Sunday, April 6, 2008

A breath of fresh air


Vorboðinn ljúfi, mikið var!

Við erum að panta flug og gistingu í Englandi í sumar:) Mér finnst það þvílík stemmning. Okkur er boðið í brúðkaup í ágúst og það er bæði í Devon í suður Englandi og London. Frændi minn góður er að fara gifta sig. Ætli hann sé ekki um 28 ára gamall. Hann er hálf íslenskur (pabbi hans er bróðir mömmu) og hálf írskur. Hans heittelskaða er að mér skilst hálf sænsk og hálf írsk. Allt mjög cosmopolitan sko;) Þessi frændi minn sem heitir Steppe (Stefán = Stebbi = Steppe) bjó í Luxembourg þegar hann var lítill og svo út um allt held ég en nú búa þeir bræður báðir í Englandi.

Mér finnst ýkt skrýtið að panta flug og hótelherbergi fyrir fjóra þ.e.a.s. mína eigin fjölskyldu. Um daginn vorum við bara tvö!

Anyways, voða stemmning að plana utanlandsferð:)

Later,

P.s. held ég nenni ekki að gera úthverfa færslu. Af hverju að neita kyni sínu..?

No comments: