Ég fór á 7 daga námskeið í Thai nuddi núna í júlí. Mér fannst þetta námskeið mjög athyglisvert sem og hinum sem voru þarna en ég held að það hafi einmitt verið athyglisvert fyrir fólkið sem kaus að vera þarna því það var þarna af fullum áhuga en þetta námskeið var fyrir þá sem hafa áhuga á andlegum málefnum, aðrir hefðu ekki haft svo mikinn áhuga held ég.
Það var sem sagt shaman Rahul Bhakti:
sem kenndi okkur og það kom mér dáldið á óvart hvað þetta var mikið tal. Hann sem sagt talaði alveg fyrir hádegi og svo gerðum við stundum æfingar og svo var farið í nuddkennsluna eftir hádegi. Þetta voru langir dagar því þetta var alveg frá kl 08 á morgnana til kl 17 og oftast lengur.
Við hlustuðum öll með athygli og mikilli aðdáun á Rahul og tókum upp flest það sem hann sagði. Við bárum og gerum enn sem sagt mikla virðingu fyrir honum en hann er mjög andlegur og vinnur sem heilari og nuddari. Hann býr á Indlandi en mig minnir að hann hafi sagt að hann sé frá Tælandi líka og hafi verið ættleiddur en ég er alls ekki viss.
Mér leið mjög vel á námskeiðinu með fólkinu sem var þarna með mér. Mér leið dáldið eins og ég væri komin heim sem var auðvitað dásamlegt. Við smullum vel saman fólkið sem var á þarna en það voru allavegana tvær sem mættu bara fyrstu tvo dagana. Ég get vel ímyndað mér að þær hafi ekki verið sammála öllu sem hann talaði um en annars veit ég ekkert um ástæðuna af hverju þær hættu að mæta. En eins og ég segi þá leið mér svo vel þarna, gat verið 100% ég sjálf og ég held að hinum hafi liðið alveg eins. Það var mjög gott fyrir geðheilsuna að geta yfir höfuð komist og farið á þetta námskeið því annars hefði ég verið með börnin út í eitt eins og alltaf núna á sumrin og ég viðurkenni fúslega að ég þurfti klárlega frí frá því.
Rahul hafði sem sagt mikil áhrif á mig. Þetta var eins og að hlusta á sjálfshjálpargúrú 7 heila daga í röð. Ég hætti að taka kvíðalyfin, það var eitthvað sem hann sagði sem olli því að ég ákvað að hætta að taka inn öll lyf heldur nota frekar náttúrulegar leiðir þegar eitthvað bjátar á. Ég hætti líka að nota brjóstahaldara og nota bara toppa núna sem þrengja ekki að líkamanum og losaði mig við íþróttatoppa sem skildu eftir sig för á líkamanum af því að þeir voru of þröngir, meikar bara ekki sens fyrir mig að nota þannig föt lengur. Ég á líka erfiðara með að ganga í svörtum fötum núna eftir þessa lífsreynslu skulum við bara kalla það svo ég geri lítið af því.
Nuddaðferðin sjálf er dáldið spes. Ekki mjög íslensk enda er hún tælensk(;)) en nuddþegi liggur sem sagt á dýnu á gólfinu allan tímann og nuddarinn krýpur í kringum hann. Þetta er 90 mínútna nudd sem við lærðum og fótanuddið (legs) er alveg 45 mínútur. Nuddþegi liggur á bakinu allan tímann svo það er ekkert baknudd nema sná axlarnudd en þetta er allavegana mjög gott nudd, ég get vitnað um það þar sem við þurftum að æfa okkur á hvert öðru:) það var mjög ánægjulegt að fá tilfinningu fyrir því sem ég er að læra, sem sagt nuddnámið. Við vorum sirka 12 á námskeiðinu og maður nuddaði alla og fékk nudd frá öllum. Mér finnst svo frábært að hafa kynnst öllu þessu fólki. Magnað í rauninni og einmitt það sem ég þurfti í lífinu. Við ætlum að halda hópinn og hittast og æfa okkur. Við erum búin að hittast einu sinni og erum að fara hittast aftur á morgun. Ég er ekki orðin örugg á rútínunni svo það er gott að vera með æfingafélaga.
Ég ætla ad enda þennan pistil á manneskjunni sem gerði þetta allt mögulegt en það er auðvitað móðir mín sem var svo æðisleg og yndisleg að koma heim til mín þessa daga og líta eftir börnunum á meðan ég var á námskeiðinu.
Takk mamma mín. Ég elska þig ❤
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
En æðislegt að heyra Svava mín. Og Svanur heppinn. Ertu ekki alltaf að æfa þig á honum?
Heyrðu nei. Við gerðum eina tilraun en það er enginn friður fyrir börnum hér. Svo er þetta tælenska nudd sem við vorum að læra þannig að þiggjandinn liggur á bakinu (enginn bekkur) og maður krýpur svona allt í kringum manneskjuna svo maður verður eiginlega að hafa heilt herbergi undir þetta með dýnum út um allt svo maður (ég) meiði sig ekki í hnjánum svo að þetta gengur eiginlega ekki upp að æfa sig á Svani í þessu thai nuddi hérna heima því miður.
Post a Comment