Thursday, December 8, 2022

Rakleiðis ...

... út fyrir vellíðunarmörkin.

Vellíðunarmörkin eru helsti andstæðingur 

velgengni þinnar og árangurs.

Brian Tracy

Það sem kom mér mest á óvart við að standa fyrir framan fólk og tala var að þó mér leið ekki beinlínis vel þá trufluðu tæknimálin mig meira en sviðsskrekkur. Hann var ekki til staðar.

Hafandi verið að vinna við að strjúka fólki síðastliðin ár hef ég ekki verið á teams fundum. Lenti í því að tveir nemendur voru á námskeiðinu í gegnum teams og vefmyndavélin sem átti að sýna mig og skjáinn sneri sér í allar aðrar áttir. Hún var föst við vegginn á móti og þegar reynt var að snúa henni í rétta átt varð hún reið og sneri sér þvert beint til hægri eða vinstri svo að það var útsýnið þeirra.

Þetta var góður hópur fyrri hópurinn. Ég elska hvað fólk er flest gott. Hópurinn í dag var öðruvísi. Nýtt fólk og mér fannst orkan frekar erfið. Það voru tvær góðar konur sem voru þarna, sýndu áhuga og björguðu deginum. Skynjaði sterkt að nokkrar þarna nenntu ekki að vera þarna og ég skildi það vel reyndar. Það hjálpaði reyndar ekki að það var skítkalt í stofunni. Þær voru allar komnar í úlpurnar og treflana! Úff hvað það varð allt í einu kalt úti. 

Skil uppistandara og sviðslistamenn betur núna. Gerði það reyndar fyrir. Passa alltaf að vera með öllum í liði sem eru á sviðinu. Af því að það getur verið dauði og djöfull að vera á sviði ef hópurinn er ekki með manni. 

Get ég ímyndað mér. 

Namaste. 



No comments: