Friday, April 25, 2008

Um svartsýni

Eitthvað fer fyrirsögnin í Fréttablaðinu í dag fyrir brjóstið á mér.

Það er farið að fara verulega í taugarnar mér þegar fólk er svartsýnt. Fyrirsögnin er þessi:

Fleiri telja horfur slæmar.
Þetta er sem sagt aðalfréttin í blaðinu í dag og fjallar um nýlega skoðanakönnun sem Fréttablaðið stóð fyrir. Niðurstöður könnunarinnar sýna að meiri en helmingi fleiri telja núna að efnahagur fjölskyldunnar versni á næstu tólf mánuðum en í janúar. Um fjörutíu prósent segja efnahaginn muni versna, tæpur helmingur telur að hann muni standa í stað en ellefu prósent telja að hann batni.

Sko.

Ef þú býst við að eitthvað gerist mun það líklega gerast. Ef að þú býst við að efnahagur fjölskyldunnar versni eru hverfandi líkur á að hann batni. Þetta er afar einföld lógík. Af hverju býst fólk ekki frekar við því að efnahagur fjölskyldunnar batni? Þá eru minni líkur á því að hann versni.

Af hverju er fólk svona svartsýnt? Af hverju tekur fólk fjölmiðlana svona bókstaflega og býst við kreppu og verðbólgu bara af því að fjölmiðlarnir segja að það sé það sem koma skal? Af hverju öll þessi svartsýni?

Jæja, þessi Svava fer allaveganna með bjartsýni og sól í hjarta út í daginn og býst við öllu hinu besta:)

Adios amigos!

No comments: