Ég hef gert mikilvæga (?) uppgötvun.
Strákar gera úthverfar bloggfærslur og stelpur gera innhverfar bloggfærslur.
Why?? Mér finnst þetta sýna fram á mikilsverðan mun á kynjunum og skýra að miklu leiti af hverju karlmenn eru frá Venus og konur frá Mars. Eða var það öfugt? Allaveganna, karlar hugsa bara allt öðruvísi!
Í ljósi þessa ætla ég að gera tilraun og reyna að hugsa á næstunni eins og karlmaður (úthverfur) en ekki kona (innhverf). Næstu blogg mín verða því úthverfar færslur.
Ég meina hafi þið einhvern tímann rekist á karlkyns bloggara sem er að tala um sjálfan sig og sitt einkalíf?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Strákar kvarta samt líka á bloggunum sínum, sbr. þetta vörubílabull sem er í gangi og um verðlag almennt, hef ég tekið eftir. Og kvart er innhverft, sérstaklega ef það er um eigin hagsmuni.
Já EN þeir eru aldrei að tala um á bloggunum sínum hvað er í gangi í þeirra eigin lífi og hvernig þeim líður. Ég hef aldrei rekist á kalmannsbloggara sem er að segja frá því hvað sé að gerast á heimilinu og með börnin sín eða hvað sé að gerast í kvennamálunum hans og svoleiðis. Karlmenn kvarta yfir úthverfum hlutum en konur kvarta yfir innhverfum hlutum, yes? Eins og núna þá gæti ég kvartað yfir því að mér líður eins og hval af því ég er orðin svo ólétt (I feel like a hippopotemus!!) en karlmaður myndi einmitt kvarta yfir einhverju úthverfu eins og verðinu á bensíni eða verðlag almennt... Ég er samt sammála um að kvart sé almennt innhverft. Takk fyrir bréfið Tinna, ég er alveg að fara svara þér (ég þarf nú að svara fyrir mig með þetta í sambandi við jeppann og einbýlishúsið sko...)
Post a Comment