Tuesday, June 30, 2015

30/6 2015

Vinni vinni vinni vinn.

Er ennþá í vinnustuði. Langar ekkert sérstaklega í frí.

Náði að misskilja sjálfa mig, ljóskan sem ég get verið. Sá miða í leikskólanum í gær þar sem foreldrar eru minntir á sumarlokunina sem einmitt byrjar 8. júlí.

Ég botna ekkert í þessu. Ég var búin að ákveða og hausinn á mér líka að sumarlokunin byrjaði mánudaginn 6. júlí.

Hef nákvæmlega ekkert að gera við þessa tvo auka frídaga og þarf nefnilega ofboðslega mikið að spara frídagana. Núna er þá bara að væla í yfirmanninum. Já, eða konunni sem hún er.

Það er bót í máli að það er satt sem þeir segja: "blondes do have more fun." Eða hvað veit ég um það og hvernig er hægt að mæla það eiginlega?

Hættu að bulla Svava. Það er kominn matartíminn og þú ert með þrjú börn frammi.

Ok, bæ:)

29/6 2015

Vinni vinni vinni vinni vinn.

Er í vinnustuði og það er gaman. Vinnan göfgar manninn. Ú je.

Sunday, June 28, 2015

28/6 2015

Er svo mikill lúði.

Er að reyna að vera á Twitter en bara kann það ekki almennilega. Er að átta mig á þessum miðli en er ekki alveg að átta mig á honum. Þyrfti eiginlega að fá kennslu. Kannski ég biðji Tryggva bróður að kenna mér á þetta og vona að hann rúlli ekki augunum og dæsi of mikið..

Á þessu twitter feedi eða hvað sem það nú er finnst mér ég svo oft sjá eins og fólk sé að svara öðru fólki en maður sér bara svarið þeirra og veit þess vegna ekki alveg hvað um ræðir. Svo er ég ringluð á þessum .... æ, ætla nú ekki að fara ausa úr skálum óvisku minnar..

Allavegana, svo datt mér eitt sniðugt og fyndið í hug í dag og setti það bæði á Facebook og Twitter sem er asnalegt. Ég er bara með 8 followers og það fólk er ég líka með á FB. Æ, lúði...

En ekki misskilja mig. Ég elska lúðann mig.

Ég er frábær lúði, lúði.

Saturday, June 27, 2015

27/6 2015

Góður dagur.

Þó að ég hafi verið heima allan daginn (skrapp reyndar smá í Kringluna) þá var þetta svo góður dagur af því að mér leið vel.

Heima er best.

Stundum þarf maður að taka til heima og hvíla sig. Það er bara þannig.

26/6 2015

Rosa dagur.

Mikil dramatík í gangi fyrir hádegi sem ég ætla ekki að útlista hér. Ég var rosa þreytt þennan dag og fann aftur til í fætinum/stóru tánni/ristinni.

En svo var óvissuferð með vinnunni sem var æði:) Ég fékk mér appelsín til að byrja með og náði smám saman að líða betur og hrissta þreytuna af mér þ.e.a.s. þegar ég var líka búin að fá mér kók. Við fórum á Stokkseyri og Eyrarbakka. Fórum með leiðsögn á Veiðisafnið (man ekki hvað það heitir nákvæmlega, eitthvað svoleiðis..) Fórum svo á bjórkynningu í Rauða húsinu held ég að það heiti hjá þeim sem framleiða bjórana Skjálfta, Lava o. fl. Eftir það fórum við að borða á veitingastaðnum Fjöruborðið. Fengum humar í aðalrétt og ég var í himnaríki (!) Veit ekki hvað ég fékk mér marga en MMMmmmm mmmmm hvað þetta var gott:)


Allavegana, gleðin var við völd og við sungum og trölluðum alla leiðina heim í rútunni. Þarna var ég búin að fá mér í ofanálag tvær 7-up dósir og var í blússandi sykurflippi. Réð varla við sjálfa mig og söng og dansaði sitjandi. Svona virkar gos vel þegar maður drekkur það ekki að staðaldri:)

Mikið gaman, mikið fjör:)

Er mjög þakklát fyrir samstarfsfélaga mína, er svo þakklát fyrir að líða vel með þeim og að geta verið ég sjálf. Ég veit að það er ekki sjálfgefið að falla inn í hvaða hóp sem er en þarna fell ég vel inn í. Verð hérna eitthvað áfram.

Thursday, June 25, 2015

25/6 2015

Oh yey me.

Byrjuð á túr. En gaman.

Not.

Wednesday, June 24, 2015

24/6 2015

Að berja höfðinu við stein = að gera sama hlutinn aftur og aftur og búast við annari niðurstöðu í hvert skipti.

Gerðist svo djörf (enda er ég frekar djörf að eðlisfari) að fá mér hikandi nokkra sopa af kaffi í dag.

Það var eins og við manninn mælt. Þetta fer beinustu leið í miðtaugarkerfið. Ég byrjaði að svitna á lófunum ... og ókyrrast öll. Fann að skýjið kom yfir rökhugsunina enda gleymdi ég að gera hluti. Fókusinn minnkaði. Stórmerkilegt.

Sem sagt. Ég ætti bara ekkert að vera að fá mér sopa!

Fannst einmitt svo skrýtið að vera með hausverk á mánudaginn. Fattaði svo einhvern tímann í gær að auðvitað var það út af því að ég hafði ekki fengið mér kaffisopann um daginn. Hrein og klár fráhvarfseinkenni. Fráhvarfseinkenni!

Og þetta selja þeir í Bónus eins og ekkert sé...

;)

23/6 2015

Mín er voða spennt yfir dálitlu.

Núna líður mér vel og lífið leikur við mig svo ég held að ég geti bara smám saman hætt á þessum kvíðatöflum. Mig langar ekki að vera á töflum lengur.

Er því búin að helminga skammtinn og það gengur bara svona líka vel. Vikan er búin að ganga snurðulaust fyrir enda er ég búin að passa að drekka alls ekki kaffi. Bara te og (koffínlaust) kaffi (hey! eins og búðin! ;))

22/6 2015

Þetta er mánudagur og þess má geta að gærdagurinn var sunnudagur;)

Ég var sem sagt ekki heima á vinnudegi að hjúkra bólginni rist heldur eyddi sunnudeginum í það.

Það bar árangur sem betur fer! Ekkert smá mikill munur á ristinni í byrjun sunnudags og í enda sunnudags:)

Ristin næstum því læknuð og það er vel. Maður vill bara alls ekki enda á bráðamóttökunni þessa dagana... já, eða aðra daga. Sem sagt bara aldrei:)

Monday, June 22, 2015

21/6 2015

Þennan dag var ég ennþá stökkbólgin á ristinni og hafði bara frekar miklar áhyggjur af fótinum mínum.

Hjúkraði honum því allan daginn (eftir hot yoga), tók Ibúfen (bólgueyðandi) 3svar á 3ja klst fresti og var með kælipoka á honum viðstöðulaust og bar á ó,ó ið-bólgueyðandi krem nokkrum sinnum yfir daginn.

Þetta bar árangur því að daginn eftir var ég næstum því eins góð og ný. Haltra ekki svona rosalega og geng næstum því eðlilega.

Hjúkk!

Sunday, June 21, 2015

20/6 2015

Núna er konan dottin í bækur.

Kláraði Bíbí eftir Vigdísi Grímsdóttur um daginn. Mikið ofboðslega er þetta góð bók og mikið sem ég naut þess að lesa hana. Átti bara þvílíkar unaðsstundir uppi í rúmi við lesturinn.

Skammast mín dáldið fyrir að hafa einhvern tímann kallað Vigdísi klikkhaus af því að þarna brillerar hún alveg. Meistaralegt hvernig hún stillir bókinni upp og svo koma slitrur úr beinu viðtali/samtali hennar við sjálfa Bíbí inn á milli í þessari mergjuðu frásögn sem er ævisaga téðrar Bíbíar.

Kláraði bókina á mettíma og fór á bókasafnið í gær til að ná í næsta skammt (af bókum.)

Núna er ég lögst í Konan við 1000 ° eftir Hallgrím Helgason sem mér hefur reyndar líka fundist vera klikkhaus á köflum en það er aðallega vegna þess að ég fílaði ekki 101 Reykjavík t.d. Náði þeirri bók og kvikmynd bara alls ekki og aldrei.

Allavegana, Bíbí fær 5 Svövustjörnur af 5 mögulegum. Mergjuð bók. Ótrúlega vel skrifuð.


Saturday, June 20, 2015

17/6 2015

Þetta var svo kærkominn frídagur.

Gerði einfaldan samning við Svan og losnaði við að fara með börnin niðrí bæ. Gat því verið heima og hvílt lúin bein þennan daginn sem var náttúrulega bara æði:)

Hæ hó og jibbí jei og jibbý og jei:)


19/6 2015

Þetta var um margt sérstakur dagur.

Hafði slasað mig í fíflaskap kvöldið áður og var stökkbólginn á ristinni. Átti rosa bágt og var illa sofin og lagðist almennt í mikla sjálfsvorkunn.

Átti svo reyndar pantaðan tíma á snyrtistofu í andlitsmaska/augnmaska og nudd sem ég fór að sjálfsögðu í og var í vinnunni.

Var svo rosa þreytt um kvöldið og átti almennt bágt.


18/6 2015

Ok,

var að pæla í því þennan dag að ég er búin að vera sækja börnin mín á leikskóla í rúmlega 12 ár núna samfellt.

Ég hlakka svo til þegar ég verð eitt af þessu fólki sem er ekki bundin eins og rjúpa við staur (?) við það að þurfa að fara rúmlega 16:00 til að sækja á leikskólann og vera svo föst heima það sem eftir lifir dags. Ég meina þetta er búin að vera rútínan mín í rúmlega 12 ár núna! 12 ÁR!!

Gerði því einfalt reikningsdæmi og reikna það út að ég á 3 ár eftir þar sem GH er 2ja ára og eftir þrjú ár verður hún 5 ára og þá hlítur bara að koma að frelsinu.

Urg. Ég þarf náttúrulega að sækja hana á frístundaheimilið þegar hún byrjar í skóla.

Herra Gud. Á ég þá a.m.k. 4 ár eftir..?


16/6 2015

Jæja,

nú er mín komin í ruglið.

Það er það sem hefst upp úr því að standa ekki við gefin loforð og blogga ekki á hverjum degi eins og ég ætlaði mér. Nú eru dagarnir komnir í rugl þar sem ég bloggaði ekki í nokkra daga og er að blogga núna nokkra daga í einu. Eitthvað er súrefnislaust í íbúðinni eða eitthvað og almættið er að banda mér á að fara út í göngutúr af því ég byrjaði á vitlausum enda og bloggaði aftur á bak.

Konan ekki alveg með fulle femm ..

Monday, June 15, 2015

15/6 2015

Las áhugavert viðtal í einhverju blaðinu um helgina. Viðtalið var við Önnu Svövu Knútsdóttur leikkonu og handritshöfund. Tilefnið að viðtalinu var að hún er nýbökuð móðir og segir farir sínar ekki alveg sléttar og spyr hreinskilnislega af hverju enginn tali um hvað þetta er erfitt. Hún talar um að hafa grátið mikið þegar hún kom heim af fæðingardeildinni í einhvern tíma og grátið yfir öllu.

Þetta er bara alveg satt. Það er sannfæring mín að þetta er bókstaflega það erfiðasta sem hver kona gerir um ævina. Öll atvinna er bara "peace of pish" miðað við nýbakaða móðurhlutverkið. Það er bókstaflega frí að vera í vinnu í staðinn fyrir að vera heimavinnandi húsmóðir. Mér finnst þetta flott hjá henni, þetta viðtal. Þetta er nefnilega ekki dans á rósum með alla þessa hormóna út um allt og allt svo erfitt og takmarkaður svefn.

Úff.

Var ég búin að segja ykkur að ég ætla ekki að eignast fleiri börn??

14/6 2015

Ég er að taka eftir dáldið merkilegu.

Mér finnst ég sjá núna út um allt ómálaðar konur. Kannski helst að þær séu með varalit eða gloss en annars bara enginn maskari og ekkert meik. Svo finnst mér ég líka taka eftir að konur eru farnar að lita hárið á sér minna eða bara ekkert.

Mér þykir þetta eitthvað svo merkilegt af því að allavegana fyrir nokkrum árum síðan er ég viss um það voru fleiri konur maskaðar.

Ég var að horfa á fréttirnar um daginn og fréttamaðurinn tók nokkrar manneskjur (almenning) tali niðrí bæ til að ræða ástandið í þjóðfélaginu með öll þessi verkföll og svona. Það var talað við tvær konur og þær töluðu alveg sínu viti og voru ómálaðar báðar.

Fólki þykir kannski skrýtið að ég sé að spá í þessu en þegar ég var unglingur þá bara fórum við stelpurnar ekki út fyrir hússins dyr án þess að hafa eitt svona allavegana 20 mín ef ekki meir við að sparsla fésið og setja maskara á augun auk annarar augnmálningar og ég veit ekki hvað.

Mér þykir bara mjög vænt um þessa þróun. Ég allavegana vona að sjálfsdýrkunin og útlitsdýrkunin sé á undanhaldi.

Sunday, June 14, 2015

13/6 2015

Svo virðist sem húsmóðurina hafi gripið eitthvert hreingerningaræði og konan bara þrífur og þrífur og elskar það!

Stundum er maður bara í stuði til að þrífa.

Er að fara í gegnum eldhússkápana og þreif svo bílinn í gær.


12/6 2015

Þessi dagur var Botnleðjudagur.

Ég held áfram að fara í gegnum gömlu geisladiskana mína (sem bráðum verða forngripir) og var búin að hafa nokkra diska tilbúna ofan á skóhillunni fyrir mig til að fara með út í bíl. Botnleðju diskurinn Drullumall var búinn að vera fremstur heillengi. Ég bara einhvern veginn virtist ekki meika hann, svo mikil læti, og valdi diskana fyrir aftan hann.

Nema hvað, svo á föstudaginn tók ég diskinn út í bíl og herregúd. Ji, ég var búin að gleyma hvað þeir eru/voru þéttir. Úff, þennan dag hækkaði gamla í fóninum og trallaði með. Hvert lagið á eftir öðru alger gersemi og lag frá 1 upp í 4 klassík.

Nostalgía. Alger.

Saturday, June 13, 2015

11/6 2015

Eftir að hafa verið með barn á leikskóla viðstöðulaust í um 11 ár núna er ég komin með algera ólund gagnvart sveitarferðum, vorhátíðum, sumarhátíðum og öllu slíku.

Gretti mig því ósjálfrátt þegar ég sá vorhátíð eða sumarhátíð eða hvurn andskotann auglýst í leikskólanum og ákvað samstundis að ég ætlaði alls, ALLS EKKI að fara.

Sendi því pabbann þar sem ég það hefur alltaf komið í minn hlut að fara á þessa blessuðu viðburði. Ég er komin með nóg og mér er sama þó ég fari aldrei aftur í sveitarferð og aldrei aftur á vorhátíð og aldrei aftur á sumarhátíð.

Ég er nú meiri mamman. Þetta þýðir ekki að ég elski ekki börnin mín. Þetta þýðir bara að ég er komin með andskotans nóg af því að vera með barn á leikskóla.

Þetta er bara svona. Pabbinn fær að færa í allt það sem eftir er á leikskólagöngu Guðrúnu Höllu. Jafnrétti skal það vera og hananú! 


Wednesday, June 10, 2015

10/6 2015

Það eru ekki umbúðirnar sem skipta máli heldur innihaldið.

Einhvers staðar sá ég þessa setningu og mikið sem hún meikar sens fyrir mér þessa dagana. Er komin með upp í kok af útlitsdýrkun í hvaða mynd sem það er og bara langaði að gubba á tímaritið sem ég keypti mér í Borgarnesi til að létta mér stundir í skipsferðinni á Baldri á leið til Flateyjar.

Þvílíkt sálarleysi sem er í þessu glanstímariti. Ekkert þarna meikar sens fyrir mér lengur. Þetta er tímaritið Now og e-r glanspían á forsíðunni og inn í blaðinu voru bara einhverjar greinar um einhverjar gellur sem höfðu verið flottar en svo fittnað. Svo fylgdu svona fyrir og eftir myndir með.

Þvílík og önnur eins lágmenning. Ég þakka fyrir að þroskast. Það er gott.

Ég henti blaðinu. Mig vantaði reyndar bara eitthvað sálarlaust til að horfa á svo að ég myndi ekki vera sjóveik. Get ekki lesið á sjó. En fyrr má nú vera. Mér er gróflega misboðið.




Tuesday, June 9, 2015

9/6 2015

Fínasti dagur.

Ljúft og sárt að vera komin í vinnuna eftir smotterí af fríi. Ljúft af því að ég elska að vera í kringum fólkið mitt í vinnunni, vissulega suma meira en aðra, en sárt af því að maður er jú í kvörtunardeildinni og það getur verið fokking þreytandi og lýjandi.

Var að hlusta á Placebo í bílnum sem var bara þokkalega ánægjulegt.


8/6 2015

Þetta var spes dagur.

Hélt að ragnarök væru komin og að ég væri að syngja mitt síðasta. Kvaddi mömmu og pabba vel á bryggjunni á Flatey og syni mína líka og hélt bumbult áleiðis í hinn nýja óþekkta Baldur í miklu roki og mikilli rigningu. Kvaddi besta vin minn og bað Guð um miskunn.

Svo bara lifði ég þetta af!

Heimförin var fjörug. Brjálað rok og rigning í Stykkishólmi líka og ég ein með GH. Sem betur fer hafði ég fengið stæði hjá klettunum á höfninni svo að það var ekki langt að fara en GH grét hún var svo hrædd. Gat svo keyrt á jeppanum að ná í farangurinn (hressandi) og keyrði svo af stað.

Neyddist til að fara í einni lotu heim með báðar hendur á stýri vegna veðursins. Gerði tilraun til að stoppa í Borgarnesi en gat ekki opnað bílhurðina út af rokinu!

Tja, væri lífið samt ekki leiðinlegt ef það væri bara alltaf sól og blíða?

7/6 2015

Flatey á sunnudegi.

Gott að vera með þeim sem maður elskar mest í þessu lífi. Góður dagur. Ekki bongóblíða og konan í tveimur föðurlöndum en hey, er að fara til Tenerife í ágúst og er alveg sama:)

6/6 2015

Keyrði til Stykkishólm með Óla og GH á mettíma.

Í fyrsta skiptið ever sem ég mæti of snemma og á mjög góðum tíma. Hef alltaf verið á öðru hundraðinu í stresskasti.

Við hlustuðum á íslensk 80's lög á leiðinni í blíðskaparveðri og í þvílíkum stemmara. Sungið og trallað með. Lífið er gott.


5/6 2015

Góður vinnudagur.

Góðir vinnufélagar eru gulls ígildi. Verð að viðurkenna að þangað til í þessari vinnu hef ég ekki verið svona heppin með vinnufélaga og er lafandi skíthrædd við að lenda aftur á slæmu fólki ef ég myndi hætta í þessari vinnu.

Hér líður mér vel.

4/6 2015

Omg, er að skrifa aftur á bak í tímann vegna anna og Flateyjarferðar og man ekkert hvað ég var að gera þennan dag. Ekkert slæmt svo er víst, hefði munað eftir því..

Wednesday, June 3, 2015

3/6 2015

Vaknaði í morgun og var út í Flatey í huganum.

Það var yndislegt. Tær dagur, sást til allra átta, sjóndeildarhringurinn svo flottur. Gott veður og blár himinn. (Engin börn.)

Mmmm Mmmm, hlakka til að fara til Flatey:)

2/6 2015

Dear universe,

this is not what I ordered.

er svona líka þanin. Þetta gerist nú ekki oft en gerist samt oft og er alveg ógeðslega pirrandi!

Monday, June 1, 2015

1/6 2015

Æ, já.

Þessi börn mín eru nú bara nokkuð góð og hafa gert líf mitt betra. Manni hættir til að gleyma því þegar maður fær einhvern veginn aldrei fjarlægðina frá þeim.

Með frumburðinum breyttist lífið til muna til hins betra. Ég fór í háskólann og hætti í ruglinu.
Með Stefáni Mána hætti ég að drekka og byrjaði að lesa bókina The Secret sem hefur fylgt mér síðan.
Með Guðrúnu Höllu finnst mér vitund mín hafa dýpkað og ég sé hlutina í þroskaðra ljósi. Er byrjuð að hugleiða og allt er svo miklu betra en áður.

Það má því ekki misskilja mig alveg þó ég kvarti stundum yfir börnunum. Ég er bara móðir sem er búin að vera með barn undir 5 ára aldri í rúmlega 13 ár og verð bara stundum leið á því að komast ekki út úr húsi og svona.

En hlutirnir breytast. Krakkarnir eldast. Þetta verður minna og minna mál allt saman...

31/5 2015

Þessi dagur var annar í afmæli og mamman orðin frekar mikið þreytt.

Þetta var dáldið mikil keyrsla á laugardeginum með þetta afmæli í Smáratívolí og svo beint að versla fyrir næsta afmæli og beint í að baka fyrir það... Svo beint í að baka meira þegar ég vaknaði um morgnuninn.. og svo varð mín bara þreytt.

Veislan fyrir fjölskylduna hérna heima heppnaðist bara vel en ég lak líka niður þegar síðasti gesturinn fór og gat lítið gert eftir það...

Allavegana, barnið er ánægt og það er nú heila málið.