Þennan dag var ég rosalega góð við mig.
Fór svo mikið að hugsa um Friends þættina og hvað ég saknaði þeirra mikið og þarfnaðist þeirra. Vissi ekki hvernig ég gat endurnýjað kynnin nema að .....
.... kaupa bara allar seríurnar í einum pakka! Pha! :D
Fór eins og í leiðslu inn í Elko með einbeittan ásetning um að verða mér út um pakkann. Mér til mikillar gleði kostaði hann "bara" 11.000 kall sirka en síðast þegar ég tékkaði fyrir sirka tveimur árum þá kostaði þessi pakki um 25.000 kr. í Skeifunni.
Allavegana, er búin að sitja hérna heima í sæluvímu og horfa á þessar elskur. Mikið sem ég saknaði þeirra!
P.s. mig langar í hárið hennar Rachelar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment