í dag er ég þakklát fyrir rólegan mánudag. Þurfti svoooo mikið á því að halda að þessi dagur væri rólegur. Svo gott.
í dag er ég líka þakklát fyrir að búa í landi (á eyju) þar sem ríkir friður. Börnin okkar og við höfum öruggt þak yfir höfuðið og þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að vera á vergangi eða að vakna við sprengjur.
Ég er þakklát fyrir að ég finn fyrir meira jafnvægi. Ég er þakklát fyrir að hafa getað hætt á kvíðalyfjunum án teljandi vandræða. Ég veit að ég á eftir að finna fyrir meiri hugarró núna í vetur heldur en síðasta vetur. Það er gott að vita það og fyrir það er ég þakklát.
Ég er þakklát fyrir að eiga góðar vinkonur. Það er góð tilfinning að fá messenger BLING! í tíma og ótíma frá vinkonum sem vilja spjalla. Ég er óendanlega þakklát fyrir það. Ég er líka þakklát fyrir að vita hverjir eru ekki svo miklir vinir þó það hafi verið sárt að fatta það.
Oprah hafði rétt fyrir sér og allar þær sem benda á að þetta sé svona gefandi að halda þakklætisdagbók. Er farin að skrifa í svona smá þakklætis-dagbók en í dag pikka ég þetta frekar hér inn.
Eigið góðan dag, mamma, Erla og Tinna:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment