Gat ekki.
Gat ekki hent Nirvana í ruslið. Hver gerir það?
Setti þennan disk á fóninn í bílnum;
Taldi mér trú um það að það væri allt í lagi að henda þessum Nirvana diskum. Ég meina, söngvarinn heróínfíkill sem drap sig, og allt í messi. Ekki svo mikið ég núna, ha?
En svo hlustaði ég og ... æ, þeir voru nú ansi góðir. Þéttir. Virkilega góðir bara. Talentar. Soundið var bara svo gott, lögin of góð. Engar afkáralegar minningar, bara vá, hvað þeir voru nú góðir.
Alveg ástæða fyrir því að þeir voru svona rosalega vinsælir. Fékk því ekki af mér að henda þessum Nirvana diski.
Æ, bara nei.
Saturday, June 29, 2019
Friday, June 28, 2019
Eðal.
Svo finnur maður gimstein.
Hef allavegana einu sinni farið á tónleika með Emiliönu Torrini. Vá. Hún er svo mikið æði.
Leið um í bílnum í svo góðum fíling eftir að hafa sett Me and Armini á fóninn.
Unaður fyrir skynfærin þessi tónlist. Elska hvað þetta er góður diskur og hvernig lögin bráðna svo mjúklega saman við hvort annað.
Þvílíkt meistaraverk. Ætli aðal lagið sé ekki Big jumps.
Allavegana, þetta var gaman alveg þangað til að ég klessti bílnum óvart á vegg eftir að hafa hitt vinkonu á kaffihúsi niðrí bæ og stoppað svo á n1 Hringbraut í bakaleiðinni til að ryksuga bílinn. Eða svona lítinn asnalegan hálfvegg sem maður sér ekki þegar maður er á jeppa og er við hliðina á þvottaplaninu hjá n1 Hringbraut. Var búin að vera heillengi að ryksuga bílinn en ryksugan er við hliðina á þessu blessaða þvottaplani auðvitað. Sá svo ekki vegginn þegar ég lagði af stað.
Já. Mér líður alveg nógu asnalega yfir þessu.
Til allrar hamingju tók Svanur þessu vel. Skaðinn er ekkert ógurlegur en samt einhver.
Dó! (Homer Simpson "doh!") Enginn dó.

Thursday, June 27, 2019
Losun dagsins
Tregi og ástarsorg.
Er að fara í gegnum gamla geisladiska sem er fyndið í sjálfu sér af því að orðið sjálft - geisladiskur - er orðið fyndið. Orð sem maður heyrir varla lengur.
Allavegana. Hlustaði á tímabili á söngkonuna Heru. Hún á heima á Nýja Sjálandi held ég (New Zealand) og er með svona henna (?) tattoo á annarri hliðinni á andlitinu sem ég held að kannski teikni hún bara á fyrir show. Veit ekki. Allavegana, hérna er mynd:
Þetta eru rosalega góð lög. Frægasta heitir Itchy palms og var lagið sem var notað í kvikmynd eftir Baltasar. Man ekki hvað hún heitir en Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær léku allavegana í henni. Fallegt lag um sálufélaga sem geta ekki verið saman. Um það hvernig maður finnur sjálfan sig í karlmanni sem maður er skotin í en fær ekki að vera með honum (he´s just like the mirror of me.)
Allavegana, textarnir sem ég kann utan að eru svo sorglegir þó að lögin séu rosalega góð. Tilfinningarnar sem þau skilja mig eftir með eru mögnuð ástarsorg og tregi allra trega. Kökkur í hálsinum og þar fram eftir götunum.
Svo ég ætla að henda diskinum í ruslið núna og shifta yfir í núið.
Þú ert samt rosalega góð söngkona og gítarleikari líka Hera Hjartardóttir.
Love.
Wednesday, June 26, 2019
dharma
Orðið dharma kemur frá indverskum trúarbrögðum og þýðir að ég held lífstilgangur. Okkar einstaklingsbundni hæfileiki eða það sem við komum á jörðina til að gera.
Ég held ég hafi fundið minn.
Í gær var ég með þrjá aðila í nuddi. Allir þrír voru mjög ánægðir og sögðust ætla að koma aftur. Karlmennirnir tveir nefndu sérstaklega höfuðnuddið. Allavegana, síðasti kúnninn sagði...
... að þetta hefði verið besta nudd sem hún hafi farið í.
!!
p.s. merking orðsins er reyndar flóknari en þetta en Deepak Chopra skrifar allavegana um þetta orð og merkingu þess á þennan hátt. Að orðið sé sanskrít og að það þýði lífstilgangur eða það sem gefur manni lífsfyllingu.
Namaste.

Monday, June 24, 2019
rómantíkin krakkar
Við Svanur erum einstök. Alveg eins og allir aðrir. Öll pör. Við erum ein stök nema að við erum saman, par.
Allavegana. Við Svanur erum saman í ruglinu. Ef svo má að orði komast.
Gærdagurinn var eins og hver og annar sunnudagur. Að þessu sinni var ég slöpp heima, með blöðrubólgu og svona eitthvað að reyna að láta mér líða betur. Svanur fór með krakkana upp á Esjuna. Týpískt.
Talaði við mömmu í símann sem óskaði mér til hamingju með daginn. Ég vissi ekkert hvað hún var að tala um. Ekkert. Engar bjöllur að hringja neinum bjöllum. Enda gera þær það aldrei eftir svefnlitla nótt.
Nei, nei. Við áttum fyrsta brúðkaupsafmælið okkar (!) Í gær.
Hringdi í hann. Hann vissi það ekki heldur.
Við erum æði. Hlakka til vera áfram æðisleg.
Saturday, June 22, 2019
delete
Ó já. Delete.
Er eins og líklegast hefur komið fram hérna svona frekar vanaföst vera. Kann vel við að gera alltaf ákveðna hluti á sama tíma á hverjum degi. Svo breytast þessir hlutir eftir árstíðum eða eitthvað..
Núna er með því fyrsta sem ég geri á morgnana að fara á facebook og deleta einhverju sem ég hef sett þar inn. Þetta tekur enga stund, varla mínútu en ég kann vel við að gera hlutina í svona smáum skrefum. Skiljiði, ekki henda öllu í einu með einhverjum látum heldur "treina" það. Þannig að núna er ég komin á þann stað að ég er búin að eyða öllum albúmum sem ég útbjó á facebook. Svo núna er ég hægt og rólega að deleta öllum hinum myndunum sem ég hef sett þarna inn. 10 á dag, sirka.
Já, það er eitthvað að gerjast. Einhver þroski er að eiga sér stað. Ég meina, af hverju að veita einhverri alþjóðlegri keðju, internetinu aðgang að myndunum þínum? Hljómar smá heimskulega þegar maður segir frá því.
Allavegana, svo fer ég á Instagram og eyði þar einni mynd sem ég hef sett inn og affylgja einhvern sem er óvirkur en ég hef af einhverjum ástæðum ákveðið að fylgja. Dáldið líka svona að stjórna því hvað ég sé og hvað ekki.
Svo fer ég aðeins seinna og eyði 5 tölvupóstum og svo 5 myndum af myndavélinni í símanum.
Já, mínar kæru. Það er gott að deleta. Elska svona hreinsanir. Ef ég fengi að ráða væri bara afskaplega lítið hérna á heimilinu. Það er bara þannig.
Af því sem ég hendi á hverjum degi sem ég á er það að frétta að videotækið er farið á haugana og eins svarta tréhulstrið sem ég notaði til að geyma videospólurnar í. Videospólurnar eru líka komnar í ruslið. Það fór á ein á dag og þess vegna á ég ekki lengur þætti eins og Beverly Hills 90210, The OC, Friends, Americas Next Top Model, Sex and the City, Kallarnir og the L-word ekki lengur til á videospólum. Ekki heldur spólur með Blur, Oasis, Nirvana og Take That (he he..)
Hefði hvort sem er ekki getað horft á þessar spólur með nútímatækni held ég þar sem ég efast um að skarttengið sem þurfti að plöggast inn í sjónvarpið til að ég gæti horft á þetta plöggast bara ekki lengur. Held ég.
Anyways, bara buygones.
Delete.

Tuesday, June 18, 2019
En skrýtinn dagur
Það er svo skrýtið að hlutir sem gerast aldrei gerðust tvisvar og þrisvar í dag.
Er sem sagt með aðstöðu í Yogashala tvisvar í viku og búin að vera með í nokkra mánuði núna.
Tveir fyrstu sem komu áttu í stökustu vandræðum með að finna staðinn. Það hefur aldrei gerst áður.
Þrisvar var ég spurð hvort ég ætti nudd í dag. Samdægurs. Þrisvar! Hvort ég ætti laust í dag. Þetta hefur aldrei gerst á mínum stutta ferli.
Skrýtinn dagur. Það er kannski kominn tími til að maður hætti að vera kassalaga og venjist því að hlutirnir þurfi ekki alltaf að vera planaðir.
Hvernig ætli stjörnunum sé raðað í dag?
Ein perplexuð.

Sunday, June 16, 2019
Besta gjöfin
Elskulegur eiginmaður minn gaf mér í gær bestu gjöf sem ég hef fengið í langan langan tíma:
Frí frá sjálfum sér og börnunum í tvær nætur. Hann vissi að ég vildi (þurfti) húsmæðraorlof og það var það sem ég fékk. Heima reyndar en samt..
Ég fann þessa æðisgengnu tilfinningu þegar þau voru (loksins) farin þegar maður ræður ekki við gleðisprengjuna og léttinn og snýst bara brosandi í hringi segjandi yes aftur og aftur.
Nei sko vá. Ein heima. Veit ekkert betra en finn samt svo sterkt hvað það er gott að þau koma aftur. Myndi verða ansi einmana ansi fljótt með þessu áframhaldi en er enn ekki alveg komin á þann stað.
Er enn að njóta.
Takk Svanur:)
(skrifað sama dag og þau komu heim) Æ, mikið er maður nú heppinn að eiga svona frábæra fjölskyldu. Jú, það getur verið drulluerfitt á köflum en ég myndi ekki skipta því út fyrir neitt annað. Held að fyrir mig væri alveg jafn erfitt að vera ein.

Thursday, June 6, 2019
Djúsdagur
Einhvern tímann er allt fyrst.
Ákvað að dagurinn í dag væri góður dagur til að prufa að djúsa. Er búin að vera að spá í þessu lengi en aldrei lagt í það. Fólk sem djúsar reglulega mælir með þessu. Mér finnst þetta líka meika sens; að hreinsa kerfið aðeins.
Fór því á Gló og keypti mér safana.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég borða ekki hádegismat. For realz.
Var eitthvað aðeins að panika áðan. Fannst ég vera með hausverk og leið smá asnalega en líður miklu betur núna.
Borðaði síðast um kvöldmatarleytið í gær og ætla að taka svona sólarhringsföstu.
Já maður!

Subscribe to:
Posts (Atom)