
Var að horfa á Ungfrú Reykjavík í gær....
Ég veit ekki hvort að aldurinn sé að hellast yfir mig eða hvað en það virkilega sló mig hvað stelpurnar þarna voru fáránlega grannar! Og allar með sama vaxtarlagið - eins og tannstönglar bókstaflega.
Mér stóð heldur ekki alveg á sama með þessa gellu í Merzedes club. Ég hef nú alltaf fílað lúmskt Gillzenegger og kallana en dji... þessi gella er bara stærð 0 eða eitthvað. Hvað er málið??!! Síðan komu þær allar alveg eins og hún nema kannski stærð 1. Allar alveg eins vaxnar, fáránlega mjóar, ekki urða af fitu neins staðar. Meðal dómenda í keppninni var síðan einhver næringafræðingsgella sem ég veit að er við það að detta í sundur úr hor því ég hef séð hana í World Class. Og hún er fengin til að halda utan um mataræðið hjá þessum stelpum.
Halló, ég veit að ég hljóma eins og kelling en það verður bara að hafa það, en keppnin í gær setti einfaldlega fram ákveðinn staðal.
Ef þú vilt vera hot babe, go anorexic. Er ekkert verið að hugsa um sálartetrið á þeim ungu stúlkum sem eru að horfa á þessa vitleysu?
Jesus, I seriously thought we were pass this.