Monday, March 31, 2008

Mother of all bitches!!

Ég spring strax á limminu og geri innhverfa en ekki úthverfa færslu. Enda er ég kona en ekki karl og það liggur mikið við. Ég þarf að tjá mig...

Það sem átti ekki að geta gerst gerðist. Fasteignasalinn minn er búinn að segja við mig í um mánuð núna að það séu 99% líkur á því að íbúðin mín sé seld. Kaupendurnir voru búnir að skrifa undir gagntilboð og allt að gerast og ég búin að gera kauptilboð í aðra íbúð sem var samþykkt. Síðan kemur bið og vesen og jadijadija og svo hringir fasteignasalinn í dag og tilkynnir mér að þau (kaupendurnir) séu hætt við að kaupa íbúðina mína. Þetta er að hans sögn ólöglegt hjá þeim og afskaplega siðlaust líka. Þau eru búin að draga mig og seljendurnar að íbúðinni sem ég ætlaði að kaupa á asnaeyrunum í þvílíkt langan tíma. Svo gerist þetta!

Ég kenni svartsýninni sem er í gangi í samfélaginu núna um. Svo virðist sem einhvers konar bráðsmitandi móðursýki sé í gangi núna og að fólk sé rosalega hrætt við verðbólgu og yfirvofandi kreppu. Og það er ekki eins og fjölmiðlarnir séu að hjálpa.. Maður flettir blaði og samkvæmt fyrirsögnum er hver dagur öðrum svartari í íslensku efnahagslífi og allt virðist vera að fara til fjandans. Í kjölfarið verður fólk ofboðslega varfærið og hættir t.d. við að kaupa íbúð (af því fjölmiðlarnir mæla gegn því).

Sko, ef maður hugsar svart þá gerist svart. It's as simple as that. Af hverju átta fjölmiðlar sig ekki á þessu og fara að verða bjartsýnir?????

Mother of crap.

Jæja, þá er bara að jafna sig á þessu áfalli og reyna að skipuleggja íbúðina þannig að barnarúm, kommóða og barnadót komist fyrir. Við Svanur verðum víst næstu viðskiptavinir geymslur.is þar sem við verðum að koma dótinu okkar fyrir einhvers staðar..

Það má alveg einhver hringja í mig og segja mér brandara núna og hressa mig smá við.. Bara svona ef þið kunnið einhvern pottþéttan...

Ok, næsta færsla verður úthverf!

Later.

2 comments:

Anonymous said...

Innhverft, uthverft og adhverft knus a thig elsku Svavan min! Thetta reddast einhvern vegin elskan min, svo lengi sem thu tapar ekki gledinni

kiss kiss

Sola

Svava said...

Thanks love, auðvitað reddast þetta:) Gleðin lifir!!