Saturday, April 12, 2008

Only four weeks to go..

Já, settur dagur er eftir fjórar vikur. Ég bíð með óþreyju.

Komin með þó nokkra meðgönguþoku að mér sjálfri finnst enda er maður kominn á það stig að þurfa snúningslak á nóttunni og að þurfa vera með púða allt í kringum sig þegar maður liggur í læstri hliðarlegu og reynir að sofa.

Núna er ég komin með eitthvað vesen í vinstri mjöðmina og er farin að haltra þvílíkt. Það sem áður tók engan tíma er farið að taka þó nokkurn tíma.. Ekkert sérstaklega gott. Ég held að ég verði að hætta að vinna bráðlega eða allaveganna minnka það niður í 50%. Ég er í engu ástandi til að labba upp og niður stiga og eltast við börn á daginn..

Allaveganna, þetta var víst enn ein innhverf færslan. Úps.. Ætla að reyna að vera úthverfari og spá í öðru heldur en sjálfri mér við næsta blogg..

Get reyndar sagt eitt úthverft: Ég er alveg sammála Gwyneth Paltrow um að það voru paparazziarnir sem drápu sálarlíf Britney Spears og að þeir eigi alla sök á því af hverju hún er eins og hún er í dag. Mér hefur alltaf fundist þetta og finnst líka vel orðað hjá Paltrow þegar hún segir að þeir séu alblóðugir upp á bak varðandi ástandið á stelpunni..

Later.

No comments: