Wednesday, April 16, 2008

My inner Rock Goddess..


Var minnt á það í gær að mín innri rokkgyðja liggur í dvala einhvers staðar djúpt innra með mér. Tilefnið var að hljómsveitin Sign var að spila í Kastljósi í gær. Ég fíla þá í drasl.

Ég komst öll í stuð og mín innri rokkgyðja bylti sér um í svefnrofunum einhvers staðar í hugarfylgsnum mér. Djöfull eru þeir flottir. Ragnar Sólberg er náttúrulega bara lifandi goðsögn og það sást svo glögglega í gær hvað bandið hefur þroskast og dafnað í vetur. Þeir hafa það, það er ekki spurning.

Svo sagði kynnirinn að Sign væru að fara spila á einhverjum tónleikum með engum öðrum en Brain Police. Gggrrr... En nei, nei. Suss, suss. Kasóléttar konur með grindargliðnun og stoðkerfisvandamál fara ekki á rokktónleika. Það bara er eins og ís og mjólkurglas. Fer bara ekki saman..

No comments: