Friday, December 16, 2022

Örlagavaldar

Undarlegt að við séum einhvern tímann á ævidögum okkar ofanjarðar örlagavaldur í lífi annarrar manneskju.

Það er á sama hátt undarlegt að hugsa til Ísaks, manns sem ég þekki ekki neitt, og hvernig hann breytti lífi mínu á ákveðinn hátt.

Ef ég hefði ekki verið á djamminu fyrir sirka 24 árum á skemmtistaðnum sáluga 22 á Laugavegi 22 með Ástu vinkonu og Dolli kunningi minn hefði ekki á einmitt á ákveðnu augnabliki verið að flækjast þarna fyrir utan þá hefðu þau aldrei hittst. Þau voru saman í nokkur ár og eignuðust tvö börn. Ef til vill hefðu þessi ákveðnu tvö börn aldrei orðið til ef ég hefði verið annars staðar þetta kvöld. 

Tvær heilar manneskjur. Líf sem hafa áhrif á önnur líf.

Ef ég hefði ekki verið að vinna sem verktaki í Olís fyrir nokkrum árum við að nudda hefði Ísak ekki mælt með mér við Þórönnu sem hafði svo samband við mig og kom mér í besta gigg ferils míns.

Sko, ég hef aldrei talað við Ísak.

Svona lagað er eitthvað sem ég hugsa oft um. Er þetta allt saman skrifað í stjörnurnar fyrir fram eða er þetta bara röð tilviljana?

Namaste. 

No comments: