Það er svo skrýtið að hlutir sem gerast aldrei gerðust tvisvar og þrisvar í dag.
Er sem sagt með aðstöðu í Yogashala tvisvar í viku og búin að vera með í nokkra mánuði núna.
Tveir fyrstu sem komu áttu í stökustu vandræðum með að finna staðinn. Það hefur aldrei gerst áður.
Þrisvar var ég spurð hvort ég ætti nudd í dag. Samdægurs. Þrisvar! Hvort ég ætti laust í dag. Þetta hefur aldrei gerst á mínum stutta ferli.
Skrýtinn dagur. Það er kannski kominn tími til að maður hætti að vera kassalaga og venjist því að hlutirnir þurfi ekki alltaf að vera planaðir.
Hvernig ætli stjörnunum sé raðað í dag?
Ein perplexuð.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment