mikið að hafa núverandi stjórnarfyrirkomulag þar sem hvert kjörtímabil eru fjögur ár. Vinstri stjórn kemst að og eyðir kjörtímabilinu í að hafa kerfið eins og þau vilja að það sé, setja nefndir af stað með ýmis mál (sem kostar auðvitað fjármuni) en svo eftir fjögur ár þegar hægri stjórn kemst aftur að þá eru þau nefndarstörf í uppnámi og í raun allt það sem starf sem vinstri stjórnin kom í gagnið (t. d. umsóknin að Evrópusambandinu.) Hægri stjórnin fer svo beint í að lagfæra kerfið eftir sínu höfði og svo koll af kolli.

Þetta kann bara ekki góðri lukku að stýra, eða hvað?!

Það ætti að sjálfsögðu að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um öll svona stór mál áður en farið er í að framkvæma þau eða aðhafast eitthvað í þeim.

Mér finnst þetta fjórflokkakerfi sem hefur verið á Íslandi óhagkvæmt. Það á ekki að vera hægt að spila með íslenska hagsmuni á fótboltavelli stjórnmálanna. Það er mín einlæga skoðun að við eigum að fjárfesta í okkar besta fólki, okkar úrvalsfólki, sem er skynsamt og gáfað og borga þeim sómasamleg laun fyrir að sitja á Alþingi og taka óháðar, ópólitískar og skynsamar ákvarðanir allt í þágu almennings í landinu.

Út með hatrið. Inn með ástina.

No comments: