Við Svanur erum einstök. Alveg eins og allir aðrir. Öll pör. Við erum ein stök nema að við erum saman, par.
Allavegana. Við Svanur erum saman í ruglinu. Ef svo má að orði komast.
Gærdagurinn var eins og hver og annar sunnudagur. Að þessu sinni var ég slöpp heima, með blöðrubólgu og svona eitthvað að reyna að láta mér líða betur. Svanur fór með krakkana upp á Esjuna. Týpískt.
Talaði við mömmu í símann sem óskaði mér til hamingju með daginn. Ég vissi ekkert hvað hún var að tala um. Ekkert. Engar bjöllur að hringja neinum bjöllum. Enda gera þær það aldrei eftir svefnlitla nótt.
Nei, nei. Við áttum fyrsta brúðkaupsafmælið okkar (!) Í gær.
Hringdi í hann. Hann vissi það ekki heldur.
Við erum æði. Hlakka til vera áfram æðisleg.
1 comment:
Til hamingju með brúðkaupsafmælið!!
Post a Comment