Núna er ég að skrifa eftir á það sem ekki hefur gefist tími til að blogga í vikunni vegna gífurlega mikils að gera í vinnunni.
Fundir og fleiri fundir vegna skipulagsbreytinga... Sakna tímans þegar ég hafði tíma til að fara á klóið og svona..
Þennan dag fór ég nú samt í ræktina. Það er forsenda þess að allt gangi upp á öllum vígvöllum að konan nái að fá útrás í hádeginu. Hefði ekkert að gefa ef ég gæfi mér ekki þennan tíma í að hlaða batteríin.
Fór í Step tímann sem ég fór alltaf í síðasta vetur en hafði svo ekki heilsu til eftir að þetta með hryggskekkjuna kom upp. Fannst ég vera ferlega þung á mér og klunnaleg í hreyfingum. Var alveg búin að gleyma hvað þetta eru flókin spor hjá henni Önnu Siggu...
Er að fatta núna að ég er að rugla saman dögum. Fór í þennan tíma 1/9 á þriðjudegi en í hádeginu á miðvikudeginum 2/9 fór ég á kaffihús með henni Eddu minni sem vinnur með mér. Frábær stelpa sem skilur mig og ég get sagt allt við, eða svona næstum því...;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment