Wednesday, September 23, 2015

21/9 2015

Lúxusvandamál.

Ok, markmiðið er að fara út í frí í febrúar. Vandamálið er hvað gera skal...

Fyrst var ég búin að ákveða að fara í yogaretreat eitthvað... en svo er það eitthvað svo flókið. Langar eiginlega ekki ein og veit ekki hvert ég á að fara eða hvað. Svo langaði mig í sólina og ákvað að við myndum kannski fara, ég, Svanur, SMS og GHS. EEeen, svo bara fattaði ég að þetta yrði ekkert frí verandi með börnin. Það eru þau sem ég þarf frí frá... ekki get ég farið ein í sólina með Svan því ég held að við séum ekki með pössun í heila viku. Ég er reyndar ekki viss um að við séum með pössun yfir höfuð....

Þannig að núna er ég að spá í langa helgi... borgarferð. Bara við tvö...

Ef við erum með pössun..

No comments: