Friday, December 30, 2022

Former quote junkie

Það er ágætt að eldast.

Það eldist líka margt af manni og margt sem skipti mig máli fyrir nokkrum árum gerir það ekki lengur.

Þegar mín andlega vegferð hófst fyrir sirka 7 árum elskaði ég quotes. Til dæmis:

Í dag ákvað ég að fara yfir einhver af þessum quote-um sem ég skrifaði niður í litlar minnisbækur og færa yfir í nýja bók en bara með þeim sem ég er ekki vaxin upp úr. Er til dæmis vaxin upp úr þessu:


Ég er engan veginn að spá í hvað fólki finnst um mig. Hef komist að því að það er enginn að spá í manni hvort sem er. Það virðast flestir eiga nóg með sig og sína.

Allavega, bless 2022 og halló 2023🥳

Hlakka til að vaxa meira og vaxa upp úr fleiri quote - um.


Friday, December 23, 2022

Í mínus á leiðinni í plús

Húsmóðirin okkar var orðin ansi þreytt í vikulokin. 

Desember hefur einkennst af vinnutörn. Hún var æði; nýjar áskoranir og tækifæri og ég kynntist fullt af nýju fólki. Var samt orðin ansi þreytt í gær.

Eiginmaðurinn fékk harðorð fyrirmæli, í hástöfum, um að vekja ekki frúnna í gærkvöldi. Hún væri lögst til hvílu. Hann var úti að jólast. Ég var komin á þann stað. Hormónar þið vitið. 

Svaf loksins og vaknaði frjáls. Ekki það að vinnan hafi verið kvöð. Alls ekki. Elska hana. Þurfti bara á hvíldinni að halda.

Fór á hárréttan stað í tilverunni þegar ég þrammaði niðrí bæ með trommuna mína í drum circle. Fékk svo mörg löng faðmlög að ég missti töluna á þeim. Kannski 4 löng og tvö stutt. Mikið var gott að hitta alla. Hef ekkert farið allan desember.

Náði að kveikja lífsneistann aftur sem þurfti svo sannarlega á næringunni að halda. Er farin að finna vel hvað nærir og hvað tæmir. 

Mjög þakklát fyrir að líða betur og að vera komin í frí. 

Núna er húsmóðirin að pakka inn jólagjöfum og þrífa og undirbúa jólin. 

Hátíð ljóss og friðar.

Namaste. 

P.s. skrýtin pæling. Ég skoða alltaf dánarfregnir á mbl.is. Þær eru alltaf nákvæmlega fjórar.... hvað með hitt fólkið sem deyr? Það eru líka alltaf sömu tilkynningarnar um helgar. Það getur varla verið að það séu akkúrat fjórir á dag sem þú veist, fara yfir móðuna miklu? Hverjir fá forgang þá og af hverju kemur stundum sama manneskjan tvisvar af því er virðist óvart? Gerist frekar oft. 


Friday, December 16, 2022

Örlagavaldar

Undarlegt að við séum einhvern tímann á ævidögum okkar ofanjarðar örlagavaldur í lífi annarrar manneskju.

Það er á sama hátt undarlegt að hugsa til Ísaks, manns sem ég þekki ekki neitt, og hvernig hann breytti lífi mínu á ákveðinn hátt.

Ef ég hefði ekki verið á djamminu fyrir sirka 24 árum á skemmtistaðnum sáluga 22 á Laugavegi 22 með Ástu vinkonu og Dolli kunningi minn hefði ekki á einmitt á ákveðnu augnabliki verið að flækjast þarna fyrir utan þá hefðu þau aldrei hittst. Þau voru saman í nokkur ár og eignuðust tvö börn. Ef til vill hefðu þessi ákveðnu tvö börn aldrei orðið til ef ég hefði verið annars staðar þetta kvöld. 

Tvær heilar manneskjur. Líf sem hafa áhrif á önnur líf.

Ef ég hefði ekki verið að vinna sem verktaki í Olís fyrir nokkrum árum við að nudda hefði Ísak ekki mælt með mér við Þórönnu sem hafði svo samband við mig og kom mér í besta gigg ferils míns.

Sko, ég hef aldrei talað við Ísak.

Svona lagað er eitthvað sem ég hugsa oft um. Er þetta allt saman skrifað í stjörnurnar fyrir fram eða er þetta bara röð tilviljana?

Namaste. 

Thursday, December 8, 2022

Rakleiðis ...

... út fyrir vellíðunarmörkin.

Vellíðunarmörkin eru helsti andstæðingur 

velgengni þinnar og árangurs.

Brian Tracy

Það sem kom mér mest á óvart við að standa fyrir framan fólk og tala var að þó mér leið ekki beinlínis vel þá trufluðu tæknimálin mig meira en sviðsskrekkur. Hann var ekki til staðar.

Hafandi verið að vinna við að strjúka fólki síðastliðin ár hef ég ekki verið á teams fundum. Lenti í því að tveir nemendur voru á námskeiðinu í gegnum teams og vefmyndavélin sem átti að sýna mig og skjáinn sneri sér í allar aðrar áttir. Hún var föst við vegginn á móti og þegar reynt var að snúa henni í rétta átt varð hún reið og sneri sér þvert beint til hægri eða vinstri svo að það var útsýnið þeirra.

Þetta var góður hópur fyrri hópurinn. Ég elska hvað fólk er flest gott. Hópurinn í dag var öðruvísi. Nýtt fólk og mér fannst orkan frekar erfið. Það voru tvær góðar konur sem voru þarna, sýndu áhuga og björguðu deginum. Skynjaði sterkt að nokkrar þarna nenntu ekki að vera þarna og ég skildi það vel reyndar. Það hjálpaði reyndar ekki að það var skítkalt í stofunni. Þær voru allar komnar í úlpurnar og treflana! Úff hvað það varð allt í einu kalt úti. 

Skil uppistandara og sviðslistamenn betur núna. Gerði það reyndar fyrir. Passa alltaf að vera með öllum í liði sem eru á sviðinu. Af því að það getur verið dauði og djöfull að vera á sviði ef hópurinn er ekki með manni. 

Get ég ímyndað mér. 

Namaste. 



Thursday, December 1, 2022

Wolfmother

Mikið sem ég er þakklát bróður mínum sem gaf mér geisladiskinn Wolfmother i den.

Hefði annars ekki kynnst þessu bandi. Það er svo mikið mood. Mig langar að segja píkurokk en það orð er líklegast ekki til. Píkupopp er til en þetta er rokk, pottþétt. 

Sjáið bara lookið á cd-num:


Sjáið svo þetta myndband (og hlustið):


Er að fíla þetta svo mikið. Trommusólóið í White unicorn er svo magnað!

Ok, myndbandið klárast einmitt þegar trommusólóið var að byrja en ég vildi ólm (af hverju veit ég ekki) að þið sæuð þá á tónleikum líka. Held að trommusólóið fylgi með hérna í kringum fjórðu mínútu:
Hversu geggjað?

Rock og ról.

P.s. er búið að líða heilt yfir æðislega í vikunni. Tilbreyting er svo góð. Undirbúningur fyrir kennslu í Mími er í hæstu hæðum og er einmitt líka komin upp á hæðir í vinnustaðanuddinu. Stelpan ekki lengur í kjallaranum bara.

Party on Wayne. Party on Garth!

Ok, þarna uppljóstraði ég öllu um hversu miðaldra ég er en hey, er smá að elska að vera miðaldra. Einn kosturinn er til dæmis að ég er (að mestu leyti) hætt að taka hlutum persónulega. Það er ÆÐI. 

Einn gallinn er að ég er farin að nota skóhorn meir en hey.. Skóhorn (svona löng auðvitað) eru alger snilld.

Namaste.