Wednesday, December 27, 2017

Eins og fangi...

Ekki var þetta góður dagur útlitslega séð.

Það er náttúrulega jólafrí og maður er kominn aðeins úr takt, með ómálað andlit sem væri nú allt í góðu ef maður væri ekki sjúskaður líka með heilann í fríi. 

Þetta er stemmningin. Við erum bara búin að vera heima að lesa og slakka og njótta eða hvernig sem sá texti er. Náði því aldrei alveg.

Súrefnisstigið gæti verið betra. Hefur verið betra. Of mikið inni, ekki nógu mikið úti. Eitthvað hefur gleymst að hafa gluggana nógu mikið opna. Útlitið er því ekki ekki gott. Hefur oftast verið betra. Alltaf eiginlega. 

Það eru samt nokkrir hlutir á to do listanum eins og að skipta gjöfum, versla í matinn, fara með krakkana á Novasvellið (enginn að spá í því nema ég) og svo var búið að sitja á hakanum svo lengi að fá okkur nýtt vegabréf.

Sá nú reyndar að afgreiðslutíminn fyrir að fá blessað vegabréfið er nú ekki nema 4 virkir dagar svo við höfum nógan tíma en svo vildi Svanur allt í einu fara í dag.

Svanur og skyndiákvarðanir.

Hefði heilinn á mér ekki verið í fríi hefði ég kannski áttað mig á því að þessu ferli fylgir myndataka. Eða sko, ég ætlaði bara að nota gömlu en það má víst ekki.

Svo við vorum þarna mætt, sjúskaðri en alltaf með heilann í það mikilli hvíld að við mundum varla kennitöluna hennar Guðrúnar Höllu. Ég gat svo reyndar stamað úr mér fyrrihlutann, við mundum ekki seinni hlutann.

Og þannig orsakaðist það að versta mynd sem hefur verið tekin af þessari örvæntingarfullu húsmóður var tekin. Og verður svo í nýja vegabréfinu sem Svanur segir að gildir í 10 ár.

Sko. Ef að ég týnist eða eitthvað þá vil ég að þið vitið að ég vil ekki að þessi mynd verði notuð þegar lýst er eftir mér. Bara not. Ég lít út eins og fangi á henni!

Omg. 

Monday, December 25, 2017

Friður

Loksins jól.

Það jafnast bara ekkert á við jóladag. Tala nú ekki um í ár þar sem það eru hvít jól og fullkomið veður. Allt svo mátulegt.

Kyrrðin sem ég finn fyrir núna er svo góð og heilög af því að núna loksins getum við slakað á.

Skógjafirnar búnar, jólastress búið, prófastress búið og vá, ég er svo sátt.

Dásemdin ein.

Gleðilega hátíð ❤🎅🤶🎄

Sunday, December 17, 2017

Já!

Jæja, ég get andað léttar núna þar sem allt skólastress er nú blessunarlega búið. Já, eða næstum því. Er að fara í eitt próf á morgun og það er það síðasta.

Get státað mig af einni 10, einni 9, einni 8 og einni 7. Allavegana skv. síðustu tölum gekk mér vel í því sem ég hafði mestar áhyggjur af. Phew!

Er svo fegin að þetta er búið! (Allavegana það mesta.) Núna er svo jólastressið tekið við:D Endilega minnið mig á ef ég skyldi gleyma því næstu jól að fara ekki í Kringluna neitt fyrir jólin. Alls ekki rúmri viku fyrir jól og ekki með Svan.

Bara get það ekki. Meika Kringluna lítið öllu að jöfnu. Finnst þetta vera svona einhvers konar kapitalísk orkusuga. Bara nei.

Ok, bæ:)

Wednesday, November 29, 2017

lasarus

Mér finnst skrýtið að ég heyrði þetta orð ekki fyrr en fyrir nokkrum árum síðan. Þetta er nýtt orð fyrir mér og mér finnst það skrýtið. En þetta er það sem ég er þessa dagana. Lasarus.

Ég vaknaði á sunnudagsmorguninn og leið eins og ég hefði klesst á vegg. Mjög slöpp og þungt fyrir brjóstinu. Er búin að vera með slím að koma upp og neðri öndunarfærin ekki góð. Það var ekki fyrr en í gær í hádeginu þegar ég fór í heitan sal í yogatíma að mér leið aðeins betur í öndunarfærunum. Þá komst hiti í lungun og .... mig langar til heitari landa. Þá liði mér ekki eins og ég sé með lungnabólgu.

Mér sem sagt líður eins og ég sé með lungnabólgu en ég held að það geti eiginlega ekki verið. Allavegana, ég held að mér líði aðeins betur. Þegar ég vaknaði í morgun leið mér ekki eins og ég hafi lent í árekstri eða eitthvað. Vona að þetta sé allt að koma.

Ég er veik heima í dag. Á að vera á 8-13 vakt en hringdi í vinnuna eftir yogatímann í gær og tilkynnti áframhaldandi veikindi. Það er mjög óþægilegt að vera svona manneskja sem er bara eitt stórt samviskubit oft á tíðum. Mér finnst óþægilegt að hringja í vinnuna og tilkynna veikindi. Manni líður eins og maður sé að bregðast heildinni, sem sagt að nú þurfi að redda manneskju á vaktina og jadijadi.. Eins og vanalega var ég búin að ofhugsa málið, var að forðast þetta símtal en í endann á yogatímanum bauð Ingibjörg okkur að draga miða upp úr skál og setja svo bara aftur í. Ég gerði þetta og viti menn... hvað stóð á mínum miða?

Let go of thinking.

Ég brosti úr í annað, þessi skilaboð áttu svo vel við. Eftir tímann fór ég út í bíl, hringdi þessa blessaða símtal og fór heim og hélt áfram að vera veik.

P.s. Það truflar mig af og til að vera með tvær háskólagráður en að vera starfa í vinnu sem krefst ekki menntunar. Auðvitað. Þegar ég hef verið spurð út í þetta í vinnunni hef ég bent á eins og er að ég hafi útskrifast í maí 2007 og svo kom hrunið. Það var enga vinnu að fá. Fólk flutti til Noregs. Það var ekki fyrr en í maí 2010 að ég fékk vinnu og var þá búin að sækja um vinnu á dag í lengri tíma. Það breytir samt ekki því að lífsviðhorf mitt hefur breyst svo mikið. Ég er ekki tilbúin lengur að fórna mér í vinnu. Eins og staðan er núna langar mig ekki í meira en 50% starf þar sem ég er með 6 manna fjölskyldu sem er bara eins og er heilmikill pakki. Ég stefni ekki á að starfa sem nuddari 100% vinnu. Mig langar til að vinna einhvers staðar 50% og starfa svo sem nuddari 50%. Ég myndi ekki funkera að nudda mörg nudd á dag allan daginn. Þá myndi ég brenna út á tveimur árum líklegast.

P.p.s. Ég held líka að ástæða þess að mér líður oftast vel í núverandi vinnu minni á hjúkrunarheimili við umönnun aldraðra er skjólstæðingar mínir eru ekki kröfuharðir. Þeir eru alltaf ánægðir að sjá mig, búast ekki við neinu frá mér og eru alltaf ánægðir með störf mín. Ætli mér líði ekki bara mjög vel með börnum (í takmarkaðan tíma) og öldruðum. Það er ekki þessa endalausa krafa um afköst, titla, árangur og gæði og afköst. Ég hef aldrei höndlað það mjög vel. Þoli ekki stress og fíla illa þá sem búa til stress í aðstæðum þar sem það er ekki við hæfi.

Thursday, November 23, 2017

Please please tell me now...

(80's lag)

Getur þú sagt mér, Svava Ólafsdóttir, af hverju, AF HVERJU, þú skráðir þig í heila 6 áfanga í skólanum vitandi það að þú ert í 50% vinnu og með fullt af krökkum upp um alla veggi í ofanálag heima og heimili þar sem einungis þér sjálfri er annt um að sinna heimilisstörfunum?!

Sorry, dálítið fml í gangi þessa dagana. Er búin að vera skila verkefni eða heimaprófi eða ritgerð á dag í alltof langan tíma. Man núna svo skýrt af hverju ég lofaði sjálfri mér að fara aldrei aftur í skóla. Það er einmitt út af þessu. Ég fúnkera ekkert sérstaklega vel undir svona miklu álagi.

Var það ekki einmitt svona álag sem þú ætlaðir að forðast Svava?

Æi, ég sakna svo tímans sem ég gat bara lesið bók í friði í goody feeling. Mér er það þó nokkur huggun harmi gegn að eftir mánuð verð ég búin í prófunum fyrir fimm dögum síðan. Það er þó eitthvað.

Væl og vorkunn, væl og vorkunn.

Ok, bæ.

Tuesday, November 21, 2017

Sátt manneskja kaupir ekki neitt

Mér finnst svo hjartnæmt hvað ég fæ núna mörg hrós fyrir hárið mitt. Hvað það er flott.

Mér finnst það hjartnæmt vegna þess að í svo mörg ár litaði ég það. Ég vil ekki fá að vita hversu mikið ég eyddi í hárið á mér á hinum ýmsu hárgreiðslustofum höfuðborgarsvæðisins. Það er hlægilegt. Þegar ég var gelgja vildi ég vera ljóshærð eins og Kelly Taylor í Beverly Hills 90210, þátt sem ég horfði mjög mikið á. Ég var mjög ósátt við hárið á mér. Fannst það alger drulla. Fannst það músarskollitað og hræðilegt. Litaði um leið og það kom rót liggur við.

Núna hefur mér sjaldan liðið eins vel í hárinu enda eru engin efni í því. Ég er svo heppin að það er dáldið í tísku að vera með dökka rót en svo feidar það út í ljós í endana. Núna gæti ég ekki verið sáttari. Og hvert er sannleikskornið í þessu? Það er ekki bara það að fegurðin kemur að sjálfsögðu innan frá. Hún er náttúruleg. Sátt.

Og að sátt manneskja kaupir ekki neitt.

Ég er sátt við að vera sátt manneskja sem kaupir ekki neitt. Ég er líka sátt við að vera með því umhverfisvænari og minemalísk. Less things, more you. Eða eitthvað svoleiðis.

Var bara í göngutúr og datt þetta í hug.

Skrifumst síðar.

Thursday, November 16, 2017

Metnaður

Það er mismunandi hvað manni langar að setja metnað í á mismunandi tímum.

Í síðasta mánuði bar ég mestan metnað fyrir því að vakna einu sinni í viku kl. 05:50 til að fara í mysore Ashtanga yoga tíma kl. 06:15. Það var geðveikt gott þangað til að það varð bara geðveikt. Allavegana, um þessar mundir ber ég mestan metnað fyrir því að spara. Það er kominn 16. nóvember og ég hef ekkert notað kreditkortið! :) Þetta fyllir mig metnaði þar sem ég þarf auðvitað aðeins að spara verandi námsmaður og allt það.

Held reyndar að ég verði að nota kortið á morgun en þá á ég tíma hjá kírópraktor. Aftur á móti kemur svo stéttarfélagið til með að borga til baka að öllum líkindum (er í nýju stéttarfélagi núna - Eflingu) en ég verð að leggja út fyrir því fyrst. Hhhmmmm...

I hate to loose.

Er ekki bara hollt að vera í smá keppni við sjálfan sig? Ég held það. Ég náði þá allavegana til 17. þessarar mánaðar að nota það ekki. Myndi kannski nota debetkortið þó það skipti nú ekki öllu máli en ég bara veit ekki pin - ið á því..

Later.

P.s. held ég haldi bara pistlinum frá því í gær inni. Það er hollt að hella úr skálum reiði sinnar. Ég geri það þá allavegana hér, á mínum eigin vettvangi, í staðinn fyrir að sýna nágrönnum mínum hana.
P.p.s. Mikið ofboðslega langar mig í einbýlishús!

Wednesday, November 15, 2017

Já nei nei

Mikið er skrýtið þegar lífið verður ótrúlegra en eitthvað sem maður sér í bíómynd eða í sjónvarpinu.

Það var um eftirmiðdaginn í gær að ég skynja kunnuglegt hljóð í íbúðinni. Einhvern víbring. Svona eins og það væri stór þvottavél á stanslausum snúningi upp við eyrað. Ég vissi það strax. Þetta var kælipressan niðrí kjallara, undir íbúðinni.

Ég ætlaði ekki að trúa að mínum eigin augum og eyrum þegar ég fór niðrí kjallara og sá og fann að helvítis pressan var komin aftur í gang. Það var búið að slökkva á henni í kjölfarið á húsfundi sem var víst eins og einhver sirkus.

Fólkið í kjallaranum í hinum stigaganginum rifust og skömmuðust því að þau vilja að kælipressan sé í gangi svo að þeirra kæliherbergi virki. (Skítt með það að það sé ekki líft okkar megin, þar sem helvítis pressan er. En þau heyra náttúrulega ekkert í henni.)

Allavegana, það sem gerðist í gær var að maðurinn, þetta er sem sagt par, hafði hringt á viðgerðarmann upp á sitt einsdæmi til að laga helvítis pressuna. Þess vegna var hún komin í gang. Sko. Þessi maður er ekki með lögheimili hér og þau eru ekki í skráðri sambúð. Hann er sem sagt ekki íbúðareigandi í húsinu og þó hann hefði verið það hefði hann ekkert með að vera hringja á viðgerðarmann.

Frekjan og yfirgangurinn sem þessi aðgerð felur í sér gerði mig kjaftstopp. Upp komu gömlu tilfinningarnar þegar ég þjáðist hér mánuðum saman yfir látunum í pressunni dag sem nótt í fæðingarorlofinu svo ég svaf eiginlega ekkert. Ég var næstum búin að keyra sjálfri mér yfir á geðdeildina vegna þess að ég get ekki verið heima í látunum frá mótornum í kælipressunni. Get ekki hugsað heila hugsun á meðan þetta er gangi.

Þannig að ég er búin að vera glíma við þessa tilfinningu síðan eftirmiðdaginn í gær. Reiði. Hvað gerir maður þegar trampað er svona rosalega á mannréttindum manns. Þegar pressan er í gangi er íbúðin okkar óíbúðarhæf. Ég gæti aldri selt hana vitandi af þessu skrímsli í kjallaranum.

Það sem mér þykir erfiðast er þetta fólk. Þetta par. Þau vita að það búa manneskjur fyrir ofan mótorinn. Er þeim í alvörunni bara alveg sama? Í alvörunni?

Heimilið mitt er heimilið mitt. Ég bý hér. Á heimilinu á að ríkja ró og friður frá utanaðkomandi aðstæðum. Alltaf. Það er nógu slæmt að þurfa að díla við hávaðann frá umferðinni þó að maður þurfi ekki líka að díla við eitthvað svona bull líka.

Það sem mér þykir líka erfitt er hversu átakafælin ég er. Ég legg bara ekkert í að tala við þetta fólk. Sérstaklega ekki þegar ég svona reið. Ég labbaði samt alla leiðina yfir til þeirra í gærkvöldi, innanhúss. Ég stóð fyrir framan dyrnar hjá þeim og ætlaði að segja eitthvað við þau. Ég er fegin að ég gerði það ekki núna. Þetta hefði ekki farið vel. Ég vissi að þau voru búin að hnakkrífast við formann húsfélagsins fyrir framan börnin sín fyrr um kvöldið.

Það eru nefnilega að koma jól. Þau vilja að kæliherbergið sé í virkni þá. Jól? Hvað þýða jól? Er það ekki hátíð ljóss og friðar? Hvernig geta þau notið hátíðar ljóss og friðar þegar ég get ekki verið heima út af látunum í mótornum?

Ja hérna hér. Ég ætla að hafa þetta blogg inni allavegana þangað til á morgun. Ég tek það þá líklega út því ég vil ekki hafa neitt neikvætt inni á því. En þegar það er vegið svona að friðhelgi manns...

... þá verð ég að skrifa mig frá því.

Ást og friður

Tuesday, October 24, 2017

Yes!

Það er svo gaman þegar maður kemur sjálfum sér á óvart.

Tók alveg nýjan pól í hæðina og mætti kl. 06:15 í Ashtanga yoga í Yogashala í morgun (nótt.) Lét tala mig inn á þetta af yogakennara sem ég lít mikið upp til í síðustu viku og lét verða af þessu í morgun. Þetta var svona mysore tími en þá gerir maður rútínuna sjálfur og svo kemur engill og "adjustar" mann og ýtir manni aðeins lengra í stöðuna en maður kemst sjálfur.

Þetta var nú svolítið big deal fyrir mig af því að ég passa rosalega vel upp á svefninn minn, bara eins og maður passar nýfætt barn, og fór því í rúmið kl. 22 í gærkvöldi til að vera allavegana upp í rúmi í 8 tíma. Klukkan hringdi svo 05:50 eins og ég hafði stillt hana og út fór ég. Stórskrýtið.

Ég elska yoga og á instagram er ég að fylgja nokkrum svona yogum og þeir gera þetta flestir, stunda þetta sport sitt svona á nóttunni áður en dagurinn byrjar og halda svo glaðir og sáttir út í daginn. Hvað sjálfa mig varðar þá var þetta fyrsti dagurinn sem ég geri þetta í dag og ég er þreytt. Það verður bara að segjast:) En ég er svona gott vont þreytt.

Það er ekki annað hægt en að vera sáttur þegar maður er búin með líkamsræktina svona snemma dags. Er strax farin að tala um það við sjálfa mig í hausnum (:)) hvort ég eigi að gera þetta aftur á morgun því það er líka svona tími á morgun þar sem maður fær svona yndislega hjálp eins og í nótt (morgun.) En ég er nú á vakt á morgun frá 8-13 svo ég hreinlega veit ekki alveg... Það er aðeins meira mál af því að þegar ég er búin með yogað vill líkaminn bara njódda og liffa þið vitið.

Allavegana, góðan og fallegan daginn og...

... namaste.


Tuesday, October 17, 2017

Skólinn

Það er nú bara ágætlega gaman hjá mér í skólanum núna þó að ég sé nú helst til í of mörgum áföngum. Þeir eru 6. Ég ræð við það með að læra á hverjum degi og halda dampinum. Þetta er ekkert mál svo lengi sem maður er frískur og líður vel.

Áfangarnir eru sjúkdómafræði 103, líffæra- og lífeðlisfræði 203, samskipti (tek hann í fjarnámi við Verkmenntaskólann á Akureyri), siðfræði, upplýsingatækni og ilmkjarnaolíufræði. Svo þetta eru bara verkefnaskil, ritgerðaskil og heimapróf út í eitt. Já, og svo auðvitað að rembast við að læra þetta allt saman.

Núna finnst mér sjúkdómafræðin erfiðust og þá ætla ég að gefa henni mestan tímann, bara þegar ég er búin með heimaprófið í siðfræði, skýrsluna í ilmkjarnaolíufræðinni og verkefnið í samskiptum. Mmm hmmm.

Neita því nú ekki að ég verð líklegast nokkrum andlegum kílóum léttari svona sirka um miðjan desember.

Gangi þér vel ég. Takk ég. Takk.

Monday, October 16, 2017

Yes!!!

AAAAaaahhhh, léttir.

Elsku krakkinn. Ég get hætt að hafa áhyggjur af talkennsku og talþjálfun og talkennara og talmeinastöðinni af því að loksins getur Guðrún Halla sagt stafinn k!

K!

Ég tók eftir þessu í dag þegar hún bað um smá köku og sagði ekki "tata" eins og vanalega. Barnið sagði "kaka." Ég hefði getið étið hana ég var svo ánægð. Ekkert tata eða túta lengur, nei nei, það er bara KAKA og KÚKA takk fyrir.

Ég þakka nú leikskólanum fyrir en annars gerði ég nú eitt ráð núna í fyrradag en það er eitthvað sem dagmamman hennar sagði mér frá. Ég sagðist vita hvar K-áið væri. Það væri í vasanum hennar. Hún náði í það. ... Ég veit nú ekki alveg hvort að það hafi gert útslagið en það er kannski allt í lagi að halda það bara.

Ein himinlifandi móðir kveður að sinni:)


Friday, September 15, 2017

Takk, takk Alexander Fleming

Elsku herra Fleming. Ég veit þú ert dauður en ég elska þig. Takk fyrir að finna upp sýklalyfin því án þeirra veit ég ekki hvar ég væri. Í helvíti líklegast.
Eftir að hafa upplifað svæsna blöðrubólgu (aftur) og vanmáttinn sem því fylgdi er ég svo full þakklætis að mig langar að kyssa herra Fleming og knúsa hann. Geri það bara í huganum en læt líkið eiga sig.

Takk, takk, takk herra Fleming.

P.s. Fleming varaði við ofnotkun sýklalyfja og það eru að koma upp dæmi um að fólk verði ónæmt fyrir sýklalyfjum. Þetta er eitthvað sem ég er meðvituð um en í þessu tilviki dugði ekki til að drekka 2 lítra af vatni á dag, fá mér C vítamín og vona það besta.

Tuesday, September 5, 2017

I have a dream

Ég las einhvern tíma viðtal við Margréti Láru þar sem hún talar um mikilvægi markmiðasetningar og þegar ég pikka inn þessi orð geri ég mér grein fyrir að þennan pistil hef ég skrifað áður hér. Allavegana, ég elska markmið af því að þau koma manni alltaf einu skrefi lengra í átt til þeirrar manneskju sem maður er. Ekki myndi maður setja sér markmið um eitthvað sem maður hefur ekki áhuga á sem manneskja.

Margrét Lára talaði um að setja sér markmið og svo að draumamarkmið; eitthvað sem manni langar virkilega að eignast eða gera eða hafa. Mér finnst þetta svo æðislegt af því að ég á mér draumamarkmið. Það er að búa á Maui, Hawaii eða Bali eða Tælandi og stunda yoga og vera frjáls. Kannski ekki búa alltaf en allavegana á síðari hluta ævinnar. Ég get eiginlega ekki ímyndað mér neitt dásamlegra.

Dr. Wayne Dyer bjó á Maui en hann var mikill hugsuður og spekingur sem lést nýverið. Hann skrifaði fullt af sjálfshjálparbókum og gaf út svona podcost fyrir leitandi manneskjur eins og mig til að hlusta á. Oprah Winfrey á líka hús á Maui skilst mér og er þar oft. Sannkölluð paradís sem þetta er ábyggilega. Þetta er örugglega svona eins og einn garðurinn sem ég kom í út á Bali og varð svo gjörsamlega hugfangin að það var erfitt að halda utan um reynsluna. Eitthvað algerlega töfrandi liggur í loftinu og manni líður svo dásamlega þarna að maður skilur af hverju David Bowie vildi að askan sín yrði dreifð yfir Bali. Hérna eru nokkrar myndir sem komu á google þegar ég sláði inn Maui.




Oh, eitthvað fyrir mig. Svo myndi ég fara í yogatíma eða læra að vera yogakennari og fá Íslendinga til mín og njóta í botn.

Allavegana, langaði bara til að segja ykkur frá draumamarkmiðinu mínu. Adios:)

Saturday, September 2, 2017

Tiltekt

Elska að taka til. Hvort sem það eru veraldlegar, andlegar eða líkamlegar tiltektir. Þetta er reyndar ekki alveg satt þar sem ég þoli ekki draslið heima af því það er ekki eftir mig. Þau hin ganga ekki til eftir sig (umgengnisvandamál.)

Það var til dæmis rosalega góð andleg tiltekt bæði að flytja (fyrir 4 árum síðan) og að hætta í vinnunni (besta andlega tiltekt sem ég hef nokkurn tímann gert) og núna er ég að taka til í mataræðinu. Það er líka með betri tiltektum sem ég hef gert. Byrjaði á því að taka kjöt út og langar ekki í það meir. Leið strax betur og fann fyrir aukinni orku. Tók svo mjólkurvörur út og man, o man. Bingó! Fólk er hætt að spyrja mig hvort ég sé ólétt og mér líður miklu betur:) Meiri orka og betri lífsgæði og allt. Takk Begga segi ég af því að hún gaf mér innblásturinn af því að gera þetta (hún er besta vinkona mín sko.)

Ég fékk mér óvart smá nýmjólk út á hafragrautinn minn í vikunni og það var ekki að spyrja að því - maginn blés út um 2-3 tímum seinna eins og ég væri komin 4 mánuði á leið. Við sjáum mynd:
Bless mjólk, bless ís :(, bless konfektísinn á áramótunum (erfiðast, fæ mér líklegast.)

Annars bíð ég ykkur vel að lifa. Later:)

Thursday, August 24, 2017

To be or not to be...

... are you a man or are you a mouse?

Fór í Laugardalslaugina áðan og gerði það sem ég geri vanalega þar; fór rakleiðis í pott númer þrjú held ég að það sé, þennan 40°C heita við hliðina á gufunni, þennan með góða nuddinu (elska hann.) Svo vel ég mér hentugustu sundbrautina, þar sem fæstir eru og syndi bringusund yfir, skriðsund tilbaka og endurtek. Í dag var ég í stuði og endurtók aftur. Svo hófst störukeppnin við kalda kerið..

.. are you a man or are you a mouse? Fór einhvern tíma í hann og það var mega hressandi. Allar frumur glaðvöknuðu og Svava rosa fersk eftir. En. Það var rosalega kalt og ég entist í svona sekúndu. Sko eina.

Svo ég starði á blessaðan kalda pottinn (5-8°C) og var að reyna að ákveða hvort ég þyrði aftur. Var ennþá ofan í lauginni á meðan á þessari grimmu störukeppni stóð með stóra innri baráttu í gangi. Svo...

... fór ég bara upp úr lauginni, tók sveig framhjá kerinu og fór beint í sturtu.

Fer frekar næst. Eða þarnæst..

Wednesday, August 23, 2017

Derma rúllan

Það er svo gaman að prufa eitthvað nýtt.

Ég var búin að frétta aðeins af þessari derma rúllu og sá hana auglýsta á Gyðju-snappinu. Ákvað svo að slá til og skella mér á hana þegar ég sá hana auglýsta á 3.500 kr á netinu. Viðurkenni fúslega að ég beið spennt eftir að hún kæmi í póstinum:)

Prufaði hana strax sama kvöld og hún kom og svo aftur í gærkvöldi og setti svo Penzim á húðina eftir á.

Er búin að vera með einhvern bölvaðan óskapnað á húðinni undir augunum frá því ég var með Stefán á brjósti. Veit ekki hvað þetta kallast en ég fór til lýtalæknis fyrir nokkrum árum og það var actually skorið á húðina eða undir húðina.. algerlega ógeð en það virkaði ekki. Svo núna bind ég vonir mínar við þessa blessuðu rúllu því mér finnst ég sjá smá mun!

Þetta er nú ekki mjög sexy dæmi samt þar sem blessuð rúllan er með fullt af litlum nálum sem maður rúllar fram og tilbaka yfir húðina, sérstaklega problem areas. Þetta svíður og húðin roðnar svo að þetta er dáldið brútal svona en þetta á víst að auka kollagenframleiðslu húðarinnar sem fer þá að lækna sjálfa sig eða svoleiðis.

Allavegana, ég krossa puttana og vona það besta. Reyndi að taka "fyrir" mynd en gekk ekki nógu vel með það. Þetta myndast einhvern veginn ekki nógu vel..




Wednesday, August 9, 2017

Thai nudd

Ég fór á 7 daga námskeið í Thai nuddi núna í júlí. Mér fannst þetta námskeið mjög athyglisvert sem og hinum sem voru þarna en ég held að það hafi einmitt verið athyglisvert fyrir fólkið sem kaus að vera þarna því það var þarna af fullum áhuga en þetta námskeið var fyrir þá sem hafa áhuga á andlegum málefnum, aðrir hefðu ekki haft svo mikinn áhuga held ég.
Það var sem sagt shaman Rahul Bhakti:
sem kenndi okkur og það kom mér dáldið á óvart hvað þetta var mikið tal. Hann sem sagt talaði alveg fyrir hádegi og svo gerðum við stundum æfingar og svo var farið í nuddkennsluna eftir hádegi. Þetta voru langir dagar því þetta var alveg frá kl 08 á morgnana til kl 17 og oftast lengur.
Við hlustuðum öll með athygli og mikilli aðdáun á Rahul og tókum upp flest það sem hann sagði. Við bárum og gerum enn sem sagt mikla virðingu fyrir honum en hann er mjög andlegur og vinnur sem heilari og nuddari. Hann býr á Indlandi en mig minnir að hann hafi sagt að hann sé frá Tælandi líka og hafi verið ættleiddur en ég er alls ekki viss.
Mér leið mjög vel á námskeiðinu með fólkinu sem var þarna með mér. Mér leið dáldið eins og ég væri komin heim sem var auðvitað dásamlegt. Við smullum vel saman fólkið sem var á þarna en það voru allavegana tvær sem mættu bara fyrstu tvo dagana. Ég get vel ímyndað mér að þær hafi ekki verið sammála öllu sem hann talaði um en annars veit ég ekkert um ástæðuna af hverju þær hættu að mæta. En eins og ég segi þá leið mér svo vel þarna, gat verið 100% ég sjálf og ég held að hinum hafi liðið alveg eins. Það var mjög gott fyrir geðheilsuna að geta yfir höfuð komist og farið á þetta námskeið því annars hefði ég verið með börnin út í eitt eins og alltaf núna á sumrin og ég viðurkenni fúslega að ég þurfti klárlega frí frá því.
Rahul hafði sem sagt mikil áhrif á mig. Þetta var eins og að hlusta á sjálfshjálpargúrú 7 heila daga í röð. Ég hætti að taka kvíðalyfin, það var eitthvað sem hann sagði sem olli því að ég ákvað að hætta að taka inn öll lyf heldur nota frekar náttúrulegar leiðir þegar eitthvað bjátar á. Ég hætti líka að nota brjóstahaldara og nota bara toppa núna sem þrengja ekki að líkamanum og losaði mig við íþróttatoppa sem skildu eftir sig för á líkamanum af því að þeir voru of þröngir, meikar bara ekki sens fyrir mig að nota þannig föt lengur. Ég á líka erfiðara með að ganga í svörtum fötum núna eftir þessa lífsreynslu skulum við bara kalla það svo ég geri lítið af því.
Nuddaðferðin sjálf er dáldið spes. Ekki mjög íslensk enda er hún tælensk(;)) en nuddþegi liggur sem sagt á dýnu á gólfinu allan tímann og nuddarinn krýpur í kringum hann. Þetta er 90 mínútna nudd sem við lærðum og fótanuddið (legs) er alveg 45 mínútur. Nuddþegi liggur á bakinu allan tímann svo það er ekkert baknudd nema sná axlarnudd en þetta er allavegana mjög gott nudd, ég get vitnað um það þar sem við þurftum að æfa okkur á hvert öðru:) það var mjög ánægjulegt að fá tilfinningu fyrir því sem ég er að læra, sem sagt nuddnámið. Við vorum sirka 12 á námskeiðinu og maður nuddaði alla og fékk nudd frá öllum. Mér finnst svo frábært að hafa kynnst öllu þessu fólki. Magnað í rauninni og einmitt það sem ég þurfti í lífinu. Við ætlum að halda hópinn og hittast og æfa okkur. Við erum búin að hittast einu sinni og erum að fara hittast aftur á morgun. Ég er ekki orðin örugg á rútínunni svo það er gott að vera með æfingafélaga.

Ég ætla ad enda þennan pistil á manneskjunni sem gerði þetta allt mögulegt en það er auðvitað móðir mín sem var svo æðisleg og yndisleg að koma heim til mín þessa daga og líta eftir börnunum á meðan ég var á námskeiðinu.

Takk mamma mín. Ég elska þig ❤

Thursday, June 29, 2017

11

Hafið þið tekið eftir því að það er búið að vera mjög oft 11 C hiti í sumar? (finn ekki gráðu merkið á lyklaborðinu...) Hvort sem það er að degi til eða kvöldi þá finnst mér svo oft vera 11 C hiti í bílnum sem er frábært af því að 11 er uppáhalds talan mín:)

Já, já. Ykkur finnst ég líklegast vera mjög skrýtin með þetta en ég er að segja ykkur það að það er svo oft þegar ég er til dæmis úti að hlaupa eða í yogatíma og í eina skiptið sem ég lít á klukkuna þá er hún 11:11. Þetta er víst englatala.

Það eru nokkur ár síðan ég byrjaði að taka eftir þessu og svo sá ég á netinu að þetta er svona englatala, hvað sem það þýðir nákvæmlega... Svo er ég að sjá á snappinu (Snapchat) að til dæmis Paris Hilton snappar oft þegar kl. er 11:11 og segir eitthvað á þessa leið: "it's 11:11, make a wish." Eva Langoria gerir þetta líka minnir mig.

Allavegana, 11 C stiga hiti svo oft og ég tek því sem merki um að allt er æðislegt.

Don't worry, fer ekki í flækju þegar hitastigið úti er ekki 11C, I'm just saying.

Ást og friður you guys.

Friday, June 23, 2017

Já maður

Mikið sem þetta sumar er að leggjast vel í mig. Ég er þegar búin að fara til Flateyjar með fjölskyldunni sem var auðvitað dásamlegt. Við vorum í tvær nætur sem var nóg til að fanga þessa fegurð;
Ég fór á Secret Solstice sem var dýrt en gaman. Ég sá Prodigy sem var nú aðalmálið fyrir mig og Þórunni Antoníu sem mér finnst flott;

Er búin að hitta og hanga með vinkonum mínum, sérstaklega gaman að hitta Tinnu sín auðvitað;)
Við erum búin að ganga að fossinum Glym í Hvalfirði;
... fara með fellihýsið í Húsafell;
Ég fór með vinnunni í Reykjadalinn núna í vikunni;
... og núna kemst ég líka í gamla djammgallann
Sumarið er uppáhalds árstíðin mín. Elska sumarið og það er bara rétt að byrja! Jibbíkóla:)

Thursday, May 18, 2017

játs

ég er komin aftur eftir langt hlé..

Mikið búið að gerast og vera í gangi, svo mikið að ég hef ekki bloggað í þónokkuð langan tíma! Well, I'm back.

Það helsta sem hefur haldið mér upptekinni er skólinn. En núna er prófunum lokið (skál fyrir því!) og kellan bara nokkuð sátt. Það eru komnar inn tvær einkunnir og það er 9 og 9,6. Elska það fá góðar einkunnir:) 9,6 í bókfærslu og 9 í Stofnun og rekstur nuddstofu. Það var sami kennari í báðum þessum fögum. Núna býð ég spennt eftir einkunnunum úr Heilbrigðisfræði, líffæra- og lífeðlisfræði og næringafræði.

Yes, svo er það vinnan. En hún heldur mér ekkert það upptekinni, það er bara þegar skólinn og vinnan og ég tala nú ekki um heimilið og börnin og vinnan flækjast saman að vinnan er eitthvað stress eins og núna þá er Guðrún Halla með hlaupabólu sem getur verið flókið þegar maður er í prófum, á að vera vinna og það verður óvænt dauðsfall í fjölskyldunni.

Já, Mandi, móðurbróðir minn lést í byrjun mánaðarins og það var erfitt og sorglegt eins og oftast þegar einhver deyr. Jarðarförin var núna á mánudaginn, hún var falleg og það voru margir sem komu til að kveðja hann í hinsta sinn í Lágafellskirkju sem var frekar lítil miðað við fjöldann en samt fullkomin. Blessuð sé minning hans.

Ég er eiginlega bara að ná mér niður eftir þessi próf núna. Er heima með veikt barn og elska að vöðvabólgan er farin í bili allavegana en ég fæ oftast frekar mikla vöðvabólgu á svona álagstímum. Mér finnst sumt af þessu námi sem ég er í (heilsunuddbrautin í FÁ) vera frekar auðvelt en afgangurinn bara erfiður. Erfiðustu prófin hjá mér voru í LOL-inu (líffæra- og lífeðlisfræði) og næringafræði. Ég næ þeim alveg en ég vil ekki bara ná kúrsum núna, ég vil fá góðar einkunnir. Go figure.

Allavegana, halló sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag:D

Fór og hitti vinkonur mínar í morgun með Guðrúnu Höllu en er annars bara að lufsast hérna heima, ekkert alltof kraftmikil, er bara að elska að þurfa ekki að læra og byrjuð á bók. Yndislegt:)

Thursday, April 20, 2017

Sjósund var það heillin

Ég er svo heppin að hafa kynnst dásamlegri og skemmtilegri skvísu sem ég á margt sameiginlegt með í vinnunni hjá Hreint. Í gær fórum við saman í sjósund og gerðum smá usla.

Vegna þess hvursu kalt það var svona daginn fyrir sumardaginn fyrsta kom Eddan mín með þurrgalla og sjósokka að vanda fyrir okkur. Hún náði í mig eins og vanalega þegar við hittumst og við fórum niðrí Nauthólsvík. Þetta er í rauninni alger snilld. Maður borgar 600 kr yfir vetrartímann fyrir að nota sturtuaðstöðuna og getur svo notið sín þarna. Allavegana.

Við löbbuðum í sjóinn, þær einu sem voru í galla, í skítakulda og roki. Aðrir voru nú bara í sundfötum. Við öskruðum og skríktum eins og smástelpur þar sem okkur þótti sjórinn svo kaldur og vorum nú ekki lengi ofan í. Kannski að þetta hafi náð tveimur mínútum eða frekar svona einni og hálfri... Þegar við vorum að labba upp úr kemur að okkur jaki í eldri karlmannslíki og labbar upp úr sjónum eins og konungur. Hann bendir okkur á að við missum súrefnið þegar við öskrum svona og við eigum nú bara að anda djúpt nokkrum sinnum og svona. Æ, þetta var svona 'you had to be there' fyndið. Líka af því að maður fer svona að flissa þegar maður er genginn aftur í barndóm;)

Allavegana, síðan fórum við í þennan margblessaða pott sem er þarna. Ég á sárar minningar frá þessum potti þar sem ég fékk svæsna blöðrubólgu síðast þegar ég fór í hann. Var samt staðráðin í að vera nagli og láta þetta nú ekkert á mig fá. Oh, fékk svo einkenni blöðrubólgu þegar ég var komin heim þó að ég passaði vel að pissa beint á eftir.

Alveg glatað að vera svona viðkvæmur...

Allavegana, elska svona ævintýri:)


Saturday, April 15, 2017

Hið ljúfa líf

Oh.... sit hérna í sumarbústað nýlosnuð við stressklumpinn úr bakinu mínu og líður dásamlega.

Ég verð að flytja. Það er bara þannig. Það er eitthvað svona falið álag sem fer í mig alla við að búa svona nálægt miðjunni í borginni. Svo er ég bara búin að vera ótrúlega stressuð síðustu daga og það vill fara í kroppinn minn stundum og í þetta skiptið var ég komin með stressklumpa í axlirnar og undir herðablaðið hægra megin og ég veit ekki hvað og hvað.

Keyrði í ofboði eins fljótt og ég gat eftir vinnu á föstudaginn út úr borginni og í sumarbústað í Brekkuskógi þar sem fjölskyldan mín var fyrir og viti menn, mér líður strax svo miklu betur.

Langar eiginlega til að frjósa tímann núna og vera bara í svona streitulausu umhverfi að eilífu.

Við keyrðum meðal annars á Flúðir í dag og ég var í alvörunni að hugsa hvernig það væri að eiga bara heima þar. Æ, ég væri líklegast komin með nóg eftir vikuna samt.

Er samt bálskotin í þessari hugmynd. Akranes kannski? Mosfellsbær? Já?

En við flytjum á árinu. Það er á hreinu. 

Vildi bara aðeins koma hérna inn og árétta þetta. Og staðfesta.

Monday, April 10, 2017

Pawn

Ég er mikill aðdáandi svona inspirational quotes eða hvað ætli besta íslenska orðið yfir það sé? Viskuorð, tilmæli?

Allavegana, frændi minn setti inn á Instagramið sitt eftirfarandi:

með hashtaginu #whatnottodo.

Mér finnst þetta quote eiga svo vel við lífið mitt um þessar mundir. Ég er búin að komast að því að hefðbundið 9-5 starf eða 08-16 eins og er oft hérna heima á bara alls ekki við mig. Ég myndi nú alveg vilja að það gerði það, bara mjög mikið eiginlega. Þá myndi innkoman alltaf vera sú sama, ég væri að borga alltaf sömu upphæðina í lífeyrissjóðinn, ég myndi líka vera með viðbótalífeyrissjóð og tryggja þannig framtíðina með traustri innkomu.

Mér hefur alltaf þótt leiðinlegt að vera ekki þannig. Að vera ekki þessa manneskja sem að menntar sig, giftir sig, eignast fjölskyldu, er í öruggri vinnu og með öruggt húsnæði. Ok, ég er með þrjú af þessum atriðum en ég er ekki gift og er ekki í 9-5. Þess í stað er ég með draum sem mætti nú alveg vera skýrari að mínu mati um að vinna sem einhvers konar græðari eða heilari. Ég komst að því um helgina að ég nýt mín upp að vissu marki í umönnunarstarfinu en núna vinn ég á hjúkrunarheimili og ég er að læra nuddarann sem er einu skrefinu nær því sem ég vill vinna við.

Ég bara vildi að það myndi gefa meiri tekjur að gera þetta sem ég er að gera núna.

Allavegana. Eftir að ég byrjaði að eltast við að vinna við það sem mig langar til að vinna við (nuddið) er einhvern veginn ekki aftur snúið. Ég get eiginlega ekki hugsað mér að skipta á því og 9-5.

Jæja, þetta var pæling dagsins...

Later.

Thursday, March 30, 2017

Nudd

Ég fór í nudd um daginn til Tælendings í heimahúsi.

Það var mjög gott svona ykkur að segja. En það var líka dáldið svona weird ef ég á að segja alveg eins og er. Það eru nefnilega ákveðnir tungumálaörðugleikar sem eiga sér stað þegar annar aðilinn talar ekki svo mikið. Og ekki svo mikið ensku heldur.

Allt gekk mjög vel þangað til í endann þegar ég var búin að snúa mér við og hann fór að vandræðast með að hylja á mér brjóstin með undirlakinu af því að hann var að fara nudda á mér magann. Það er skrýtið þegar einhver ókunnugur nuddar á manni magann sísvona og talar ekkert um það. Þegar ég verð nuddari þá ætla að ég láta fólk vita ef ég er að fara gera eitthvað skrýtið. Já, svo sum sé fór hann að nudda á mér andlitið sem var líka skrýtið og já svo smá svona hárið. Það var mest skrýtið.

Og þegar ég var nýkomin og var að fara afklæða mig og hann var að fara út á meðan þá sagði hann bara svona óljóst "take off" og gerði svona handahreyfingar meðfram líkamanum. Ég var ekki viss um hvort ég ætti þá að vera í eða fara úr nærbuxunum en ég er svo guðs lifandi fegin að ég ákvað að vera í þeim.

Ég meina annað hefði verið skrýtið, right!?


Wednesday, March 15, 2017

æ, æ, Æ

Ja hérna hér.

Loksins finn ég smá stund aflögu til að sitja og blogga í smá stund. Allt í einu er ég gripin söknuði yfir þeim tíma þegar ég var að blogga um bækur og bara bla. Mig vantar þetta bla.....

Vinna, vinna, skóli, læra, læra

Þannig er þetta búið að vera að undanförnu. Já og óstjórnleg þrá yfir að flytja í rólegra hverfi burt frá ysi og þysi miðjunnar. Ég var mjög illa haldinn í þessari þrá minni í síðustu viku og finn fyrir svona spennu ef ég er að skoða fasteignaauglýsingar.

Af hverju eru seldar eignir auglýstar? Ég bara spyr. Það var í tvö skipti sem ég sá eignir sem ég varð svo spennt fyrir en svo rak ég mig í smáa letrið fyrir neðan: Eignin er seld..... Why?!

Allavegana, skólinn gengur alveg ágætlega. Það fer að styttast í prófin en þau eru í byrjun maí. Vinnan sem átti nú að vera svona eitthvað smotterý með skólanum bara til að lifa af er frekar kröfuhörð og ég er oft þreytt eftir þessar vaktir sem eru þó alls ekki langar. Bara krefjandi. Þetta ætti að vera miklu betur launuð vinna. En hentar vel með skólanum og er bara alveg hreint ágæt. Vildi bara að launin væru betri.

Jæja, væl óver and out.

Tuesday, February 28, 2017

Amy

Þrátt fyrir að stundum sé tæknin manni ofviða þá er hún stundum svo frábær.

Ákvað sem sagt í gær að horfa á kvikmynd í símanum upp í rúmi í gegnum 365 appið. Fyrir valinu varð Amy, bíómynd/heimildamynd um söngkonuna Amy Whinehouse.

Vá.

Mér fannst myndin merkileg og lifði mig inn í hana. Mikið afskaplega er gott að vera bara einhver nobody! Ég elska það hreinlega. Hef meira segja oft hugsað það.

Þarna fylgdist maður með frábærri söngkonu fara í súinn. Stóra ástin í lífi hennar, Blake, sem hún samdi ófá lög um, frægast Back to black kom þarna við sögu og ji minn eini. Þau fóru bara að nota krakk og heróín eins og enginn var morgundagurinn og hún drakk eins og ég veit ekki hvað. Sjálfseyðingarhvöt maximus.

Hana langaði ekkert í þessa frægð en pabbi hennar kom þarna við sögu og maður svona fékk á tilfinninguna að hann hefði nú mátt bera aðeins meiri virðingu fyrir henni, t.d. þegar hún var loksins á afskekktum stað fjarri ágangi fjölmiðla að þá mætti hann með tökulið.

Æi. Allavegana, dreymdi Amy og dóp í nótt. Eitthvað situr hún í mér þessi mynd. Eins og með Whitney Houston sem líka dó úr áfengi og dópi "lenti hún í því" að mæta á gigg útúrdópuð vitandi ekki hvar hún var.

Æi.

Hvíl í friði Amy Whinehouse.

Í lok myndarinn kom jazzsöngvarinn Tony Bennett held ég að það hafi verið og dásamaði Amy, sagði hana hafa haft einstaka rödd og að hún hafi verið truly gifted. 

Þetta frægðarlíf virðist fara mjög illa með fólk. Maður sá í myndinni hvað þetta papparazzi dæmi er klikkað. Það er hrópað á stjörnurnar úr öllum áttum að snúa sér hingað og þangað og það er líklegast mikil eftirspurn eftir því að sjá stjörnu hrapa. Ekki svo mikið verið að spá í aðgátinni sem ætti að vera höfð í nærværu sálar þar.

Ég gæti aldrei, aldrei, verið papparazzi eða blaðamaður sem fer á bakvið viðmælandann og kryddar söguna aðeins til að selja. Bara nei.

Saturday, February 4, 2017

Svartur húmor

Maður verður nú að hafa smá húmor fyrir þessu öllu saman ekki satt?

Með skólanum er ég að vinna á hjúkunarheimili 50% starfshlutfall. Fólkið þarna er flest mjög veikt og gamalt og er eiginlega komið hringinn, farið að vera með bleyju og smekk aftur. Datt þessi gamli fóstbræðraskets í hug um daginn og hló eins og vitleysingur.

Ekki mjög smekklegt ha? Æ, það er kannski fyndnin í því. Þarna er það endirinn; allt gamalt fólk ..... .

Já sæll. Já fínt já sæll já fínt já sæll

Jæja.

Vikan er búin að vera ljúf og góð. Aðallega vegna þess að veðrið hefur verið bærilegt og frúin var á bíl. Þvílíkur lúxus!

Ég prufaði að fara í flot sem var æði. Fékk sem sagt að eigin ósk svona flothettudót í jólagjöf frá ma+pa og samanstendur þetta apparat af flothettu og tvemur svona dúbbum sem maður setur utan um lærin. Svo fer maður bara ofan í og flýtur um.

Við vorum sem sagt í innilauginni í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði um kl. 20 um kvöldið. Ljósin voru slökkt og þarna vorum við um 12 guggur að fljóta. Mér fannst þetta dásamlegt og ég er ekki frá því að ég sé aðeins betri í bakinu en hryggurinn náttúrulega flýtur bara þarna sultuslakur.

Þetta var fyrir mér hin fullkomna blanda af einhverju fyrir líkamann og einhverju fyrir sálina. Það er ekki hægt annað en að slaka á því maður bara getur ekki annað. Þarna er enginn vél sem þarf að setja af stað eða diskar sem þarf að vaska upp eða krakkar sem trufla mann. Nei, nei. Maður er bara í guðs friði fyrir allt og öllum í þessa einu klukkustund. Ji minn alli hvað ég er að fara gera þetta vikulega héðan í frá.


Saturday, January 28, 2017

Ja hérna hér

Það er af sem áður var.

Fyrir bara nokkrum vikum síðan hafði ég allan tímann í heiminum til að dunda mér við alls konar rólegheit eins og að blogga en nú horfir öðruvísi við.

Skólinn er kominn á fullt og svo er það auðvitað vinnan líka og allt í einu er maður orðinn ferlega nískur á tímann sinn. Bara vegna þess að hann er af skornum skammti.

Allavegana, er bara ánægð með skólann. Tók próf hérna heima í fjarnáminu í gær sem var erfitt og flókið af því að það var í erfiðasta faginu sem er líffæra og lífeðlisfræði en mikið sem ég var ánægð með mig þegar ég kláraði það. Fékk einkunnina strax og hún var 8,5.

Gamla samviskubitið er komið aftur sem ég mundi ekki eftir fyrr en það kom. Gamla skólasamviskubitið sem er einhvern veginn þannig að mér finnst ég alltaf þurfa að vera læra. Finnst ég þurfa svo mikið að hafa þessa yfirsýn yfir námið og finnst óþægilegt þegar ég er ekki alveg með á nótunum eins og í gær þegar var verið að reikna dæmi í tíma upp í skóla og ég var ekki alveg klár hvernig það var gert. Verð þá bara að læra meira.

Allavegana, ákvað að líta hérna aðeins inn. Moodle liggur niðri en það er kerfið sem er notað í fjarnáminu og reyndar dagskólanum líka og hleypir manni inn í þá kúrsa sem maður er í.

Lifið heil. Adios amigos:)

Thursday, January 12, 2017

Þakklát

Jæja, góðan daginn gott fólk.

Mikið sem ég er þakklát fyrir daginn í dag. Bara truly og í alvörunni.

Ég er eitthvað svo ánægð með veðrið þessa dagana. Er að elska þessa stillu. Frost og stilla og björt og falleg snjóbreiða yfir öllu. Love it.

Dagurinn lítur ágætlega út. Ég er að fara skokka 5k, fara í Bónus og svo á kvöldvakt.

Ég er búin að læra mikið af vinkonu minni Sólrún Diego á snappinu en eftir að hafa fylgst með henni og hvernig hún fer bara einu sinni á viku í Bónus hef ég tekið það upp eftir henni. Þetta er alveg heilmikið sparnaður sem felst í þessu og maður nýtir svo miklu betur allt sem er til hérna heima. Ég er alveg stórhrifin af þessu og er að spara alveg heilan helling. Skil ekki alveg hvað ég var að spá eiginlega þegar ég var að vinna til dæmis. Þá var þetta eitthvað svo ómarkvisst. Ég flakkaði á milli Bónus, Krónunnar og Nóatúns eins og flökkukind og ég vil ekki vita hvað ég var að eyða í mat á þessu tímabili! Núna fer ég bara í Bónus og er lauslega búin að ákveða hvað er í matinn þessa fimm daga vikunnar sem ég sé um matinn.

Ég líka geri ekki eins mikið úr kvöldmatnum og ég gerði. Er búin að taka eftir því að krakkarnir borða ekkert svo mikið í þessari máltíð. Þau fá heita máltíð í skólanum í hádeginu og Svanur líka og núna ég líka í nýju vinnunni. Það felst ágætis sparnaður í því að tóna þessa kvöldmáltíð aðeins niður. Það er samt alltaf kvöldmatur.

Mér finnst gott að gera til dæmis kjötbollur úr svona kjötfarsi sem ég kaupi núna í Bónus og vissi ekki að væri til fyrr en ég uppgötvaði það um daginn. Þetta er í frystkistunum á göngunum. Svo er líka fínt finnst mér og krökkunum að vera einstaka sinnum með bjúgu.

Allavegana, matarsóunin hefur batnað um heilan helling og er orðin mjög lítil núna. Tók þetta alveg í gegn á þessu tímabili sem ég var atvinnulaus.

Svo finnst mér líka leiðinlegt að fara í búðir og þá er ágætt að gera þetta bara einu sinni í viku með nákvæman og ítarlegan innkaupalista. Minna vesen og ánægðari ég.

Er svo að fara á mína fyrstu kvöldvakt í kvöld sem er þá frá kl 16 - 22. Ætli maður hafi ekki bara gott af því að vera ekki heima svona einu sinni á þessu tímabili?

eigið góðan dag elskurnar:*

Saturday, January 7, 2017

Gleðilegt nýtt ár!

Ja hérna hér. Það er kominn 7. janúar og ég er ekkert búin að blogga.

Það er búið að vera óvenju mikið í gangi hjá mér mér til varna. Nýtt starf, nýtt nám og samskipti við alls konar fólk. Oh my.

Verð eiginlega að segja að stærsta púsluspilið var að fatta þetta nám sem ég er að fara í og hvernig það er uppbyggt. Er búin að liggja yfir þessu og hvernig ég ætla að gera þetta allt saman og hvernig í ósköpunum ég ætla að vinna með en þetta small loksins hjá mér hva... í fyrradag sirka.

Ég er sem sagt að hefja nám í Heilbrigðisskólanum í FÁ á heilsunuddbraut. Þessa fyrstu önn mína verð ég í fjórum kúrsum í fjarnámi og einum í dagskólanum. Er að fara taka heilbrigðisfræði, líffæra- og lífeðlisfræði, næringafræði og kannski bókfærslu ef ég fæ það ekki metið í fjarnámi og svo stofnun og rekstur nuddstofu í dagskólanum.

Samfara þessu fann ég mér aukavinnu á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar sem ég starfa 50%. Ég er búin að taka fyrstu tvær vaktirnar og það er reyndar heilmikið til að takast á við og koma sér inn í.

Allavegana, ég finn að þetta blessast allt saman og er bara spennt fyrir þessu spennandi ári 2017. Ég ætla að gera mitt allra besta til að láta þetta ganga upp allt saman.

Já, já, já, já, já.