Thursday, June 6, 2019

Djúsdagur

Einhvern tímann er allt fyrst.

Ákvað að dagurinn í dag væri góður dagur til að prufa að djúsa. Er búin að vera að spá í þessu lengi en aldrei lagt í það. Fólk sem djúsar reglulega mælir með þessu. Mér finnst þetta líka meika sens; að hreinsa kerfið aðeins.

Fór því á Gló og keypti mér safana.

Þetta er í fyrsta skiptið sem ég borða ekki hádegismat. For realz.

Var eitthvað aðeins að panika áðan. Fannst ég vera með hausverk og leið smá asnalega en líður miklu betur núna.

Borðaði síðast um kvöldmatarleytið í gær og ætla að taka svona sólarhringsföstu.

Já maður!

2 comments:

Tinnsi said...

Mér finnst þetta djús vera algjört bull - þetta er svipað og að borða ávexti nema maður fær mest sykur og ekki nærri öll næringaefnin. Betra að borða bara ávexti. En ég held að það sé svaka sniðugt að fasta. Gangi þér vel! Hlakka til að heyra hvernig gekk.

Svava said...

Haha! Þetta var og er æði:) einmitt það sem ég þurfti! Fann að ég þurfti að minnka magamálið og í kjölfarið borða ég minna og hef ekki fengið uppþembu síðan ég byrjaði á þessu. Avúhú!!