Wednesday, July 13, 2011

Um strætóskýli

Skil ekki alveg þessa stefnu hjá Strætó að vera með þessi gler-strætóskýli. Í fyrsta lagi þá eru þau ekkert brjálæðislega skjólgóð hérna á Íslandi og í öðru lagi eru þau kjörin gimp fyrir klikkað fólk að ráðast á og smalla og skemmileggja.

Það gerðist í fyrranótt. Um miðja nótt voru börn og gamalmenni í hverfinu (that being myself) vakin af værum blundi af brjálæðislegum látum þegar verið var að brjóta þessi gler. Og það er ekki eins og þetta sé í fyrsta skiptið! Þetta gerist aftur og aftur og aftur og aftur...

Pirruð? Ég?!

Bara smá.

No comments: