Tuesday, September 29, 2015
28/9 2015
Góður dagur.
Var í miklu stuði í bílnum með Franz Ferdinand á næstum fullu blasti. Fíla þá.
Var líka bara svo ánægð að það var kominn mánudagur. Leiddist um helgina..

Sunday, September 27, 2015
27/9 2015
Fórum á Þingvelli í dag.
Það var alveg gaman þangað til að fór að rigna eins og hellt væri úr fötu... Urðum rennandi blaut, alveg í gegn og allt, og drifum okkur heim...

26/9 2015
Þetta var leiðinlegur dagur.
Oftast fíla ég að vera heima svona annan hvorn daginn um helgi og bara dúlla mér og taka til, sérstaklega ef ég hef farið í zumba um morguninn. En þennan dag missti ég af zumba-nu og fór einhvern veginn inn í skelina mína og var bara ferlega einmana heima... Maðurinn er jú félagsvera.
Þetta var dáldið asnalegur dagur. Það var rosalega leiðinlegt veður. Mikið rok og mikil rigning svo að þegar ég fór út að viðra mig fór maskarinn út um allt og þá meina ég; út um allt!
Notaði það sem afsökun fyrir að hanga heima á meðan restin af fjölskyldunni fór í 60 ára afmælishátíð Hlíðaskóla. Ég nennti ekki þar sem þetta var inni og vísast til fullt, fullt af fólki... Ég er skrýtin með þetta. Ég fíla ekki Kringluna og Smáralind og Ikea og svona. Leiðist svona staðir alveg rosalega mikið. Finnst þeir vera orkusugur kapitalismans einhvern veginn... Æ, ég er nú meiri hippinn.. Hefði nú alveg gott af því að fara kíkja í fatabúðir og fríska aðeins upp á úrvalið í fataskápnum sko....

25/9 2015
Fór í góðan hot yoga tíma í Sólir, yogastöðinni út á Granda.
Þetta var bara virkilega góður tími og ég var bara frekar endurnærð á eftir sem mér fannst sérstakt af því að oftast verð ég bara dáldið mikið þreytt eftir þessa tíma og upplifi ekki endurnæringuna fyrr en daginn eftir...
Góður dagur:)

Thursday, September 24, 2015
Wednesday, September 23, 2015
23/9 2015
Portishead.
Þetta var næsti cd-inn í yfirferðinni yfir gömlu geisladiskana....
Þetta er nú meira vælið. Liggur við að mig langi til að henda þessu.. Þessi diskur hefur nú samt eitthvað tilfinningalegt vægi þó það sé nú ekki mikið. Einhverjar minningar þó ég geti ekki alveg bent á hvaða minningar. Þessi diskur minnir mig bara á sirka 1998 eða eitthvað svoleiðis? Einhverjar rámar wisky taugar þarna þó ég hafi aldrei drukkið wisky.
Hhmmm...

22/9 2015
Silfurbuxurnar.
Í um 20 ár er ég búin að vera með silfurbuxurnar mínar í fataskápnum. Rosa flottar. Ég hef líklegast verið alger gella í þeim.
Þar sem ég nú alltaf með tiltektaræði og er nú ekki að yngjast ákvað ég að fara í þær í hádeginu í dag. Ég meina annað hvort notar maður föt eða ekki, right?
En svo bara pössuðu þær ekkert svo vel. Það er alltaf maginn sem hangir yfir buxnastrengnum:/ svo voru þær dáldið skítugar bara og svona, eru náttúrulega orðnar yfir 20 ára gamlar svo ég ákvað núna að gefa þær til Rauða krossins.
Já, það er dáldil eftirsjá í þeim. Þær eru djöfulli flottar EN.. svona er þetta bara. Maður getur ekki endalaust hangið í fortíðinni....
Æ, shit. Á ég kannski að hafa þær til minningar?

21/9 2015
Lúxusvandamál.
Ok, markmiðið er að fara út í frí í febrúar. Vandamálið er hvað gera skal...
Fyrst var ég búin að ákveða að fara í yogaretreat eitthvað... en svo er það eitthvað svo flókið. Langar eiginlega ekki ein og veit ekki hvert ég á að fara eða hvað. Svo langaði mig í sólina og ákvað að við myndum kannski fara, ég, Svanur, SMS og GHS. EEeen, svo bara fattaði ég að þetta yrði ekkert frí verandi með börnin. Það eru þau sem ég þarf frí frá... ekki get ég farið ein í sólina með Svan því ég held að við séum ekki með pössun í heila viku. Ég er reyndar ekki viss um að við séum með pössun yfir höfuð....
Þannig að núna er ég að spá í langa helgi... borgarferð. Bara við tvö...
Ef við erum með pössun..

Sunday, September 20, 2015
20/9 2015
Athyglisverð bók, þessi Karlar eru frá Mars, konur frá Venus.
Ég er nú bara rétt byrjuð en mikið meikar þetta mikið sens!
Kannast alveg við þessa hellisbúahegðun ... kannski ekki hjá Svani en öðrum karlmönnum.
Athyglisvert....

19/9 2015
Þennan dag byrjaði ég á þessari bók;
Kominn tími til að komast til botns í þessu máli sem er að reyna að skilja karlmennina í lífi mínu.

Saturday, September 19, 2015
18/9 2015
Sumir dagar eru betri en aðrir. Þessi var einn af þeim.
Það helgaðist svona aðallega af því að ég fór á hárgreiðslustofu á Skólavörðustígnum og gerði dáldið drastískt.
Fór sem sagt frá því að vera ljóshærð yfir í að vera dökkhærð.
Ný ég og ég er svo ánægð:)
Svo var þessi dagur glimrandi fallegur líka og öll vikan bara æðislega falleg. Meira svona!

17/9 2015
MMMmmmm,
er komin með nýtt æði, sem ég veit ekki hvað heitir. Maður mixar þessu saman í svona litla glerkrukku, hristir, setur inn í ísskáp og borðar daginn eftir. Þetta er svo góð næring og svo góður magafyllir að manni líður dásamlega á eftir. Þessi réttur gefur jafna orku yfir daginn.
100 ml ab mjólk
100 ml kókos mjólk
3 msk chia fræ
sirka 15 bláber (eða aðrir ávextir)
nokkur goji ber ef til vill.
Elska þetta. Elska.

Thursday, September 17, 2015
16/9 2015
Þennan dag fór ég í göngutúr í hádeginu með Boggý minni í vinnunni. Tókum gamla rúntinn okkar í Kópavoginum og höfðum gott af. Alltaf gott að labba og skrafa aðeins saman.
Fór svo í sund reyndar líka þennan dag. Er að drepast í bakinu:/

15/9 2015
Þessi dagur var skemmtilegur.
Fór með Eddu minni í vinnunni á kaffihús og við tókum léttan vinnufund. Það var stemmning í því.
Þessi vika er svo æðisleg veðurlega séð að það er bara allt æðislegt, sérstaklega úti. Hver glimrandi fallegi dagurinn á eftir öðrum. MMMmmm...

Wednesday, September 16, 2015
14/9 2015
Þennan dag var ég rosalega góð við mig.
Fór svo mikið að hugsa um Friends þættina og hvað ég saknaði þeirra mikið og þarfnaðist þeirra. Vissi ekki hvernig ég gat endurnýjað kynnin nema að .....
.... kaupa bara allar seríurnar í einum pakka! Pha! :D
Fór eins og í leiðslu inn í Elko með einbeittan ásetning um að verða mér út um pakkann. Mér til mikillar gleði kostaði hann "bara" 11.000 kall sirka en síðast þegar ég tékkaði fyrir sirka tveimur árum þá kostaði þessi pakki um 25.000 kr. í Skeifunni.
Allavegana, er búin að sitja hérna heima í sæluvímu og horfa á þessar elskur. Mikið sem ég saknaði þeirra!
P.s. mig langar í hárið hennar Rachelar.

Sunday, September 13, 2015
13/9 2015
Sit hérna í sófanum inn í stofu og öfunda barnlausa fertuga íslenska konu sem er í sjónvarpinu í þættinum hans Sindra Á uppleið.
Þessi kona vinnur fyrir Sameinuðu þjóðirnar og ferðast um allan heim að gera góða hluti. Núna býr hún sem sagt í New York og þjáist alveg örugglega ekki af blóðleysi og því sem gerist við konu þegar kona er búin að vera með börn undir fimm ára í rúm 13 ár....
Heppna, heppna kona.
Það eru "terrible two's" í gangi alla leið hjá henni Höllu minni núna og er búið að vera lengi. Það er svo erfitt að rökræða við tveggja ára barn og það er svo erfitt að þau trufla mann svona helst þegar maður má alls ekki við truflunum.
Já, og borðaði heilan svona kassa.

12/9 2015
Var óeðlilega rosalega þreytt líka þennan dag en þessi dagur var samt alveg æðislegur. Gullfallegur, glimrandi fagur dagur með Beggu minni í Reykjadal:)
Borðaði svo ofboðslega góðan mat í Hliðsnesinu þar sem Guðrún Halla var hjá afa og ömmu.
Góður dagur:)
Borðaði svo ofboðslega góðan mat í Hliðsnesinu þar sem Guðrún Halla var hjá afa og ömmu.
Góður dagur:)
11/9 2015
Fór með mömmu í leikhús um kvöldið. Fórum að sjá Dúkkuheimilið í Borgarleikhúsinu.
Fínasta sýning en hefði mátt vera aðeins styttri...

8/9 2015
Er ennþá þakklát fyrir rólega viku.
Er voða þreytt þessa viku. Það eru nokkrir dagar í blæðingar og þá dregur mjög úr kraftinum hjá örvæntingafullu húsmóðurinni okkar.
Þessa vikuna er hún þreytt og skapstygg.
Ætli það séu til lyf við þessu?

Monday, September 7, 2015
7/9 2015
í dag er ég þakklát fyrir rólegan mánudag. Þurfti svoooo mikið á því að halda að þessi dagur væri rólegur. Svo gott.
í dag er ég líka þakklát fyrir að búa í landi (á eyju) þar sem ríkir friður. Börnin okkar og við höfum öruggt þak yfir höfuðið og þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að vera á vergangi eða að vakna við sprengjur.
Ég er þakklát fyrir að ég finn fyrir meira jafnvægi. Ég er þakklát fyrir að hafa getað hætt á kvíðalyfjunum án teljandi vandræða. Ég veit að ég á eftir að finna fyrir meiri hugarró núna í vetur heldur en síðasta vetur. Það er gott að vita það og fyrir það er ég þakklát.
Ég er þakklát fyrir að eiga góðar vinkonur. Það er góð tilfinning að fá messenger BLING! í tíma og ótíma frá vinkonum sem vilja spjalla. Ég er óendanlega þakklát fyrir það. Ég er líka þakklát fyrir að vita hverjir eru ekki svo miklir vinir þó það hafi verið sárt að fatta það.
Oprah hafði rétt fyrir sér og allar þær sem benda á að þetta sé svona gefandi að halda þakklætisdagbók. Er farin að skrifa í svona smá þakklætis-dagbók en í dag pikka ég þetta frekar hér inn.
Eigið góðan dag, mamma, Erla og Tinna:)

6/9 2015
Þessi sunnudagur var rólegur eins og sunnudagar eiga að vera.
Fór í Hafnarfjörðinn og hitti Siggú vinkonu og við fórum saman í göngutúr. Það var æði:)
Við erum dáldið svona "like-minded." Ekki að öllu leyti auðvitað en svona að miklu leyti allavegana..
Gott að eiga góða vini.

5/9 2015
Hmmm laugardagurinn..
Já, alveg rétt. Fór í roooosalega góðan zumbatíma. Bara æðislegan.
Finnst rosa gaman að dansa og syngja með og ... af því að það er svo mikið stuð þarna ... öskra.
Sko, ég er ekkert sú eina. Þau byrja að öskra svona VVÚUÚÚUUÚUU!! á sviðinu og þá gerir salurinn það líka. Og ég elska það.
Það er ástæðan fyrir því að ég stilla mér alltaf upp aðeins fyrir framan frænkur mínar, svo ég geti fengið smá útrás. Myndi alls ekki öskra svona mikið ef þær væru við hliðina á mér...:)
Er rosa glöð að zumba á laugardögum er byrjað aftur. Það er æði:)

4/9 2015
Mér finnst svo undarlegt hvernig sumir "go through people."
Maður átti kannski rosalega góða vinkonu þegar maður var t.d. 15 ára og svo bara búið og bless. Ekki svo góðar vinkonur lengur og hún sýnir ekkert áhuga á að hittast og rifja upp góða tíma eða neitt...
Mér finnst þetta eitthvað svo skrýtið. Núna er ég búin að missa tvo nána samstarfsfélaga bara í síðasta mánuði og mér finnst eitthvað svo óeðlilegt að það sé bara búið og bless. Þetta eru karlmenn og þeir eru bara þannig. Ekki eru þeir að fara að hringja og við förum á kaffihús saman eða eitthvað. Það væri líka óeðlilegt.
Það er bara eitthvað svo skrýtið þegar manneskjur sem maður átti svo mikil og svo löng dagleg samskipti við eru bara horfnar út úr lífinu manns og maður veit að maður er ekkert að fara hitta þá nema kannski af tilviljun aftur.
Spes að fara út massa miklum samskiptum í engin samskipti. Maður hengur einhvern veginn í lausu lofti dáldið.
Og maður er líka öðruvísi bara persónur. Núna er það bara ég og þeir. Ekki vinnu-ég og vinnu-þeir.
Lífið er margslungið.

Saturday, September 5, 2015
2/9 2015
Núna er ég að skrifa eftir á það sem ekki hefur gefist tími til að blogga í vikunni vegna gífurlega mikils að gera í vinnunni.
Fundir og fleiri fundir vegna skipulagsbreytinga... Sakna tímans þegar ég hafði tíma til að fara á klóið og svona..
Þennan dag fór ég nú samt í ræktina. Það er forsenda þess að allt gangi upp á öllum vígvöllum að konan nái að fá útrás í hádeginu. Hefði ekkert að gefa ef ég gæfi mér ekki þennan tíma í að hlaða batteríin.
Fór í Step tímann sem ég fór alltaf í síðasta vetur en hafði svo ekki heilsu til eftir að þetta með hryggskekkjuna kom upp. Fannst ég vera ferlega þung á mér og klunnaleg í hreyfingum. Var alveg búin að gleyma hvað þetta eru flókin spor hjá henni Önnu Siggu...
Er að fatta núna að ég er að rugla saman dögum. Fór í þennan tíma 1/9 á þriðjudegi en í hádeginu á miðvikudeginum 2/9 fór ég á kaffihús með henni Eddu minni sem vinnur með mér. Frábær stelpa sem skilur mig og ég get sagt allt við, eða svona næstum því...;)

Tuesday, September 1, 2015
1/9 2015
"Doing what you love is the cornerstone of having abundance in your life."
Þetta er quote sem talaði til mín. Ég sá það á facebook en það var sett þarna af því að höfundurinn af því (ekki það að einhverjum hafi ekki dottið þetta í hug fyrr) lést núna í ágúst. Hann heitir Wayne Dyer.
Þegar ég hugsa um hvað ég elska að gera dettur mér bara í hug yoga, göngutúrar, fjallgöngur, öll hreyfing, það að vera berfætt út í skógi þegar það er hlýtt, labba berfætt á grasinu.... Það er engin atvinna sem ég get hugsað mér að vinna við sem ég ELSKA að gera.
Kannski að vinna á einhverju yogasetri eða eitthvað en hey, ég er með 6 manna fjölskyldu svo það er ekki að fara að gerast í bráðina... Svo ég get nú bara ekki annað en verið þakklát að vera í vinnu með skemmtilegum vinnufélögum sem gefur mér frelsi til að einmitt komast í yoga, göngutúra og hreyfingu og sund þegar mér hentar.
Ætti í rauninni að vera þakklát.

30/8 2015
Þessi sunnudagur var æði.
Fór í Ashtanga yoga um morguninn sem var æði og svo seinna um daginn kom hún Tinna mín og við fórum í göngutúr í Heiðmörk saman.
Ekta sunnudax. MMMmmmm....

Subscribe to:
Posts (Atom)